„Allt syngur í skógi“

Fyrir tveimur árum fór Draumey Aradóttir í ferðalag inn í myrkviði Amazon-frumskógarins og hugans. Meðan skógurinn söng fyrir hana fann hún ástæður gamalla hegðunarmynstra og ástæður þess hvernig lífi hennar hafði undið fram. Ferðalagið undirbjó hún vel og áhrifa þess gætti lengi á eftir og í ljóðabókinni syngur í skógi má greina óm af margvíslegum söng, tilfinningum, hughrifum og heillandi umhverfi.

Í svona kofa bjó Draumey inni í Amazon-skóginum.

Draumey vakti fyrst athygli íslenskra ljóðaunnenda þegar hún gaf út ljóðabókina, Draumlygnir dagar árið 2009. Áður hafði hún sent frá sér tvær barna- og unglingabækur og ljóðabókina Fimm vörður á vegi ástarinnar, auk þess að vinna við þýðingar en bækurnar Varurð, Einurð og Brimurð tóku allar mið af hennar eigin lífsreynslu hver á sína vegu og það gerir syngur í skógi líka. Hvernig stóð á því að konu uppi á Íslandi datt í hug að halda af stað í leiðangur inn í myrkviði regnskógarins í Perú?

Auglýsing

„Þetta var eitthvað sem átti að gerast,“ segir hún og ljómar öll. „Ég er vön að fylgja alltaf

hjartanu og innsæinu. Það kemur bara eitthvað í magann og ég hlýði því alltaf. Varðandi Perú gerðist nokkuð ótrúlega sérstakt. Ég var að selja sumarbústaðinn minn og það kemur kona þangað að skoða hann. Við höfðum aldrei sést áður. Hún kemur inn, gengur um bústaðinn í tvær til þrjár mínútur og segir svo: „Ég tek hann.“

Þetta var svo algjörlega eins og ég geri flesta hluti. Þegar ég keypti hann á sínum tíma hugsaði ég þegar ég gekk niður stíginn; ég kaupi hann! Ég segi við konuna; „Allt í lagi viltu ekki tala við fasteignasalann og gera tilboð, svo göngum við frá þessu.“ Síðan bauð ég henni kaffi og við settumst út á verönd í sólina og skröfuðum saman í þrjá klukkutíma og urðum perluvinkonur. Hið ótrúlega var að allt sem hún sagði um lífshlaup sitt átti við um mig líka. Hún sagði: „Ég var nú að flytja heim að utan.“ Ég kinkaði kolli og sagði: „Já er það. Ég líka.“ „Ég á tvö börn,“ sagði hún. „Hmhm, ég líka.“ „Þau á ég með fyrri manninum mínum, íslenska manninum mínum,“ sagði hún. „Já, ég líka.“ „Svo fluttum við út, seinni maðurinn og ég, og bjuggum þar lengi en við eignuðumst ekkert barn. Svo flutti ég heim og dóttir mín flutti heim líka en sonur minn vildi ekki flytja og hann býr úti.“ „Aha, einmitt, þannig var það líka hjá mér.“  Út frá þessu spunnust umræður um hvort þetta væru tilviljanir eða hvort sumt væri bara skrifað í skýin. Við komumst í kjölfarið að því að við erum báðar á andlegu leiðinni og höfum alltaf verið það.

Fegurðin í skóginum er einstök.

