Nýlega kom út ævisaga Gunnars Inga Gunnarssonar heimilislæknis, Helvítis fantur ertu, en hann starfaði lengst af við heilsugæsluna í Árbæ. Í bókinni sem Guðjón Ingi Eiríksson skrásetur segir Gunnar Ingi frá lífshlaupi sínu, viðburðaríkum ferli sem læknis, hvað hafi mótað hann, sorgum og sigrum. Ferill hans sem læknis er fyrirferðarmikill í bókinni enda snerist hann mikið um að bæði móta heilsugæslu í landinu auk þess sem hann var lengi í stjórn og kjaranefnd Félags íslenskra heimilislækna og tók þar þátt í að bæta kjör og starfsaðstöðu kollega sinna en baráttan var oft hörð.
Ég hef alltaf haft gaman af að segja frá 
Gunnar Ingi Gunnarsson fæddist 1946 og um kveikjuna að ævisögunni segir hann að það hafi nú bara verið hringt í sig og honum fundist að sér bæri skylda til skila af sér því sem hann hafði velt fyrir sér áratugum saman varðandi heilsugæsluna. „Mér fannst ég verða að koma því einhvern veginn á framfæri. Vonandi hefur eitthvað af því tekist í bókinni. Ég var líka mjög montinn af því hvernig til tókst í Árbænum. Ég hef nú alltaf haft gaman af því að segja frá, en að ræða við mig um ævi mína kostar það að fara inn á mjög erfiða þætti en líka aðra kómískari,“ segir Gunnar Ingi en hann hefur upplifað margt, bæði í læknisstörfum og í einkalífinu. Hann segir frá því hvernig það atvikaðist að hann fór í læknisfræði í Svíþjóð, frá árunum úti, veikindum fyrstu konu sinnar, störfum víða og skondnum og alvarlegri hlutum í starfi, baráttunni fyrir bættum hag heilsugæslulækna og skjólstæðinga og þegar hann var farinn að halla sé of mikið að flöskunni eftir að starfsævinni lauk en fann leiðina til baka, hvað mótaði hann og fleira.
Árin í Svíþjóð
„Ég fór til Gautaborgar í læknanám en það atvikaðist þannig að frændi minn fékk bréf þar sem honum var boðið að sækja um læknanám í Svíþjóð. Ég rak augun í bréfið þegar hann var ekki heima og stalst til að taka umslagið upp úr póstkassanum og skoða innihaldið. Ég fór beina leið með umsóknina upp í Háskóla, tók ljósrit af henni og læddist um eins og þjófur um nótt áður en ég hélt aftur heim, kom umslaginu fyrir í póstkassanum og fyllti svo út ljósritið af umsókninni og sendi. Stuttu seinna fékk ég tilkynningu um að mér stæði til boða að hefja læknanám við Háskólann í Gautaborg og þannig vildi það til að ég varð læknir,“ segir hann sposkur.
Gunnar hélt svo til Gautaborgar með konu og dætur en dvölin reyndist oft erfið. „Ég hef sjálfur alltaf verið við góða heilsu og mín fjölskylda en það er þó undantekning á. Þegar ég fór í framhaldsnámið í heimilislækningum með fyrstu konunni minni, Ragnhildi, varð hún skyndilega alvarlega veik. Það var áfall og mjög erfitt, sérstaklega þegar aðstæður voru þannig að maður bjó fjærri fjölskyldu og vinum og var þar fyrir utan í námi. Þessi veikindi komu fram í setningu sem hún hrópaði upp þegar við vorum einhvern tíma með gesti. Ég var á salerninu og þá bankar hún skyndilega með hörku á hurðina og spyr hvers vegna ég þurfi alltaf að fara á klósettið þegar stúlkan meiði sig. Þarna kom vel í ljós að ekki var allt með felldu hjá henni. Ragnhildur var hjúkrunarfræðingur og átti í erfiðleikum með að fá vinnu þarna úti. Við þurftum svo að fara til Íslands tvisvar á námstímanum vegna veikinda hennar. Ég tel að ég hafi þroskast og lært mikið á þessum tíma úti.“
Gunnar Ingi var í sveit á sumrin sem krakki eins og þá tíðkaðist og vann seinna sumarvinnu sem átti eftir að koma sér vel þegar hann var í náminu og veikindi Ragnhildar ágerðust. „Ég var í sveit á sumrin sem strákur og síðar í sumarvinnu hjá Íslenskum aðalverktökum en pabbi var forstjóri Íslenskra aðalverktaka á Keflavíkurflugvelli. Ég vann fyrst sem smiður en seinna sem rafvirki. Ég fór í gegnum þetta tímabil úti þannig að þegar ég var í klípu með veikindi konu minnar þá gat ég tekið mér hlé frá námi og fengið vinnu þar sem ég nýtti þá reynslu sem ég hefði aflað mér á sumrin. Ég vann á verkstæði og vann með mönnum sem voru útskrifaðir í sínu fagi. Ég lærði enn meira af þessum mönnum og þannig gekk þetta upp.“
