Að viðhalda þyngdartapi

Þeir sem hafa létt sig, hvort sem um er að ræða nokkur kíló eða fjölda kílóa vita að það getur verið mjög erfitt að viðhalda þyngdartapinu til lengri tíma. Oft hefur það kostað blóð, svita og tár að megra sig og því er sárt að sjá kílóin læðast til baka. Fólki hættir nefnilega til að fara aftur í gamla farið og taka upp fyrri neysluvenjur sem voru orsök þess að það þyngdist. Hér eru nokkur ráð af vefnum thelist.com um hvernig við getum viðhaldið þyndartapinu. Ráðin eru einföld, við þekkjum þau flest en það er gott að rifja þau upp.

Gættu þess að sofa vel

Góður næstursvefn. Líkami og sál endurnýjar sig á meðan við sofum. Ef fólk sefur illa eða lítið vaknar það pirrað og þreytt. Það getur valdið vondum ákvörðunum þegar kemur að fæðuvali. Margir freistast til að fá sér feitan og sætan mat til að reyna að ná upp orku og þá eru kílóin fljót að koma til baka. Því er svo við að bæta að þegar  fólk er þreytt getur sömuleiðis verið erfitt að að koma sér í líkamsrækt. Góður svefn tryggir að skapið verður betra, við eigum auðveldra með að borða fæðu sem nærir líkamann auk þess sem það verður léttara að koma sér í líkamsrækt. Til að tryggja góðan svefn ætti fólk að fara að sofa á sama tíma á hverju kvöldi, slökkva á sjónvarpinu eða tölvunni klukkustund áður en gengið er til náða og nota tímann til að slaka á áður en farið er í rúmið.

Forðist unnin sykur

Á meðan megruninni stóð hafa flestir væntanlega lært að sykraðan mat ætti að forðast eins og heitan eldinn. Munið að of mikil neysla á unnum sykri getur leitt til offitu, sykursýki og hjartasjúkdóma. Fólk ætti því að forðast unnin sykur í hvaða mynd sem hann birtist ef það æltar að viðhalda réttri þyngd. Í stað þess að fá sér kökur eða sælgæti ætti fólk að borða grænmeti, ávexti, gróft korn og annan hreinan mat sem nærir líkamann og gefur orku allan daginn og heldur kílóunum í ákveðinni fjarlægð.

Hættu að hugsa neikvætt um sjálfa þig

Það þarf að huga að andlegu heilsunni ekki síður en þeirri líkamlegu og að nálgast hlutina á jákvæðan hátt. Þrátt fyrir að fólk nái ekki markmiðum sínum á þeim tíma sem það ætlaði ætti það ekki að tala niður til sjálfs sín eða skammast sín. Hvernig við komum fram við okkur sjálf frá degi til dags skiptir megin máli í velgengni okkar, líka á vigtinni. Það skiptir máli hvernig við tölum um mat til dæmis að segja „ég get ekki borðað þetta vegna þess að mér líður hræðilega á eftir“ í stað þess að segja „ég get ekki borðað þetta af því ég er í megrun.“ Prófið þetta nokkrum sinnum og athugið hvort ykkur líður ekki betur þegar þið notið fyrri staðhæfinguna.

Forðist fljótandi kalóríur

Drekkið vatn í staðinn fyrir sæta gosdrykki, ávaxtadrykki og áfengi. Það eru ótrúlega margar næringarsnauðar kalóríur í þessum drykkjum og þær eru fljótar að breytast í fitu. Auk þess sem margir gleyma að taka þær með í reikninginn þegar þeir eru að velta því fyrir sér hvað þeir hafi neytt margra hitaeininga yfir daginn.

Forðist unnin kolvetni

Það eru ekki allir á sama máli þegar kemur að kolvetnum. Eru þau góð fyrir okkur eða slæm, eða hvorutveggja. Líklega hvorutveggja en það skiptir miklu máli hverskonar kolvetni er um að ræða.  Unnin kolvetni eins og í hvítu brauði, pasta, hrísgrjónum og snakki hækka blóðsykurinn snögglega, en og svo lækkar hann hratt aftur og svengdin læðist að fólki. Þetta flökt á blóðsykrinum getur leitt til löngunar í óhollustu og þess að fólk fer að borða stjórnlaust og þá getur nú reynst þrautin þyngri að viðhalda réttri þyngd.  Þetta þýðir hins vegar ekki að við eigum að gefa öll kolvetni upp á bátinn í stað þess að borða unnin kolvetni á fólk að borða gænmeti og ávexti og trefjaríkt korn.

Forðist djúpsteiktan mat

Þetta ætti að vera öllum ljóst en margir eiga til að gleyma þessu. Ekki borða djúpsteikan mat nema endrum og eins. Djúpsteikur matur er næringarsnauður en fullur af fitu. Fæstir sem ætla að viðhalda þyngdartapi geta leyft sér að borða djúpsteiktan mat því hann er það hitaeiningaríkur. Ef fólk ætlar að borða slíka fæðu ætti það einungis að gera það við sérstök tilefni og einungis fáeina munnbita í hvert skipti

Ekki gleyma að hafa gaman

Finndu líkamsrækt sem þér finnst gaman að, hvort sem það er yoga, göngur, sund, þolfimi eða lyftingar eða hvað annað sem fólki finnst skemmtilegt. Það heldur enginn út til lengdar að vera í einhverju sem viðkomandi finnst leiðinlegt og þreytandi. Það sama gildir um matinn kryddið matinn með jurtum og  kryddi sem ykkur líkar. Ef við njótum þess ekki sem við gerum dagsdaglega gefumst við upp.

Haldið áfram að borða morgunmat

Staðhæfingin morgumatur er mikilvægasta máltíð dagins er í fullu gildi. Flestir sem eru í megrun læra að borða morgunmat. Ef þið ætlið að viðhalda þyngdartapinu ættuð þið að halda áfram að borða morgunmat. Það kemur líkamsstarfseminni í gang og kemur í veg fyrir ótímabæra hugnurtilfinningu þegar líður á daginn.

Ekki hætta að hafa áhyggjur af hitaeiningum

Það geta verið skiptar skoðanir á því hver sé besta megrunin, eitt stendur þó óhaggað. Það er að það þarf að fækka þeim hitaeiningum sem við neytum og það þarf að hreyfa sig. Þegar fólk hefur náð markmiðum sínum og er komið í þá þyngd sem það ætlaði sér þýðir lítið að fara að borða það sem fólk borðaði áður. Ef fólk vill viðhalda nýfenginni þyngd er jafnvel enn meiri ástæða til að huga að hitaeiningainntökunni og skammtastærðunum. Haldið áfram að telja hitaeiningar og vigta þann mat sem þið borðið.

Haldið áfram að vikta ykkur

Ef það á að viðhalda þyngdartapinu er nauðsynlegt að halda áfram að vigta sig reglulegulega.  Ef fólk þyngist eins og margir gera til dæmis ef þeir fara í frí þá er gott að grípa í taumana strax. Það þarf ekkert að fara á taugum yfir tveimur til þremur kílóum bara að einhenda sér í að ná vigtinni niður strax aftur. Á meðan fólk var í megrun lærði það hvað virkar og hvað ekki. Rifjið upp hvað virkaði á meðan þið voruð í megrun og notið sömu aðferðirnar aftur. Það er mjög auðvelt að fitna um mörg kíló á stuttum tíma en það getur reynst erfitt að ná þeim af aftur.

 

 

Ritstjórn október 4, 2017 11:26