Ég hef verið það frá því ég var barn, sjö átta ára í sveitinni hjá ömmu og afa og frænda mínum á Hnjóti í Örlygshöfn. Þar var bókasafn og ég teygði mig þá nýorðin læs í allar dulrænar bækur, dróst að þeim og las þær. Bækur um miðla og alls konar óútskýranlega þætti lífsins. Ég hef alltaf verið þarna og gert mikið í því um ævina. Farið á alls konar námskeið í heilun og mannrækt og allt mögulegt sjálfsþroskandi. Við förum svo alltaf meira og meira inn í þessi mál, ég og konan og svo segir hún: „Veistu ég verð að segja þér frá ferð minni til Perú. Ég fór á svona heilsusetur langt inni í frumskóginum og þar dvelur maður meðal shamana og vel er haldið utanum mann því sálfræðingar, félagsráðgjafar og fleira fagfólk starfar þarna líka. Þetta er alhliða heilsurækt með jóga, jurtaböðum, gufu og gönguferðum og svo er boðið upp á sex ayahuasca-athafnir með shamönunum. Mjög vel er haldið utan um þátttakendur því shamanarnir kalla þetta ekki lyf heldur leið til að ferðast inn í eigin skugga til þess að sjá þau mynstur sem eru þar, finna þau til að geta breytt þeim.“ Hún sagði að hún væri breytt manneskja eftir að hafa upplifað þetta. Hún skildi sjálfa sig svo miklu betur.“

Aðstæður í The Temple of the Way of the Light.

Ekki staður fyrir myrkfælna

Það er skemmst frá því að segja að Draumey varð heilluð af frásögn konunnar og kynnti sér The Temple of the Way of Light og ákvað að fara og sér ekki eftir því. Ayahuasca-ferðirnar reyndust henni mikið ævintýri, upplifun og lærdómur.

„Ég náttúrulega fékk í magann og vissi, ég ætla að fara. Þetta er mjög þekktur staður og ég dvaldi þarna í tvær vikur. Þarna er ekkert rafmagn ekkert net og þú ert ekki tengdur við neitt nema sjálfan þig og verkefnin. Allir eru einir í kofa og það má ekki einu sinni tala saman. Með mér í hóp voru tuttugu konur víðs vegar að úr heiminum en ég var ein frá Íslandi. Annað hvert kvöld voru athafnir og maður á að vera einn með sjálfum sér yfir daginn til að vinna úr öllu því sem gerðist kvöldið áður. Ég var í eldri kantinum en það voru ekki yngri konur en svona um fertugt enda held ég ekki að neinn sé reiðubúinn til að fara í þetta fyrr en þá.

Ég myndi aldrei gera þetta einhvers staðar í Evrópu eða með einhverjum einum aðila sem hefur prófað þetta sjálfur. Þarna er svo miklu meira utanumhald og traust og maður hefur aðgang að shamönunum og sálfræðingi allan sólarhringinn ef maður situr uppi með eitthvað sem maður nær ekki að vinna úr. Það er rosalegur stuðningur af því þetta getur verið svo erfitt. En ég upplifði svo fallega hluti, sumir tóku á en allt var fallegt og jákvætt og ég held að það hafi verið vegna þess að ég var búin áður að vinna svo mikið í mér að ég átti einfaldlega minna eftir. En ég sá yngri konur sem áttu mjög, mjög erfitt og þurftu mikla hjálp því þær þurftu að takast á við margt.

Svefnaðstaðan, þarna voru leðurblökur, eðlur, rottur og aðrir óboðnir gestir um nætur.

Ég man fyrsta kvöldið í kofanum. Það var kolniðamyrkur, engin lýsing nema eitt kerti í kofanum og svo heyrir maður öskur í allskyns villidýrum allt í kring og stöku rifilskot, því þetta er bara lítið rjóður sem vopnaðir verðir verja þegar á þarf að halda. Maður veit ekkert hvaða dýr þetta eru og inni í kofanum eru rottur, leðurblökur, köngulær, eðlur og ýmsir aðrir óboðnir gestir. Ég man að fyrstu nóttina svaf ég ekki mikið og ég hugsaði, þetta er ekki fyrir myrkfælna. Ég fór í huganum yfir vinalistann minn og velti fyrir mér hvort einhver af þeim myndi lifa af þessa nótt og komst að því að sennilega væri þar bara ein manneskja sem myndi gera það. Seinna kom úrhellisrigning, þrumur og eldingar og það lak í gegnum stráþakið. Ég lá í hengirúmi og varð öll rök. Já, þetta er ekki fyrir hvern sem er. Maður þarf að geta verið einn með sjálfum sér, vera svolítið hugrakkur og ekki hræddur við myrkrið. Það er eiginlega skilyrðið.“

Salurinn þar sem ayahuasca-athafnirnar fóru fram.