Leiðir skilja
„Ragnhildur var mjög falleg, skemmtileg og vel gefin kona en veikindi hennar urðu verri og verri og leiðir skildi. Við fórum heim og vinkonur hennar héldu fund, töluðu við mig í framhaldinu og sögðu að það kæmi ekki til greina að ég tæki dæturnar af henni. Ég svaraði því til að ef hún gæti skapað viðunnandi líf fyrir þær þá væri ég ekki með neinar athugasemdir. Ég átti eftir að klára námið og það væri fagnaðarefni ef það færi vel um stelpurnar þrjár hjá henni. Ég fór út aftur og hún varð eftir heim með dæturnar og var með aðstoð.“
Gunnar flutti heim frá Svíþjóð eftir útskrift 1976 og hóf störf á heilsugæslunni í Árbæ. „Það var fyrsta heilsugæslan hér. Ég byrjaði í afleysingum en fékk svo fullt starf. Ég var heilsugæslulæknir númer 2 í Reykjavík. Einn daginn þegar ég var að vinna þá hringir Ragnhildur og segir: Hvað heldurðu, Gunni, heldurðu ekki að ég sé komin með krabbamein. Hægra brjóstið á mér er hræðilegt, það var farið að lykta en ég faldi þetta. Svo fóru vinkonurnar að taka eftir lyktinni og ég var stoppuð af. Svo heldur hún áfram og segir nokkuð sem er dæmi um þann húmor sem hún hafði. Hún hvíslar í símann: Nú eru læknarnir orðnir svo flinkir að þeir færa rasskinnarnar upp að framan. Hún dróg úr spennunni á sig með þessu. Ragnhildur lést úr krabbameini ung, aðeins rétt rúmlega fimmtug.“
Barátta heilsugæslulækna
Gunnar Ingi stóð framarlega í baráttu heilsugæslulækna fyrir bættum, sambærilegum kjörum á við aðra sérfræðinga í læknastétt. „Ég tók þátt í mörgu á mínum ferli. Þegar ég kom heim þá var þessi heilsugæslustöð í Árbænum á fyrstu hæð í blokk, húsnæðið var svo skemmt að fólk gat ekki hugsað sér að fara inn í læknisherbergið. Við vorum fyrst tveir og svo bættist sá þriðji sem fann bylgjur undir borðinu sem hann sat við. Svo hófst mikill prósess þar sem voru fengnir flinkir menn, arkitekt og tæknimenn, og ég var með í hópnum, við að hanna fyrstu heilsugæslustöðina sem var í Árbæ, aðeins neðar en heilsugæslan er nú. Þetta var sérstaklega skemmtilegt því að þar var blandað saman skynsamlegu skipulagi og góðri aðstöðu fyrir lækna til þess að sinna sjúklingum. Það tók nokkur ár að byggja þetta upp og þarna fékk ég tækifæri til að vera læknir og nokkurs konar verkstjóri yfir starfinu. Auðvitað hef ég enga menntun í þessum hlutum en ég hafði unnið mikið í byggingarmálum og öðlast bæði innsýn í byggingar, nýtingu þeirra og hlutverk.“
þarf meira en fjóra veggi og þak í heilsugæslunni
„Það sem er rosalega mikilvægt í heilsugæslu er að hafa aðila sem tryggir að helstu atriði öryggis og vellíðanar í húsnæðinu séu til staðar. Það þarf meira en að byggja bara fjóra veggi og þak. Þetta snýr að rými og í læknisfræðinni er það líka spurning um friðhelgi, til dæmis að þurfa ekki að fækka fötum á röngum stöðum. Ég kom því til dæmis til leiðar að því var breytt að hafa lokað rými inni á heilsugæslustöð til að loka sig af áður en læknir skoðar þig. Ég hafði áttað mig á að það rými var notað mjög lítið svo ég spurði hönnuðinn hvort það væri ekki sniðugt að hafa bara tjöld inni á stofnum þar sem væri rennibraut í loftinu og hægt að opna alveg og loka. Þetta þykir sjálfsagt í dag en á þeim tíma voru byggð sérstök skoðunarherbergi. Ég var mjög ánægður með að þetta gekk eftir því það sparar mikið pláss og er til hægðarauka,“ segir Gunnar.
