Ævisögur er heillandi bókmenntagrein í hugum margra. Hún veitir innsýn í líf fólks, tilfinningar þess, sorgir og sigra. Þær eru skemmtilegar aflestrar og merkileg grein bókmennta. Því eldri sem menn verða þess meiri ánægju hafa þeir yfirleitt af að lesa þær.
Flestir menn hafa þörf fyrir að skilja samtíma sinn, átta sig á hvað réði ákveðnum hugmyndum, stefnum og straumum á hverjum tíma. Það hjálpar okkur að sættast við eigin þátt í því er fram fór. Að segja frá ævi sinni í viðtalsbók er ein leið til þess eða að skrásetja minningar sínar.
Læknir í lífsins straumi
Í viðtalsbókinni Helvítis fantur ertu! skráir Guðjón Ingi Eiríksson lífshlaup Gunnars Inga Gunnarssonar heilsugæslulæknis. Þar er farið yfir uppvöxt, námsár og starfsferil lækninsins og erfið umskipti yfir í eftirlaunalífið. Þetta er fjörlega skrifuð bók og Gunnar Ingi segir skemmtilega frá. Það er virkilega áhugavert að fá innsýn inn í líf heilsugæslulæknis og í raun brot af sögu læknisstarfsins og hvernig það hefur þróast hér á landi. Vegna þess hve víða Gunnar Ingi hefur komið við gefur saga hans heildstæða mynd af lífi læknisins. Hann var yfirlæknir á heilsugæslustöðinni í Árbæ en hafði áður unnið víða úti á landi, á slysadeild og víða úti á landi bæði meðan hann var í námi og eftir að hann hætti formlega störfum í Árbæ.
Gunnar Ingi var lengi í stjórn og kjaranefnd í Félagi íslenskra heimilislækna og tók þar þátt í að bæta kjör og starfsaðstöðu sína og kollega sinna. Helvítis fantur ertu! er saga athafnasams manns sem hefur víða lagt hönd á plóg bæði í starfi, félagsstörfum og tómstundum. Hér ber margt forvitnilegt og skemmtilegt á góma en einnig sorgir og erfiðleikar.
Uppvöxtur á Eskifirði
Þorsteinn Skúlason skrifar um æsku sína og uppvöxt á Eskifirði í bókinni Endurminningar frá Eskifirði. Hér er brugðið upp skemmtilegum myndum af mannlífi og tíðaranda í smábæ úti á landi á seinni helmingi síðustu aldar. Þorsteinn er fæddur árið 1940 og þótt 19 ár skilji hann og undirritaða að í aldri kannast hún við margt frá sinni sumardvöl í æsku á Vopnafirði.
Það er athyglisvert hversu sjálfum sér nægir þessir litlu bæjir á Austfjörðum voru. Þarna fékkst allt til alls í kaupfélaginu, þorpsbúar og bændur hjálpuðust að og lífið var litríkt og gott. Að sumu leyti er hægt að horfa með eftirsjá til þess anda er þá ríkti.
Þorsteinn skrifar lipran og góða texta og þarna er að finna fjölbreyttar og góðar upplýsingar um Eskifjörð og Eskfirðinga. Það er fengur að svona bók fyrir þá sem búa á staðnum í dag og hún gefur tækifæri til að rifja upp gamla tíma og kynslóðir sem eru gengnar. Bókin er prýdd miklum fjölda mynda og það eykur enn á virði hennar.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







