Fjölhæf og mögnuð leikkona kveður sviðið

Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona er fallin frá áttatíu og sex ára að aldri. Hún lést í gær á þjóðhátíðardaginn. Hún var einkar fjölhæf leikkona og ástríðufullur listamaður sem meðal annars mátti marka að því að henni fannst ótækt að hætta að vinna sjötug. Hún vildi að fólk fengi að vera virkt í þjóðfélaginu eins og lengi og það hefði hug og dug til og sagði í viðtali við Fréttablaðið að það væri ótækt að fólk þyrfti að borga með sér vildi það vinna eftir að hefðbundnum eftirlaunaaldri væri náð.

Margrét var fædd þann 4. maí árið 1940 á Brúarlandi í Mosfellssveit. Hún hóf nám í Leiklistarskóla Þjóðleikhússin útskrifaðist þaðan árið 1967. Starfsferilinn hóf hún hjá Þjóðleikhúsinu en réði sig til Leikfélags Reykjavíkur árið 1972. Fyrsta hlutverk hennar á sviðinu í Iðnó var Ugla í Atómstöðinni en Margrét Helga átti eftir að leika mörg fleiri hlutverk í verkum eftir Halldór Laxness en mörgum er mjög minnistæð túlkun hennar á  Sigurlínu í Sölku Völku.

Margrét Helga var í hópi þeirra leikara er gáfu vinnu sína ár eftir ár í eftirminnilegum miðnætursýningum í Austurbæjarbíói meðan leikarar söfnuðu fyrir byggingu nýs Borgarleikhúss. Leikhúsunnendur standa í mikilli þakkarskuld við hana og félaga hennar því án þeirra ættum við ekki Borgarleikhúsið. Of langt mál væri að telja upp öll hlutverk Margrétar Helgu en nefna má Diddu í Saumastofunni, söngleik eftir Kjartan Ragnarsson sem hann leikstýrði sjálfur, móðurina í Degi vonar í leikstjórn Stefáns Baldurssonar, Gréta í Öndvegiskonum í leikstjórn Viðars Eggertssonar, Sigrún Ástrós í einleiknum sem hún barðist fyrir að fá settan upp.  Margrét Helga fékk sjálf þýðanda að verkinu og Hönnu Maríu Karlsdóttur til að leikstýra því.  Hún lék einnig í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og var ógleymanleg í hlutverki Lóu í sjónvarpsþáttunum Föngum og þá ekki síður sem Bjarnfreður í kvikmyndinni Bjarnfreðarson.

Margrét Helga fékk Grímuverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Violet Weston í Fjölskyldunni. Síðasta hlutverkið var Marína í Vanja frændi í  Borgarleikhúsinu en Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrði þeirri sýningu.

Margrét Helga var einstaklega fjölhæf leikkona og líkt og sjá má á þessari stuttu yfirferð yfir ferilinn var hún jafnvíg á dramtík, gamanleik og söng – og dansleikrit. Hún lék yfir 200 hlutverk á sviði, í útvarpi, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Hún hlaut Edduverðlaunin í tvígang; árið 1999 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Englar alheimsins, og árið 2012 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Eldfjall. En auk þeirra má nefna að Margrét Helga lék m.a. í Fúsa, Börnum, Kristinhaldi undir jökli, Stellu í orlofi og Jóni Oddi og Jóni Bjarna.

Árið 2024 hlaut Margrét Helga heiðursverðlaun Grímunnar þar sem henni voru þökkuð framúrskarandi og ómetanleg störf í þágu íslenskrar leiklistar í meira en hálfa öld.
Hún var heiðursfélagi í Leikfélagi Reykjavíkur frá árinu 2017 og Bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2004.

Margét Helga eignaðist þrjú börn, Guðmund Örn Flosason (d.15.02. 2022), Jakobínu Flosadóttir og Val Jóhann Vífilsson.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.