Einn ástsælasti söngvari landsins fallinn frá

Björgvin Helgi Halldórsson tónlistarmaður er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði 9. apríl síðastliðinn, 74 ára að aldri. Björgvin var fæddur 16. apríl árið 1951. Hann helgaði sig snemma tónlist og var aðeins 18 ára þegar hann valinn poppstjarna ársins en þá söng hann með hljómsveitinni Bendix. Segja má að frægðarsól hans hafi skinið skært alla tíð síðan.

Björgvin var fjölhæfur söngvari og hafði á valdi sínu margar tegundir tónlistar og marga stíla, hann gaf út jólaplötur, barnaplötur, sólóplötur og plötur með þeim fjölmörgu hljómsveitum sem hann söng með á ferlinum, nefna má Flowers, Ævintýri, Brimkló, Ðe lónlí blú bojs og HLH flokknum og árið 1995 fór hann út til Dublin fyrir Íslands hönd og söng lagið Núna í Eurovision söngvakeppninni. Hann starfaði einnig við upptökustjórn, hljómsveitarstjórn, dagskrárgerð, var þulur og samdi lög og texta. Í mörg ár hélt hann glæsilega jólatónleika, Jólagesti Björgvins, sem voru ómissandi hluti af jólahaldi margra landsmanna. Mörg laga hans eru löngu orðin klassísk og allir eiga sér uppáhalds Bjöggalag. Björgvin lætur eftir sig eiginkonu, Ragnheiði B. Reynisdóttur og tvö uppkomin börn. Þau hafa einnig helgað sig tónlist og eru Svala og Hrafn eða Krummi verið áberandi í íslensku tónlistarlífi um árabil. Björgvin var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2011 fyrir framlag sitt til tónlistarinnar.