Tengdar greinar

Kynning

Bílalúgurnar og langur opnunartími okkar sérstaða

Lyfjaval rekur nú fimm bílaapótek. Elsta bílaapótekið var opnað í Hæðasmára árið 2005 og fólk er því farið að þekkja þessa tegund þjónustu. Lyfjaval Vesturlandsvegi var opnað 2020, Lyfjaval Suðurfelli í september 2022, Lyfjaval Reykjanesi í febrúar 2023 og svo Lyfjaval Miklabraut sem opnað var 2. febrúar síðastliðinn.

Öll bjóða þessi apótek upp á hefðbundið úrval af lyfseðilsskyldum lyfjum og allt það helsta af lausasölulyfjum. Að auki er úrval vítamína, bætiefna, hjúkrunarvara og annarrar apóteksvöru. Til viðbótar við bílaapótekin rekur Lyfjaval apótek í Glæsibæ og Urðarhvarfi. Þar er vöruúrval meira en í minni apótekunum.

Á lyfjaval.is getur fólk pantað lyf og aðrar vörur og valið um að sækja í eitthvert apótekanna eða fá sent heim.

Meira næði í lúgunum

Svanur Valgeirsson, framkvæmdastjóri Lyfjavals, segist þakklátur fyrir þær viðtökur sem Lyfjaval hafi fengið, sérstaklega hversu vel viðskiptavinirnir virðist kunna að meta apótek sem bjóði langan opnunartíma og afgreiðslu í gegnum bílalúgur. Það hafi sýnt sig að viðskiptavinirnir kunni vel að meta að þurfa ekki að fara út úr bílnum.

,,Bílalúgurnar eru klárlega okkar sérstaða og það er gaman að finna hvað fólki finnst þetta þægilegt. Við finnum að viðskiptavinir okkar kunna vel að meta að í lúgunum er meira næði en stundum inni í apótekunum og biðin eftir afgreiðslu er einfaldlega styttri þegar þú situr í bílnum. Það er svo auðvitað mjög þægilegt að þurfa ekki að fara úr bílnum, hvort sem þú ert með sofandi barn í bílnum, átt erfitt með gang eftir aðgerðir eða af öðrum ástæðum, nú eða bara vegna þess að þú vilt sitja í hlýjunni meðan þú bíður eftir afgreiðslu. Við finnum að fólk kann að meta þessa þjónustu og því erum við full tilhlökkunar að opna enn fleiri apótek af þessu tagi.“

„Fólk þarf á lyfjum að halda jafnt á nóttu sem degi,“ segir Svanur Valgeirsson framkvæmdastjóri Lyfjavals.

Opið allan sólarhringinn

Svanur segist líka stoltur að geta sagst reka eina apótekið á landinu sem opið er allan sólarhringinn. Lyfjaval í Hæðasmára hefur nú verið opið allan sólarhringinn í eitt ogh hálft  ár og alveg ljóst að þörfin fyrir þessa þjónustu er til staðar.

,,Fólk þarf á lyfjum að halda jafnt á nóttu sem degi og við erum til staðar fyrir þá sem eru á ferðinni á nóttunni eða ef upp koma veikindi þegar aðrir eru með lokað,“ segir Svanur.

Aðspurður hvort opnunartími sé ekki orðinn of langur segir Svanur að vissulega væri þægilegt og ódýrara að vera með minna opið en það henti ekki öllum að koma í apótek milli 9 og 18 virka daga.

,,Við finnum þörfina fyrir löngum opnunartíma og þess vegna er bara alltaf opið í Hæðasmára og Lyfjaval á Vesturlandsvegi og á Miklubraut eru bæði opin alla daga frá 9 til 22 og Reykjanesið 9 til 21. Viðskiptvinurinn þarf á löngum opnunartíma að halda og þá bara sinnum við þeirri þörf með gleði,“ segir Svanur Valgeirsson.

Apótek Lyfjavals eru nú sjö talsins, fimm bílaapótek, í Hæðasmára, við Vesturlandsveg, í Suðurfelli, við Aðaltorg í Reykjanesbæ og svo það nýjasta við Miklubraut sem opnað var 2. febrúar. Að auki eru svo apótek í Glæsibæ og Urðarhvarfi.

Ritstjórn september 12, 2024 12:15