Hann segir ýmislegt hafa breyst í heilsugæslunni. „Það er mjög mikilvægt meðal annars að fólk hafi sama lækninn sem fylgir því eftir en því miður þá má segja að það sé mikil hætta á því í dag að það ekki hægt vegna hraðans og verkefna. Í raun má segja að þetta sé allt öðruvísi tilvera í dag. Ég lagði mjög mikið upp úr því að verða eiginlega bara trúnaðarvinur sem læknir þannig að fólkið fann að það gat rætt þau vandamál sem það hafði áhuga á að ræða og ég leyfði því að finna að ég tæki þátt í slíku af alvöru. Það var ekki einhver gervigreind heldur góð mannleg samskipti. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Það tók svolítinn tíma að ná þessu sambandi en það náðist í flestöllum tilfellum þannig að það ríkti 100% traust. Það var ótrúlegt að upplifa og það gerðist fyrir áhuga hvers læknis.“
Viltu ekki bara klára leikinn, vinur

Alvöru vinátta
Gunnar Ingi segist muna sögu sem sýni hve náin þessi tengsl gátu verið: „Þegar ég var að hætta þá var allt í einu búið að setja svaka tölvu á miklu stærra borð en ég hafði verið með áður. Ég hafði alltaf passað mig á því að þegar ég þurfti að gá að einhverju eða fara til hliðar og slíta sambandið við sjúklinginn, að það væri í stutta stund og af skiljanlegum ástæðum, að sjúklingurinn hefði ekki á tilfinningunni að ég væri að flýja.
Einn daginn kemur gömul kona sem ég þekki vel og var afskaplega hress en þegar hún sest þá kemur í ljós að skermurinn er það stór að ég sé hana varla svo ég renni mér til hliðar og segi: þú verður að afsaka það, væna mín, að nú er kominn þessi skermur en ég skal lofa þér að ég læt hann ekkert trufla okkar samskipti. Þú bara segir mér frá og við höldum áfram sömu samskiptum og áður. Þá svarar hún að bragði: En viltu ekki bara klára leikinn, vinur? segir Gunnar og hlær. „Hún hélt að ég hefði verið í tölvuleik.“
Margt sem langur ferill skilur eftir
Á löngum ferli kann Gunnar Ingi margar sögur sem koma fram í bókinni en hann fór út á land eftir að hefðbundnum starfsaldri lauk og sinnti þar læknisstöfum. „Eftir að hafa verið lengi á sama stað og tekið þátt í að byggja upp þjónustukerfi og vinna við það og hætta þegar ég náði aldri, þá fór ég, vegna tilmæla og beiðni landlæknis, hingað og þangað um landið með konunni minni sem er hjúkrunarfræðingur. Ég var að leysa af og landlæknir vonaðist til að fá í lokin yfirlit um stöðu mála, frá Austfjörðum að Vestfjörðum. Á landsbyggðinni getur maður lent í erfiðum krísum vegna fjarlægða og aðstæðna sem eru ekki mögulegar hér á höfuðborgarsvæðinu. Einu sinni sat ég á heilsugæslustöð úti á landi og borðaði morgunmat með konunni minni þegar hringt var úr sveitinni en þar hafði maður farið í hjartastopp. Það var reynt að hnoða manninn meðan við keyrðum þangað og síðan tók ég við. Svo var mér sagt að það væri búið að hringja eftir sjúkrabíl og einnig á flugvél. Maðurinn var svo fluttur til Akureyrar. Ég hnoðaði manninn í tvær klukkustundir en hann lifði og sendi mér seinna bréf og sagðist hafa verið marinn í gegn. Þetta voru átök en allt fór vel.“
