Sinn er siðurinn í landi hverju

Flest reynum við að vera kurteis þegar við heimsækjum aðrar þjóðir heim. Það eru hins vegar ýmsar óskráðar reglur sem við vitum ekki um og þess vegna getur okkur orðið á í messunni.  Vefurinn Lev nu sem danska ríkisútvarpið heldur úti hafði samband við starfsfólk ferðaskrifstofa og nokkra fararstjóra og spurði hvað væru algengustu mistökin sem danskir ferðamenn gerðu í samskiptum sínum við aðrar þjóðir. Lifðu núna endursagði sumt af því sem fram kom í greininni.

Ítalía: Það er ókurteisi að biðja um tómatsósu með pastanu á veitingastað. Cappocino er drukkið á morgnana en ekki eftir hádegisverð. Þá biður fólk um espresso. Ekki tylla þér á minnisvarða eða á fótstallinn undir styttunum  eða fara í fótabað í gosbrunnum. Það þykir ítölum argasti dónaskapur og sá sem baðar sig í gosbrunni gæti þurft að greiða háa sekt.

Bandaríkin: Ekki segja „fuck“ eða „shit“ í öðru hverju orði. Það þykir bandaríkjamönnum dónalegt. Ekki pissa á almannafæri, gildir jafnt um börn og fullorðna. Ekki vera nakin á ströndinni það þykir ekki við hæfi. Gildir  jafnt um börn og fullorðna.

Búlgaría: Aldrei að afþakka mat eða drykk sem þér er boðið, það þykir innfæddum mjög dónalegt. Búlgarar meina já þegar þeir hrista höfuðið en nei þegar þeir kinka kolli. Ef fólk tapar virðingu innfæddra er mjög erfitt að öðlast hana aftur. Fólk ætti því að temja sér að vera ávallt kurteist í samskiptum sínum við heimamenn.

Tyrkland: Að snýta sér eða stanga úr tönnunum á almannafæri þykir mikil ókurteisi. Ef fólk þarf að gera slíkt á það að fara á afvikinn stað. Að hrista höfuðið þýðir ekki alltaf nei. Ef þú meinar nei líttu upp og kinkaðu kolli um leið og þú  setur í brýrnar og smellir í góm. Ef þú meinar já líttu þá niður og kinkaðu kollinum. Prúttaðu alltaf um verð, það þykir kurteisi. Láttu það hins vegar vera að prútta ef það er ekki ætlunin að kaupa vöruna.

Dubai: Konur eiga að ganga í langerma flíkum og í buxum eða pilsum sem ná niður á kálfa.  Konur mega aldrei sýna sig topplausar á almannafæri. Ekki neyta áfengis og fara síðan út að keyra, fólk hefur enga þolimæði fyrir áfengisneyslu í þessu landi. Ástaratlot eru vægast sagt illa séð á almannafæri.

Spánn: Ekki snerta ávextina og grænmetið hjá grænmetissalanum. Það er dónaskapur. Bentu á þá ávexti eða það grænmeti sem þú ætlar að kaupa og láttu sölumanninn um að setja það í poka fyrir þig.  Stattu alltaf upp fyrir þér eldra fólki i strætisvögnum og lestum, annað er ókurteisi. Ef þú keyrir bíl á Spáni áttu að flauta og öskra á þá sem verða uppvísir af mistökum í umferðinni. Það þykir hið besta mál að láta óánægju sína í ljós.

Japan: Ekki bíta í sundur núðlurnar í núðlusúpunni, það á að sjúga þær upp í sig með tilheyrandi hljóðum. Aldrei að láta prjónana standa í hrísgrjónaskálinni, það boðar dauðsfall. Ekki beita kaldhæðni á Japani, þeir skilja hana sjaldnast.

Tæland: Aldrei að ræða um konungsfjölskylduna á gagnrýninn hátt. Ekki tala of hátt þá heldur fólk að þú hafir ekki stjórn á þér. Fólk verður vandræðalegt í kringum hávaðaseggi. Aldrei að klæðast fatnaði með myndum af fíkniefnum, eins og til að mynda hasslaufi, það er víst ekki við hæfi.

Ritstjórn ágúst 18, 2017 11:29