Þarf að vera reiðubúin að sjá það sem kemur

Það eru tæp tvö ár síðan Draumey lagði upp í Perúferðina. Það var í nóvember 2024. Hún var búin að undirbúa sig vel.

„Maður þarf að vera reiðubúin til að sjá það sem kemur og maður veit ekki hvað kemur. Það var hellings undirbúningur áður sem sýnir að þetta er alvörustaður. Þetta er ekki bara, nú ætlar þú að fara á eitthvert „trip“ og góða skemmtun! Í nokkra mánuði áður þurfti maður að hætta að borða næstum allt. Ég mátti ekki drekka neina aðra drykki en vatn og jurtate, ekki borða mjólkurvörur, ekkert krydd, ekki salt því það getur stíflað leiðir fyrir þessar meðferðir í líkamanum, ekkert kjöt en ég mátti borða fisk. Það var óskaplega lítið eftir en ég mátti borða ávexti, grænmeti og hnetur. Þetta átti líka við í nokkra mánuði á eftir þannig að það átti sér stað algjör hreinsun.

Við erum líka hvött til að skrifa, halda dagbók, ekki rökrétta frásögn, því þetta eru ekki rökréttar myndir sem koma, heldur frekar teikna í hana eða yrkja ljóð um upplifanirnar, um það sem gerist. Í hálft ár á eftir var ég að fara í gegnum mína bók og raða í nýjar skúffur út frá nýrri vitneskju og nýrri sýn á mig út frá uppgötvunum á nýjum mynstrum, hegðunarmynstrum, hugsanamynstrum, sem byggja auðvitað á hugsanamynstrunum, og ef maður er fastur í einhvers konar hjólförum eða mynstrum þá fær maður það upp á yfirborðið. Ég var í marga mánuði að vinna þessa sjálfsvinnu sem við erum hvött til og fáum leiðsögn til að gera gegnum netfundi og tölvupósta ef við viljum. Þegar ég var búin með þá vinnu um mitt ár 2025 fann ég að ég vildi gera bók úr þessu. Þá byrjaði ég að skrifa hana og það tók hálft til eitt ár.

Þetta var því mun stærri pakki en að fljúga út og byrja. Ég er mjög ánægð með að hafa gert þetta en þarf ekki að fara aftur. Sumir fara oftar en einu sinni. Ég hef enga þörf fyrir það en mér líður mjög vel. “

Draumey með hluta starfsfólks heilsusetursins.

Töfrandi söngur shamananna

 Þetta er fallegur titill á bók, syngur í skógi. Hvernig kom hann til og ætlar þú að skrifa meira um þessa reynslu þína?

„Titillinn gengur út á að þú heyrir alls konar söng allan sólarhringinn, bæði frá dýrum á jörðu niðri og fuglum,“ segir hún. „Svo syngja shamanarnir fyrir hverja athöfn alveg einstakan icaro-söng og þeir segja að sönginn hafi þeir fengið að gjöf frá ayahuasca-trénu, að hann fari inn í okkur og opni frumurnar til að geri okkur móttækilegri. Sá söngur einn og sér er bara töfrar. Maður fer á flug þegar maður situr í hring á gólfi sexstrends hofs í kolniðamyrkri, þeir í miðjunni, stráþak yfir, opið út og hljóð í dýrum allt í kring. Þessi töfrandi söngur er engu líkur. Þetta er spuni, ekki einhver vísa sem er tilbúin. Tvær konur og tveir karlar syngja og raddirnar fléttast saman í texta á þeirra tungumáli, sem heitir shipibo, en það er lítill ættbálkur þarna lengst inni í skógi. Það hríslast um mann allan tímann sem þetta stendur yfir. Þetta er söngur sem hreyfir við fólki, hann er ólýsanlegur og hann einn hefði verið þess virði að fara þangað fyrir. Þess vegna er titillinn syngur í skógi, allt syngur í skógi, shamanarnir, dýrin, mennirnir. Nei ég hef ekki þörf fyrir að skrifa meira. Ég er búin að gera allt sem mig langaði.“

Allt það nauðsynlegasta á gististaðnum.

