300 g tagliatelle pasta
200 g ólífur
100 g pekanhnetur, ristaðar
salat, t.d. íssalat
smátómatar, skornir í tvennt
svartur pipar, nýmalaður
Heit hvítlauksblanda:
3-4 hvítlauksrif, skorin í þunnar sneiðar
3-4 msk. ólífuolía
1 rósmarínkvistur, nálar saxaðar
2 msk. sesamfræ
1 bolli brauðmylsna
rifinn börkur af 1 sítrónu
75 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
3. msk. olía af tómötunum, meira ef vill
Steikið hvítlaukssneiðarnar í olíunni við vægan hita eða þar til þær eru orðnar gullinbrúnar, gætið þess að þær brenni ekki. Bætið sesamfræjum og rósmaríni út á pönnuna og steikið svolítið áfram. Bætið brauðmylsnunni á pönnuna og ristið örlítið. Hrærið loks rifna sítrónuberkinum saman við og söxuðum sólþurrkuðu tómötunum saman við og blandið saman við og hrærið sman. Dreypið yfir taliatelle pastað. Þeir sem kjósa að hafa kjöt eða fisk í pastaréttinum og gera hann þannig matarmeiri, geta bætt til dæmis við rækjum eða steiktum kjúklingabitum. Í þetta sinn var kjúklingabitum blandað saman við. Fallegt er að sétja íssalatið á diska, réttinn í miðjuna og bera hann þannig fram.