Kjötsúpa er réttur sem flestir Íslendingar kannast við og þykir góð. Margir eiga uppskrift að einni slíkri sem hefur erfst kynslóð fram af kynslóð. Með yngra fólki koma nýir straumar en fæstir vilja umbylta gömlu uppskriftinni frá mömmu eða ömmu. Þó hafa margir gaman af að bæta nýstárlegu hráefni við hefðbundnu súpuna og viti menn, sú gamla og góða varð bara enn betri. Hér er gömul uppskrift sem ungur maður prófaði að setja bæði hvítlauk og engifer út í sem smakkaðist glimrandi vel.
700-800 g súpukjöt, skorið í munnstóra bita
3 l vatn
4 grænmetisteningar
2-3 hvítlauksrif, söxuð
3 sm engifer, afhýtt og skorið í sneiðar
2 lárviðarlauf
200 g gulrætur, hreinsaðar og skornar í litla bita
2 meðalstórar rófur, flysjaðar og skornar í litla bita
½ spergilkálshöfuð, skorið í bita
5 msk. súpujurtir
1-2 msk. hrísgrjón
salt og svört piparkorn
Skerið kjötið í litla bita, látið í pott og hellið köldu vatni yfir. Hitið rólega að suðu og fleytið froðu ofan af. Endurtakið nokkrum sinnum. Skerið grænmetið í litla bita og bætið út í. Bætið kryddi út í og látið súpuna malla undir loki í lágmark 30 míknútur. Bætið grænmetisteningum, súpujurtum og hrísgrjónum saman við og leyfið súpunni að malla í a.m.k. 30 mínútur til viðbótar. Berið hana fram með súrdeigsbrauði og þeyttu smjöri.
Þeytt smjör er ótrúlega gott á brauðið:
Bræðið smjör þar til það er farið að brúnast aðeins. Þeytið jafnmiklu magni af óbræddu smjöri og bræddu saman og berið fram með brauðinu.







