Eins og að missa alla lyst á lífinu

Orðið heilaþoka varð allt í einu á allra vörum í kjölfar Covid-faraldursins. Fram að því hafði helst verið talað um eitthvað viðlíka í sambandi við konur með börn á brjósti og talað um brjóstaþoku. En hvað er þessi heilaþoka, hvernig leikur hún besta fólk og er hún alltaf til marks um hnignandi andlega getu?

Auglýsing

Allir hafa upplifað heilaþoku. Hver kannast ekki við að ganga inn í herbergi og líta í kringum sig undrandi og velta fyrir sér; hvað er ég að gera hér? Hvað ætlaði ég að sækja? Nú eða vera í miðjum samræðum og missa allt í einu þráðinn, muna ekki einfalt orð sem maður notar daglega eða segja eitthvað allt annað en maður ætlaði sér. Allt eru þetta einkenni heilaþoku.

Fyrir utan ofangreint, hvernig lýsir heilaþoka sér? Flestir segja að hugsunin verði hægari. Það verður erfiðara að halda einbeitingu og athygli á einn hlut í einu. Margir segja að þeir lesi og lesi en ekkert af efninu skili sér til heilans. Þetta gerist til að mynda mjög oft þegar fólk er í prófum og undir álagi vegna þess. Gleymska sem hefur áhrif á daglegt líf eins og gleyma lyklunum þegar farið er út eða þurfa tvisvar eða þrisvar að fara inn aftur til að sækja húfu, hanska, síma eða annað sem viðkomandi ætlaði að taka með sér. Skammtímaminnið er farið segja sumir. Þeir eiga erfitt með að muna hvað þeir gerðu í morgun eða hvort það var í dag eða í gærmorgun sem þetta eða hitt gerðist. Tungumálið fer að vefjast fyrir einhverjum og þeir þurfa að leita að orðum, rugla saman algengum orðum eða missa þráðinn í samræðum. Gleymska á viðburði, merkisdaga eða eitthvað sem hefur verið skipulagt fram í tímann. Hluti þeirra sem glíma við heilaþoku tala einnig um að eiga erfitt með að taka ákvarðanir, læra nýja hluti, missa hluti auðveldlega út úr höndunum og reka sig gjarnan utan í hurðir og húsgögn eins rýmisgreindin sé skert. Auk alls þessa fylgir oft andlega þreyta. Manneskja með heilaþoku er orkulaus og áhugalaus. „Það er eins og að maður hafi misst alla lyst á lífinu,“ sagði einn þeirra er tók þátt í rannsókn á afleiðingum langtíma-Covid þegar hann var að lýsa heilaþoku.

Algengara hjá konum

Heilaþoka er mjög hvimleið og hefur áhrif á lífsgæði fólks, hæfni þess til að vinna dagleg verk og sinna sjálfum sér og öðrum. Fólk í þessu ástandi hefur tilhneigingu til að draga sig í hlé, reyna að vera sem minnst innan um fólk og leitast við við að gera eins lítið og það getur.

Ein af hverjum fimm konum segist upplifa heilaþoku daglega í nýrri könnun Blue Iron-fyrirtækisins og 94% þeirra segjast einhvern tíma hafa glímt við hana en talið er að konur séu mun útsettari fyrir þessum vanda en karlar. Heilaþoka er hins vegar ekki sjúkdómur eða röskun heldur mun frekar einkenni margskonar vandamála. Líkt og áður var nefnt finna konur oft fyrir heilaþoku í fyrstu mánuðina eftir barnsburð, streita og álag geta birst í slæmri heilaþoku og oft er hún eftirköst alvarlegra veikinda. Iðulega lagast hún af sjálfu sér en stundum er hún þrálát og erfið að eiga við.

En hvað orsakar heilaþoku? Sérfræðingar eru sammála um að engin ein orsök sé undirliggjandi. Hugur fólks er mjög þrautseigur og hann finnur lengi leiðir til að leysa vandamál sín og komast framhjá alls konar hindrunum sem kunna að mæta fólki í daglegu lífi. Meðal orsaka eru hins vegar:

Þornun: Ef fólk drekkur ekki nóg hefur það mjög fljótt áhrif á skýrleika hugsunar og hæfni heilans til að vinna.

