Kettir í hlutverki örlagavalda

Hildur Knútsdóttir er fjölhæfur og góður rithöfundur. Henni er einkar lagið að velja sér nýstárleg og skemmtileg sjónarhorn. Nýjasta bók hennar Gestir, kom út á fyrstu dögum nýs árs en áður hafði hún gefið út þrjár svipaðar nóvellur þar sem kettir verða örlagavaldar í lífi manneskja og svo er einnig í þessari.

Unnur er kona á uppleið, vel menntuð og klár. Dag nokkurn þegar hún kemur heim eftir erfiðan vinnudag hefur svartur og hvítur köttur hreiðrað um sig heima hjá henni. Unnur reynir í fyrstu að losa sig við köttinn og hefur upp á eiganda hans. Það er ung kona að nafni Ásta og þegar læðan Edit fæðir kettling heima hjá Unni biður Ásta hana að leyfa kisu að vera, í það minnsta þar til kettlingurinn hefur opnað augun.

Þær Unnur og Ásta opna sig smám saman hvor gagnvart annarri og Unnur kemst að því að kærasti Ástu er hvorki styðjandi né góður. Sjálf á hún í skrýtnu ástarsambandi og brátt verður óhjákvæmilegt að þær stöllur geri báðar breytingar á lífi sínu.

Áður hafði Hildur sent frá sér nóvellurnar, Myrkrið milli stjarnanna, Urðarhvarf og Möndlu. Þar eins og í Gestum leika kettir stórt hlutverk og hryllingur og ofbeldi liggja í loftinu. Gestir sverja sig í ætt við þær og er jafnspennandi og áhugaverð. Atburðarrásin er hröð en afskaplega vel upp byggð og Hildi tekst að skapa trúverðugar og vel mótaðar persónur. Kötturinn Edit er þar með talin. Þótt þessar bækur séu stuttar og fljótlesnar sitja þær ótrúlega lengi í manni. Það er bara á færi mjög flinkra höfunda að setja saman svona stuttan texta og skapa jafn heildstæða sögu og Hildur er alltaf að ná betri og betri tökum á þessu formi. Gestir er spennandi og eftirminnileg saga.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Ritstjórn janúar 29, 2025 07:00