Konur á miðjum aldri og eldri hafa verið að halsa sér völl í tískuheiminum hin síðari misseri. Nú má sjá fyrirsætur á öllum aldri í blöðum og á netinu. Á Instagram eru eldri konur eins og Renia Jazdzyk, Lyn Slater og Linda Robin með fjölda fylgjenda en þær eiga það sameiginlegt að vera allar komnar yfir fimmtugt. Við tókum saman nokkrar myndir af frægum glæsikvendum af vefnum Who What Wear en þær eiga það sameiginlegt að vera afar smart og sú elsta er á tíræðisaldri.
Lyn Slater