Vonin, þráin og svíðandi tár

Yfir sumum bókum er einhver einstakur blær. Þær eru eins og vefur eða blúnda þar sem orðin fléttast saman af einstakri og flókinni list. Heildarmyndin verður svo fínleg og falleg að ekki er hægt annað en að dást að. Þetta á við um Svanvængjaða þrá Valdimars Tómassonar.  .

Titill bókarinnar gefur fyrirheit um innihaldið því þráin er umfjöllunarefnið. Þessi sára tilfinning sem sest að í sálinni og fær sjaldnast svölun því vonin er ekki fyrr slokknuð en löngunin eða þráin kviknar að nýju. Allt lífið erum við að leitast við að finna og uppfylla það sem við helst þráum en vöknum iðulega við að það hefur runnið okkur úr greipum og þá tekur söknuðurinn við.

Valdimar er mikill meistari orðsins og myndirnar sem hann dregur upp eru fíngerðar en magnaðar. Þær setjast að í sálinni og þar tekur langan tíma að vinna úr og melta þann meitlaða boðskap sem skáldið sendir. Þeir sem ekki hafa enn uppgötvað þennan snilling eiga mikla ánægju í vændum því bækur hans eru fjársjóður.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar