Fjölhæfur og merkur tónlistarmaður fallinn frá
Gunnar Þórðarson einn fjölhæfasti tónlistarmaður landsins er látinn. Hann fæddist 4. janúar 1045 á Hólmavík. Hann var gítarleikari, söngvari, tónskáld, upptökumaður, útgefandi og hljómsveitarstjórnandi. Segja má að hann hafi lagt gjörva hönd á allt er sneri að tónlistarsköpun og -flutningi.







