Kynning

Rómantík, saga og menning

Hún þykir ein rómantískasta borg Ítalíu og þótt það felist ákveðin þversögn í því að tala um rómantík á stað sem er svo nátengdur einna sorglegustu ástarsögu allra tíma en engu að síður er það svo. Elskendur hafa leiðst um steinlögð strætu Verónu frá því Rómeó og Júlía var fyrst frumsýnt og enn í dag kjósa pör þessa borg til að minna sig á hversu gott það er elska.

En burtséð frá fjölskylduerjum og harmrænum endi á ástum unglinga er eitthvað heillandi við Verónuborg. Gömul stræti, falleg hús, hlýleg kaffihús og andrúmsloft langrar sögu sem dásamlegt er að anda að sér. Ævafornar rústir mannvirkja minna á að þarna hafa menn byggt sér ból og notið gæða landsins frá örófi alda. Þessi borg er ekki risastór og yfirþyrmandi. Hún umfaðmar ferðalanginn og það er auðvelt að rata þarna um.

Eitt af því sem einkennir ítalskar borgir eru torgin. Þessi opnu svæði sem eru skreytt listaverkum og bjóða alla velkomna. Þar er alla jafna iðandi mannlíf og ótal veitingastaðir allt í kring. Þar er gott að slaka á yfir kaffibolla meðan menn plana daginn. Fyrst af öllu er auðvitað að heimsækja rómverska hringleikhúsið. Það er miðsvæðis og því einkar góður viðmiðunarstaður til að leggja af stað út frá og snúa aftur að þegar leiðangri lýkur. Að standa í miðju hringleikahúsi er líka einstök tilfinning. Það er eins og tíminn hverfi og maður standi og njóti augnabliksins meðan aldirnar þjóta hjá. Ímyndunaraflið fer á flug og maður sér fyrir sér skylmingaþræla í blóðugri baráttu fyrir lífi sínu, dramatíska sjónleiki leikna fyrir áhorfendur og söngvara að þenja raddböndin. Enn í dag eru settar upp sýningar á sumrin í þessu ævaforna leikhúsi.

Það er alltaf upplifun að komast í snertingu við svo gömul mannvirki. Þau kveikja aðdáun á hugviti mannsins og færni. Að hugsa sér að þessir steinar hafi verið mótaðir og þeim raðað saman í þetta listaverk af fólki sem ekki hafði stórvirkar vinnuvélar í þjónustu sinni það er einstakt afrek. Að vita að enn þann dag í dag er hringleikahúsið lifandi hluti af daglegu lífi Verónabúa og byggingin notuð gerir þetta enn áhrifameira og áhugaverðara.

Torre dei Lamberti eða Lamberti Tower-turninn

Til að fá sem besta útsýn yfir Verónaborg er kjörið að heimsækja Lamberti-turninn. Hann er 84 m á hæð og býður upp á einstakt útsýni til allra átta.

Museo di Castelvecchio eða Castelvecchio-safnið

Safnið stendur á bökkum Adige-árinnar og staðsetningin ein er þess virði að sjá og njóta. En innan dyra er að finna einstök listaverk og safnið sjálft er í gömlu virki sem er athyglisverð bygging í sjálfu sér. Arkitektinn Carlo Scarpa var fenginn til að endurhanna virkið og gera það að listasafni og honum hefur tekist einstaklega vel til. Hann passaði að varðveita söguna og víða má sjá merki um gamlar væringar á steinveggjunum. Listaverkin sem skreyta veggina gefa svo gestum færi á að njóta, ígrunda og hrífast af mannsandanum eins og hann birtist í tímalausum listaverkum.

Galleria d’Arte Moderna Achille Forti eða Achille Forti-nútímalistasafnið

Þetta safn er í gamalli rómverskri höll Palazzo della Ragione. Hér er að finna ítalska nútímalist og að njóta hennar skapar skemmtilega viðbót við listina í Castelvecchio. 

Styttan af Júlíu í litla portinu við hús Capulet-fjölskyldunnar.