Það hefur skapast fjarlægð milli heimilislæknis og skjólstæðingsins
Hvernig finnst þér heilsugæslan hafa þróast? „Það sem ég get sagt er að bæði í heilsugæslunni og á sjúkrahúsum skiptir mjög miklu máli fyrir stjórnendur að gera hlutina rétt og skipuleggja vel. Það er svo margt sem hefur breyst á þessum árum en það alvarlegasta sem hefur gerst í heilsugæslunni er að það hefur skapast fjarlægð milli heimilislæknisins og skjólstæðingsins. Tíminn og önnur atriði hafa haft þar of mikil áhrif. Mér hefur þótt erfitt að sjá þetta fara á verri veg. Auðvitað er gott samband á milli flestra heimilislækna og skjólstæðinga en,“ segir hann með áherslu, „það eru ekki allir með heimilislækni. Það er mikið álag á heilsugæslunni og það er spurning hvort læknirinn fái tíma og tækifæri til að bjóða upp á það besta sem hann getur. Samskiptin, og samtalið, eru svo verðmæt og mikilvæg. Þættir eins og ráðgjöf sem læknirinn kemur með getur verið svolítið erfið í framkvæmd en ef lækninum tekst vel til þá getur skapast sannfæring hjá skjólstæðingnum. Þetta er spurning um að vita hvernig maður fer að.
Það er engin spurning að frá því að ég var að vinna á heilsugæslunni þá hefur tíminn raskast, hann er styttri. Þetta sambandi milli heimilislæknis og skjólstæðings er bundið mun meiri vandkvæðum í dag, vegna utanaðkomandi þátta. Ég vil ekki halda því fram að gæðin hafi hrunið, ég held hins vegar að það sé ekki jafn auðvelt fyrir lækni að sinna vel þessum þáttum og koma með allt það sem hann hefur þekkingu til og vill geta gert, því kerfið býður ekki upp á það, meðal annars vegna þess flýtis sem er gerð krafa um nú með vaxandi álagi. Við erum ekki ein um þessi vandamál, þetta er á heimsvísu því eftirspurnin eftir þjónustu eykst stöðugt. Frá mínu sjónarmiði er ekkert sem hefur komist jafn nálægt því að vera eins verðugt, gefandi og styrkjandi í starfi eins og að fá vel skipulagt kerfi með góðu utanumhaldi. Ekkert hefur gefið mér meira, ekkert. Til þess að þetta getið orðið þá þarf réttar kringumstæður læknis, hjúkrunarfræðings og þess sem kemur á stofu.“
Baráttu fyrir góðu heilbrigðiskerfi þarf að viðurkenna
Gunnar Ingi segir að nauðsynlegt sé að tryggja heilbrigðisstarfsfólki góðar kringumstæður. „Það er þetta persónulega, tilfinningalega og mannlega sem við höfum í okkur sem er í senn svo flókið en á sama tíma yndislegt og við verðum að geta haft bæði efni á, skynsemi og þekkingu til þess að skipuleggja almennilegar kringumstæður utan um fólkið bæði þegar það er gamalt og líka þegar það er ungt, þetta þarf allt að ganga upp. Við höfum til þess færa einstaklinga og það þarf að tryggja þeim aðstöðu til að sinna sínu og til að fá að gera sitt besta. Það að halda heilbrigðiskerfinu virku og gangandi og það verður alltaf ákveðin barátta. Sú barátta verður að vera viðurkennd og samþykkt en við þurum að hafa fólk sem hefur þjálfað sig í og menntað sig í að standa að þessu skipulagi sem þarf að vera. Ef okkur tekst það þá tekst okkur að gera vel.“
Ragnheiður Linnet blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna.







