Minningar, varðveisla og sjálfsmynd

Fræðakaffi bókasafnanna eru skemmtileg og áhugaverð afþreying. Á mánudag verður fjallað um minningar, varðveislu og sjálfsmynd. Í fréttatilkynningu frá Borgarbókasafninu segir:

Hvað segja hlutirnir sem fylla geymslurnar okkar um okkur sjálf?

Hvernig varðveita bréf, dagbækur og aðrir hlutir fortíðina? Hvernig breytist sú varðveisla með stafrænni tækni?

Gunnþórunn Guðmundsdóttir fjallar í fyrirlestri sínum um tengsl minninga, varðveislu og sjálfsmyndar. Rýnt verður í sjálfsævisögur og endurminningar víða að og kannað hvernig höfundar vinna með efnislega hluti úr fortíð til að skapa frásögn og skoða eigið sjálf. Spurt verður hvernig bréf, dagbækur og aðrir hlutir varðveita fortíðina og hvernig sú varðveisla breytist með stafrænni tækni. Á Fræðakaffi, sem haldið verður í Borgarbókasafninu Spönginni, mánudaginn 30. september kl. 16:30 – 17:30, verður fjallað um þetta efni.

Gunnþórunn Guðmundsdóttir er prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Hennar rannsóknarsvið eru sjálfsævisöguleg skrif, samtímabókmenntir og minnisfræði. Hún hefur gefið út fjölda bóka og greina um þessi efni hér heima og á alþjóðlegum vettvangi.

Ókeypis aðgangur er á Fræðakaffi og öll hjartanlega velkomin.

Ritstjórn september 29, 2024 07:00