Kynning

Ein á dag fyrir góða heilsu

Norður á Grenivík er fyrirtæki sem heitir Pharmartica, en þar starfar fólk við að pakka vítamínum fyrir Icepharma, vítamínum sem hafa hlotið heitið Ein á dag. Eins og nafnið bendir til, þá fær viðkomandi bætiefnin sem þörf er á hverju sinni dags daglega í einni lítilli töflu, að frátöldu kalki og magnesíu þar sem þörf á er á fleiri en einni töflu til þess að uppfylla daglegri næringarþörf. Það sem meira er að töflurnar eru smáar að það er mjög auðvelt að kyngja þeim. Ásdís Ragna Einarsdóttir vörumerkjastjóri Ein á dag hjá Icepharma segir að eldra fólki finnist oft auðveldara að taka eina töflu á dag, en að þurfa að taka margar. Hún bendir líka á að Ein á dag sé íslensk framleiðsla frá A-Ö. „Efnið er framleitt, pakkað og selt á Íslandi“, segir hún.

Bætiefnin í Ein á dag eru sérstaklega miðuð við þarfir eldra fólks. Framleiðslan er íslensk, töflurnar sykurlausar og á góðu verði. Þær fást í öllum helstu apótekum landsins og innihalda öll helstu grunn næringarefnin sem líkaminn þarf til þess að viðhalda hreysti og vellíðan. Það er ekkert gelatín í bætiefnunum frá Ein á dag og henta því fyrir grænmetisætur.  Hér fyrir neðan er listi yfir þau vítamín og bætiefni sem fást með Ein á dag og upplýsingar um hvernig þau virka. Nýverið bættust við fleiri vörur í Ein á dag vörulínuna og nýjustu vörurnar eru eftirfarandi: Sterkt Kalk + D, Kalk tuggutöflur og Magnesíum sítrat.

  • B-vítamín
    • B-1 vítamín
    • B-6 vítamín
    • B-12 vítamín
    • B-vítamín Kombín
    • Sterkt B-vítamín með B-6 og fólín
    • B-vítamín tekur þátt í nýtingu orku úr fæðunni og er mikilvægt fyrir starfsemi tauga og vöðva og til myndunar rauðra blóðkorna.
  • C-vítamín
    • C-vítamín 100 mg
    • C-vítamín 500 mg
    • C-vítamín 1000 mg
    • Járn + C-vítamín
    • C-vítamín er gott andoxunarefni sem eflir varnir líkamans og eykur upptöku járns í líkamanum.
  • D-vítamín
    • D-vítamín 1000 ae
    • Sterkt D-vítamín 2000 ae
    • D-vítamín er nauðsynlegt fyrir vöxt og viðhald beina og gerir líkamanum kleift að nýta kalk og fosfór betur.
  • Fjölvítamín
    • Fjölvítamín með málmsöltum
    • Fjölvítamín með málmsöltum án A og D vítamína
  • Kalk/Magnesíum
    • Kalk tuggutöflur
    • Magnesíum og kalk
    • Magnesíum sítrat
    • Magnesíum og kalk eru steinefni sem viðhalda sterkum og eðlilegum beinum og stuðla að eðlilegri vöðva- og taugastarfsemi.
  • Melatónín 1 mg
  • Melatónín á þátt í að stilla líkamsklukkuna og stuðlar að því að okkur syfjar jafnan á kvöldin og við erum vel vakandi á daginn. Melatónín styður við góða slökun og hvíld.