Heiður ættarinnar og stríðsglæpir

Húsið á bjargbrúninni eftir Elly Griffiths er þriðja bókin um fornleifafræðinginn Ruth Galloway og Harry Nelson rannsóknarlögreglumann. Þetta er spennandi og vel skrifuð sakamálasaga og persónurnar áhugaverðar. Elly kemur einnig ávallt inn á umhugsunarverð málefni í bókum sínum. Umhverfismál eru henni hugleikin og að þessu sinni fjallar hún einnig um áhrif stríðsglæpa á þær kynslóðir sem eftir koma.

Það má segja að ég hafi farið svolítið öfugt inn í þessar bækur því ég las þrettándu bókina um Dr. Ruth Galloway og Harry Nelson lögregluforingja fyrst, síðan þá síðustu, næst þá fyrstu og aðra og nú þá þriðju. Það skemmdi samt ekkert að vita örlög allra aðalpersónanna því það er óskaplega gaman að kynnast þeim Harry og Ruth í upphafi sambands síns og uppgötva flókin mynstur í lífi aðalpersónanna.

Bækur Elly Griffiths eru persónudrifnar og ekkert er einfalt. Allir hafa sínar góðu og slæmu hliðar. Dr. Ruth Galloway er prófessor í fornleifafræði með bein að sérgrein. Hún bæði aldursgreinir beinin og les í þau sögu forfeðra okkar. Hún er einstæð móðir ungrar dóttur í þessari bók, á kött og er fyllilega sátt við að vera einhleyp. Harry Nelson er lögreglumaður af lífi og sál. Málin láta hann ekki í friði ef honum tekst ekki að leysa þau. Hann er fjölskyldumaður, á konu og tvær dætur með henni og eina með Ruth sem konan hans veit ekki af.

Umhverfismál og myrkur fortíðarglæpur

Gríðarlegt landbrot er við ströndina í Norfolk. Sjórinn hefur þegar brotið sér leið ríflega kílómetra inn í landareign Hastings fjölskyldunnar og óðalsetur hennar hangir orðið tæpt á bjargbrún. Þegar fornleifafræðingar í könnunarleiðangri við ströndina finna líkamsleifar sex manna er Ruth kölluð til. Hún aldursgreinir beinin og kemst að því að hér er um þýska hermenn úr seinni heimstyrjöldinni að ræða. Mennirnir höfðu verið skotnir og Harry hefst handa við rannsókn málsins og áttar sig fljótt á því að tveir gamlir menn úr heimavarnarliði svæðisins vita allt um málið en annar er dáinn og hinn deyr nóttina eftir að Harry talar við hann. Eru andlát þeirra af náttúrulegum orsökum eða eru þetta morð?

Ruth Galloway er stórskemmtilegur karakter, sjálfstæð, greind og alls ekki nein steríótýpa. Harry er skynsamur, jarðbundinn, geðstirður á yfirborðinu en undir niðri hlýr og umhyggjusamur. Hvorugt er gallalaust og þau gera sín mistök. Bækurnar um Ruth Galloway njóta gríðarlegra vinsælda í Bretlandi um þessar mundir. Þær gerast í saltmýrum Norður-Norfolk en þar er bæði að finna mikið af fornminjum og einstakt vistkerfi. Ruth Galloway elskar þetta umhverfi og vill hvergi annars staðar búa. Áður hafa komið út Mýrarstúlkan, Janusarsteinninn og Húsið á bjargbrúninni er sú nýjasta. Hér eins og í öðrum bókum hennar fléttast saman fortíð og nútíð og það er eitthvað heillandi og gott við að réttlætið sigri að lokum, að það sé sama hversu lengi menn geta logið og falið spor sín fyrr eða síðar komist upp um óþokka og þeir þurfi að taka afleiðingum gerða sinna.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.