Leikskáldið og rithöfundurinn Sella Páls hefur lifað viðburðaríku lífi, alltaf með annan fótinn á Íslandi en hefur dvalið löngum stundum í Bandaríkjunum. Hún hefur átt og rekið veitingastaði vestanhafs, framleitt feikivinsæla söngleiki sem gengu árum saman í New York og fleiri borgum, átt netfyrirtæki, verið ráðgjafi hjá SÁÁ, skrifað og sett upp leikrit hér og þar, gert heimildarmynd og nú er verið að leiklesa verk eftir hana í Hannesarholti sem heitir Kvennaráð í leikstjórn Sveins Einarssonar. Verkið verður leiklesið fimmtudaginn 22. febrúar kl. 20 og sunnudaginn 25. febrúar kl. 16.
Leikritið Kvennaráð fjallar um Þorgerði, áttræða ekkju sem var stoð og stytta áhrifamikils manns í fimmtíu ár og nú vill hún breyta til. Samband hennar við einkadótturina, forstjórann Birnu, er þvingað vegna tengdasonarins sem ekkjan grunar um græsku. Er ekkjan fer að taka á eigin málum bregst Birna illa við og ásakar hina víetnömsku heimilishjálp Kim um samsæri. En þegar Birna þarf a glíma við örðugar aðstæður koma móðir hennar og Kim henni á óvart.