Gunnar Þórðarson einn fjölhæfasti tónlistarmaður landsins er látinn. Hann fæddist 4. janúar 1045 á Hólmavík. Hann var gítarleikari, söngvari, tónskáld, upptökumaður, útgefandi og hljómsveitarstjórnandi. Segja má að hann hafi lagt gjörva hönd á allt er sneri að tónlistarsköpun og -flutningi. Gunnar flutti ungur til Keflavíkur og það var ekki hvað síst fyrir hans tilstilli að bærinn fékk viðurnefnið Bítlabærinn.
Gunnar stofnaði og var í mörgum hljómsveitum á ferlinum og nefna má Hljóma, Trúbrot eftir samruna Hljóma og Flowers, Ríó Tríó og Lummurnar. Hann var afkastamikill lagahöfundur og allir Íslendingar eiga sér uppáhaldslag eftir Gunnar Þórðarson. En hann lét sér ekki næga að semja popptónlist, árið 2014 var frumsýnd í Hörpu óperan Ragnheiður. Tónlistin var eftir Gunnar og textarnir eftir Friðrik Erlingsson. Óperan byggði á ævi Ragnheiðar Brynjólfsdóttur biskups í Skálholti er var uppi á sautjándu öld en sögu hennar þekkja allir Íslendingar. Óperan sló öll aðsóknarmet og áhrifamikill flutningur Þóru Einarsdóttur og Gilberts Elmarssonar lengi í minnum hafður. Auk þessa samdi Gunnar tónlist fyrir bíómyndir, útsetti tónlist annarra og tók að sér upptökustjórn.
Gunnar hlaut fjölmargar viðurkenningar fyrir tónlist sína og hlaut heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu árið 2002 fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Árið 1996 var hann handhafi heiðursverðlauna Íslensku tónlistarverðlaunanna og var valinn borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2014. Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Sigrún Toby Herman. Foreldrar Gunnars voru Guðrún Guðbjörnsdóttir og Þórður Björnsson. Hann eignaðist fimm börn og fjögur þeirra eru á lífi. Hér meðfylgjandi er grein úr safni Lifðu núna þar sem vinir Gunnars sögðu frá kynnum sínum af honum í tilefni afmælistónleika hans.







