Söguþættir landpóstanna er safn frásagna landpósta fyrri tíðar en það var Helgi Valtýsson sem safnaði þeim saman. Upphaflega var þetta ritröð og komu út þrjár bækur á árunum 1942-1951. Þeir Guðjón Ragnar Jónasson og Þorsteinn Þórhallsson fóru í gegnum öll bindin og völdu úr fimmtán frásagnarþætti sem komu út á einni bók nú fyrir jólin.
Það var ábyrgðarstarf hér áður að taka að sér póstútburð í sveitum landsins og landpóstar urðu þekktir menn fyrir samviskusemi sína og skyldurækni þegar þeir brutust heim á bæi í vetrarveðrum og vondri færð til að koma póstinum til skila. Þessir menn nutu einnig virðingar fyrir hreysti sína og ósérhlífni. Pósturinn var þá eina leiðin til að koma fréttum til sinna nánustu og iðulega voru langþráð bréf í pokum landpóstanna. Þess vegna var það oft hátíðleg stund þegar þeir komu heim að bæjunum og tilkynntu komu sína með því að blása í póstlúðurinn.
Fyrri bækurnar nutu mikilla vinsælda um áratuga skeið og lengi verið eftirsóttar hjá fornbókasölum. Margar sögurnar úr bókunum urðu landsþekktar og listamönnum innblástur að alls konar verkum. Nútímamönnum er án efa illskiljanleg skylduræknin og samlíðanin með öðrum sem rak landpóstana áfram. Þetta hefur verið ákaflega krefjandi starf og mikil hætta á kulnun í sinni allra verstu mynd. Helgi var einstaklega ritfær og náði að draga upp einstæða mynd af þessu starfi og um leið fær lesandinn innsýn inn í samfélag þessa tíma, Ísland á nítjándu öld og í byrjun þeirrar tuttugustu. Válynd veður, vondar samgöngur, lítil þægindi og náttúran ávallt með yfirhöndina, óvægin og ófyrirsjáanleg.
Þetta er vönduð bók og öllum hollt að líta til baka og átta sig á hversu stutt er í raun síðan fólk hér á landi bjó við einangrun og ólýsanlega erfiðleika. Mennirnir sem gengdu starfi landpóstanna hafa án efa verið nánast ofurmenni hvað varðar seiglu og úthald. Söguþættir landapóstanna eru magnaðar frásagnir, áhrifamiklar og eftirminnilegar.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