Urðarbækurnar þrjár

Draumey segist vera förukona í eðli sínu og ekkert endilega skjóta rótum og setjast að til frambúðar á hverjum stað, en hún hefur lag á að skapa sér notalegt athvarf hvar sem hún er.

„Ég bjó úti í Svíþjóð svo lengi, eða í sautján ár, og vann við þýðingar. Ég fékk þessa tilfinningu í magann, sem ég nefndi áður, þegar ég flutti út og aftur þegar ég flutti heim. Ég ætlaði aldrei að flytja frá Svíþjóð því mér leið svo vel þar. Svo var ég stödd hér heima í heimsókn, Sóldís systir mín var nýlátin og ég hafði eignast tvo litla ömmustráka og ég var farin að koma hingað í heimsókn fjórum til fimm sinnum ári en ætlaði samt ekki að flytja. En þegar ég var hérna í öllu þessu, lífið og dauðinn samtvinnað fann ég koma djúpt upp úr kviðnum. Ég flyt heim! Tveimur vikum seinna var ég búin að selja og flutti heim skömmu síðar. Ég finn einhvern veginn hvað er rétt að gera fyrir mig og þá bara geri ég það.“

Nýjustu bækur Draumeyjar, Varurð, Einurð og Brimurð vöktu mikla athygli og heilluðu marga.

„Varurð er um ferðalag mitt í gegnum óttann og hvernig ég næ að sigrast á honum. Enda þýðir orðið, skynjun, kennd eða verða var við. Í Einurð skrifa ég um son minn sem er einhverfur. Ég skrifaði aftasta ljóðið fyrst. Það heitir Þannig hverfist ég og hlaut 1. verðlaun í ljóðasamkeppninni Júlíana – hátíð sögu og bóka, sem fram fer í Stykkishólmi annað hvert ár. Ég var að leika mér að þessum orðum að hverfast til einveru en ekki samveru. Sonur minn fékk greininguna mjög seint, var þrítugur. Læknirinn hans hringdi í mig frá Svíþjóð og vildi fá að vita allt um bernsku hans. Þá spurði ég: „Á ég að byrja í grunnskóla eða eigum við að fara alla leið niður í leikskóla?“ Hann svaraði: „Við byrjum í móðurkviði.“

Þá rann upp fyrir mér ljós. Auðvitað byrjar allt þar og það samræmist þessum áfallafræðum því nú er verið að tala um að áföll erfist. Ég gekk í gegnum mikið áfall í lífinu einmitt þegar sonur minn varð til og öll meðgangan var mjög erfið. Nú er ég ekki að staðhæfa að þess vegna sé hann einhverfur en áföll hafa djúpstæð áhrif. Brimurð síðasta bókin í Urðarþrennunni var um hann Álf minn, hundinn minn, um það að missa dýr, missa besta vininn. Ég fjalla um síðustu vikurnar og það að þurfa að kveðjast og tímann fyrst eftir að hann er farinn. Hann er ljóðmælandinn allan tímann og hann heldur áfram að elta mig þótt hann sé kominn í aðra vídd.“

Og nú er komin bók um myrkrið í frumskóginum, mynstur sálarinnar og ljósið í lífinu. Það er kominn tími til að þakka Draumeyju fyrir spjallið og halda af stað út rigninguna fyrir utan en það er ekki laust við að einhver skrýtinn frumskógarsöngur ómi í huganum.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.