Margbrotin verk sem spegla flóru Íslands

Listakonan Laureen Burlat opnar áhugaverða sýningu á Borgarbókasafninu Spönginni laugardaginn 7. febrúar.

Jarðtenging (Grounded) er yfirskrift nýrrar sýningar á útsaumsmyndum eftir listakonuna Laureen Burlat á Borgarbókasafninu Spönginni.

Laureen er bæði listakona og umhverfisfræðingur að mennt og segir hún að búseta á Íslandi hafi haft stórfelld áhrif á störf sín. Eftir rúman áratug af allskyns listatilraunum og umhverfistengdum rannsóknum hafi hún farið að einblína á útsaum. Meðal annars vegna þess að á tímum þar sem allt þarf að gerast strax skeri útsaumurinn sig úr.

„Ég er ótrúlega spennt að deila minni persónulegu túlkun á íslenskri flóru í gegnum textíl, þar sem spor og þræðir þekja striga líkt og gróður,“  segir Laureen, sem er auðheyrilega spennt fyrir opnuninni.

Jarðtenging er fyrsta sýning Laureen og afrakstur fjögurra ára vinnu. Verkin eru aldrei plönuð fram í tímann að sögn listakonunnar heldur verða til „í gegnum árstíðabundnar minningar sem leiða til sköpunar alls kyns litasamsetninga, áferðar og mynsturs“, sem hún finnur í náttúrunni.

Öll vinnan fór fram í Hveragerði þar sem Laureen er búsett en óhætt er að segja að með einu spori í einu hafi listakonan náð að skapa margbrotin verk sem spegla flóru Íslands.

Sýningaropnun verður laugardaginn 7. febrúar kl 13:00.

Nánar um sýninguna á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is