Ritstjórn Lifðu núna barst listi með 10 boðorðum sem heyrnarskertir vildu óska að aðrir hefðu í heiðri, og þótti hann athyglisverður. Hann hljóðar svo:
- Þú skalt ekki tala við mig úr öðru herbergi.
- Þú skalt ekki snúa baki í viðmælanda þinn eða tala við hann þegar hann snýr frá þér.
- Þú skalt ekki tala á meðan þú gengur í burtu.
- Þú skalt ekki líta undan á meðan þú heldur áfram að tala.
- Þú skalt ekki tala ef umhverfishljóð (vatn að renna, útvarp, sjónvarp, samræður) eru jafn hávær og rödd þín.
- Þú skalt ekki byrja að tala fyrr en nþú hefur náð athygli þess heyrnarskerta og sá hinn sami er ekki að lesa, horfa á sjónvarp eða á annan hátt upptekinn.
- Þú skalt ekki tala ef andlit þitt er í skugga eða ósýnilegt viðmælanda þínum.
- Þú skalt ekki halda fyrir munninn á meðan þú talar.
- Þú skalt ekki tala of hratt og EKKI hrópa.
- Þú skalt sýna þolinmæði, stuðning og umhyggju ef heyrnarskertir eiga erfitt með að skilja það sem sagt er.