Dægurflugur í hádeginu – Í minningu Gunnars Þórðarsonar

Dægurlagaperlur sem þjóðin hefur sungið, elskað og dáð í áratugi.

Auglýsing

Þríeykið Ragnheiður Gröndal, söngkona og píanóleikari, Guðmundur Pétursson, gítarleikari og Leifur Gunnarsson, kontrabassaleikari, taka höndum saman og flytja frábæra efnisskrá til heiðurs okkar ástsæla tónlistarmanni, Gunnari Þórðarsyni.

Tónleikarnir fara fram á Borgarbókasafninu Gerðubergi, föstudaginn 16. október kl. 12:15 – 13:00 og á Borgarbókasafninu Spönginni, laugardaginn 17. október kl. 13:15 – 14:00.

Gunnar var einstaklega fjölhæfur tónlistarmaður og tónsmiður. Eftir hann liggja margar af vinsælustu dægurlagaperlum okkar tíma, yfir fimm hundruð lög sem þjóðin hefur sungið, elskað og dáð. Má þar nefna Bláu augun þín, Þú og ég og Vetrarsól. Hann brá sér í ólík hlutverk, kom fram sem söngvari, gítarleikari og var auk þess vinsæll upptökustjóri!

Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Aðgangur er að venju ókeypis!

HÉR má fá nánari upplýsingar um tónleikaröðina Dægurflugur í hádeginu.