Dauðakippir er tuttugasta og sjötta bókin um Jack Reacher og sú fjórða sem þeir bræður, Lee og Andrew Child skrifar saman. Flestir aðdáendur eru sammála um að þeir bræður falli ákaflega vel saman hvað varðar stíl og ekki hægt að greina neina hnökra á flæðinu í bókunum. Að venju snýst sagan um vandræði annarra sem Jack Reacher þvælist í ferðum sínum um Bandaríkin og að venju sér hann til þess að réttlætið sigri að lokum.
Lee Child heitir réttu nafni James Dover Grant og bróðir hans Andrew Grant. Þeir eru breskir en Andrew er búsettur í Bandaríkjunum. Andrew er vinsæll glæpasagnahöfundur og þekktur fyrir bækur sínar um fyrrum hermanninn Paul McCrath og fyrrum herlögreglumanninn David Trevellyan svo þeir bræður hafa svo sem róið á sömu mið og þess vegna stíllinn svo keimlíkur. En það einkennir þá bræður helst að vera fáorðir en gagnorðir og lunknir við að byggja upp spennu. Þeir hafa ekki fyrir því að eyða tíma lesenda í ljóðrænar lýsingar á mönnum og umhverfi. Hér er allt skýrt og skorinort og enginn undiralda í textanum. Fléttan er hins vegar ævinlega flókin og alls konar krókar og bugður sem bíða aðalpersónanna áður málin eru til lykta leidd. Ekkert undarlegt að Jack Reacher eigi sér aðdáendur um allan heim og sjónvarpsþættir um hann með Alan Ritchson í aðalhlutverki njóta mikilla vinsælda.
Alan passar vel í hlutverkið enda yfir tveir metrar á hæð og vöðvastæltur rétt eins Jack Reacher er lýst í bókunum. En þrátt fyrir að aðalpersónan sé harðsoðinn kappi og bækurnar formúlukenndar ná þeir bræður að gera Jack mannlegan og skemmtilegan. Hann er ævinlega tilbúinn að hjálpa og stekkur inn í aðstæður hvar sem hann mætir einhverjum sem á um sárt að binda. Hann er líka tryggur vinum sínum og vill gera heiminn betri sérstaklega fyrir fyrrum hermenn sem margir hverjir eiga erfitt uppdráttar eftir að hafa gengt herþjónustu. Það er líka skemmtilegur húmor í þessum bókum og Dauðakippir er engin undantekning þar frá. Svo ef einhvern vantar fína bók að lesa í sumarfríinu bregst Jack Reacher ekki væntingum.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







