Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir segir frá efni bókar sinnar Gáfaða dýrið – Í leit að sjálfsþekkingu á Fræðakaffi sem fer fram í Borgarbókasafninu Spönginni, mánudaginn 27. janúar frá kl. 16:30-17:30.
Þar beinir hún athyglinni að dýrinu í okkur, sem er hvorki skynsamt né gáfað. Sé dýrinu afneitað erum við berskjaldaðri fyrir tilhæfulausum ótta sem hefur lag á að trufla samskipti og sjálfsmynd og valda margs háttar vanlíðan. Fjallað verður um ávinning þess að gangast við dýrinu, skilja það og temja.
Sæunn Kjartansdóttir er sjálfstætt starfandi sálgreinir með langa reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks. Hún er einn stofnenda Miðstöðvar foreldra og barna, sem nú tilheyrir Geðheilsumiðstöð barna, sem sérhæfði sig í tengslaeflandi meðferð foreldra og ungbarna.
Aðgangur er ókeypis og heitt kaffi á könnunni.