Casa di Giulietta – Húsið hennar Júlíu

Þótt við vitum að Rómeó og Júlía hafi verið skáldsagnapersónur er samt eitthvað svo ánægjulegt að ímynda sér að hér hafi hún búið og út þessar svalir hafi hún stigið til að hlýða ástarorð Rómeós. Þetta þrönga litla port er eitthvað svo notalegt og hentugt fyrir unglingspilt sem bíður með öndina í hálsinum eftir að sjá stúlkunni sinni bregða fyrir bak við gluggatjöldin. Nú og svo skemmir ekki að snerta hægra brjóst styttunnar af Júlíu enda á það að færa þeim sem það gerir lukku í ástamálum. Það hversu núið og skínandi þetta brjóst er að sýnir að margir hafa látið á það reyna hvort þessi trú sé verðskulduð.

Teatro Romano e Museo Archeologico – Rómverska leikhúsið og fornminjasafnið  

Skammt frá miðbænum er Teatro Romano og við hlið þess er fornminjasafnið. Þar er hægt að verja góðum tíma í að reika um fornar rústir og ganga milli sýningagripa fornminjasafnsins og reyna að endurskapa fortíðina í huganum. Hægt er að fara upp á þak safnsins með lyftu og njóta þess að horfa yfir borgina.

Duomo di Verona – dómkirkjan í Veróna

The Duomo di Verona er minni en margar slíkar kirkur víða annars staðar en innandyra er ljúft andrúmsloft kyrrðar og fegurðar. Ekki þarf að borga inn svo það er kjörið að njóta þess að setjast á einn kirkjubekkjanna og íhuga um stund.

Ponte Scaligero – Scaligero-brúin

Það er eitthvað hrífandi við brýr. Þær eru í senn vitnisburður um verksvit mannsins og nauðsynlegar samgönguæðar. Sumar eru svo fallegar að það er ekki hægt annað en fagna því að einhver hafi lagt á sig þá vinnu að hanna þær og byggja. Það á við um Scaligero-brúnna. Að ganga yfir hana er svolítið eins og fara með tímavél aftur til miðalda og dást að smáatriðunum í steinverkinu og listrænum útfærslum í byggingastílnum. Adagio-áin rennur svo með sínum eilífa nið undir fótum ferðalangsins.

Piazza dei Signori – Guðstorgið 

Piazza dei Signori er eitt af þessum einstöku ítölsku torgum. Allt í kring eru hallir frá endurreisnartímanum og þær minna á óhóf og ofgnótt aðalsmanna fyrri tíma. En mikið skelfing eru þessar byggingar glæsilegar og flottar.

Hvar er best að borða í Veróna?

Osteria Sottocosta

Er staðsett í lítilli hliðargötu rétt við Piazza delle Erbe sem er skemmtilegt markaðstorg í miðbænum. Þetta er lítill og hlýlegur staður en maturinn einstaklega góður. Pastað er búið til daglega á staðnum og frábært að prófa einhvern hefðbundinn verónskan pastarétt.

Filippini Caffè Brasserie

Filippini Caffè Brasserie er notalegt kaffihús og kjörið að grípa þar góðan espresso að morgni áður en haldið er út í daginn og kíkja við í eftirmiðdaginn til að hvíla sig á labbinu og fá sér kaffi og með því.

Trattoria al Pompiere

Hér er að finna ekta ítalskan mat eins og hann gerist bestur. Það jafnast ekkert á við þessa einföldu en bragðgóðu eldamennsku.

Locanda 4 Cuochi

Locanda 4 Cuochi nýtur gríðarlegra vinsælda og er einn af þessum stöðum þar sem þarf að panta borð. En það er vel þess virði að gera það. Hægt er að panta tasting menu kokksins eða smakkmatseðil kokksins og þá fá menn marga litla rétti og geta notið þess að smakka marga af hefðbundnum réttum Veróna og nágrennis.

Antica Bottega del Vino

Bottega del Vino er gamall og virtur vínbar þar sem njóta má allra þeirra fjölmörgu víntegunda sem framleiddar eru í nágrenninu. Þjónarnir eru fróðir og vita hvað þeir syngja þegar kemur að því að mæla með vínum fyrir hvern og einn viðskiptavin. Hér má smakka Amarone, Valpolicella, rauðvín og hvítvín allt úr nágrenninu.

Caffè Borsari

Þetta indæla kaffihús er í miðbænum og það er eins og stíga aldir aftur í tímann að ganga þar inn um dyrnar. Innréttingarnar eru glæsilegar og andrúmsloftið svo einstakt að mann langar ekki að fara þaðan.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

https://uu.is/ferd/perlur-gardavatns-og-verona-2/