Lélegt fæði: Slæmt mataræði hefur ekki bara áhrif á líkamlega heilsu heldur einnig á hugsunina.

Streita: Mikil streita og álag veldur því að fólk ræður ekki lengur við dagleg verkefni og afleiðingin er m.a. heilaþoka.

Svefnleysi: Andvökur og svefntruflanir hafa mikil áhrif á heilann og ef ekki er reynt að bæta svefninn og svefnrútínuna er ein afleiðingin heilaþoka.

Covid eða aðrar vírussýkingar: Í kjölfar alvarlegra veikinda finnur margt fólk tímabundið fyrir heilaþoku. Það getur tengst því að líkaminn er ekki enn fyllilega búinn að jafna sig eftir álagið sem veikindin.

Undirliggjandi sjúkdómar: Skjaldkirtilsvandamál, vítamínskortur eða skortur á steinefnum geta valdið heilaþoku.

Ruglun eða óráð

Heilaþoka er viðvarandi ástand í einhvern tíma og á ekkert skylt við skyndilega ruglun eða óráð sem getur hent eldra fólk. Ef það gerist er full ástæða til að leita læknis strax því það getur verið einkenni heilablóðfalls, alvarlegra þvagfærasýkinga eða annars alvarlegs líkamlegs vanda. En þótt heilaþoka kunni að valda þeim sem finnur fyrir henni ótta er iðulega engin ástæða til að vera hræddur. Margir halda að um sé að ræða fyrstu merki um heilabilun en það þarf alls ekki að vera og einkennin eru allt önnur.

Til að mynda má nefna að meðal fyrstu einkenna alzheimers er að missa allt í einu áttanna, kannast ekki við sig í hverfinu sínu, inni á heimilinu eða í vinnunni, spyrja sömu spurninganna aftur og aftur eða segja sömu söguna með nokkurra mínútna millibili, átta sig ekki á hvað tímanum líður eða hvaða dagur er. Þetta hendir sjaldan þá sem glíma við heilaþoku.

En hvað er þá hægt að gera til að létta á einkennum heilaþoku og koma í veg fyrir að hún hafi áhrif á daglegt líf? Sérfræðingarnir mæla með:

  1. Að gefa huganum hvíld

Ef það er erfitt að einbeita sér eða ná að klára verkefni er best að taka sér nokkurra mínútna hvíld. Sumir kjósa að hugleiða í algjörri kyrrð í nokkrar mínútur, aðrir að loka augunum og slaka á gegnum stýrða öndun. Það getur líka skipt máli að fara út og ganga í nokkrar mínútur eða gera eitthvað sem þér finnst gaman af áður en þú snýrð þér aftur að verkefninu. Að gefa huganum hvíld hjálpa okkur að einbeita okkur, vekur sköpunargáfuna, skýrir hugsunina og gefur okkur betri hæfni til að leysa vandamál.

  1. Laga svefninn

Langvarandi svefntruflanir og svefnleysi hefur gríðarleg áhrif á daglegt líf fólks. Að leita leiða til að bæta svefninn og koma á betri svefnrútínu getur skipt sköpum hvað öll lífsgæði varðar. Margt getur hjálpað og ekki endilega lyf, til að mynda að vakna alltaf á sama tíma á morgnana og fara í rúmið á sama tíma á kvöldin. Byrja að undirbúa slökun og hvíld tveimur tímum áður en gengið er til náða, t.d. með því að hætta allri skjánotkun, hlusta á rólega tónlist eða hugleiða, drekka heitt te eða flóaða mjólk og gera slökunaræfingar.

  1. Passa að drekka nóg

Ofþornun er ein algengasta ástæða heilaþoku og hana er auðvelt að laga. Með því að drekka um átta glös af vatni daglega tryggir fólk að það fái nægan vökva. Grænmeti, ávextir og annar vökvaríkur matur er einnig góð leið til að vera viss um að líkaminn fái nóg vatn.

  1. Hætta að reyna að gera marga hluti í einu

Ein ástæða þess að fólk á erfitt með að einbeita sér og sinna hlutunum vel er að það er að reyna að gera marga hluti í einu. Rannsóknir hafa margsýnt að við getum ekki skilað góðu verki ef við einbeitum okkur ekki að því og með því að vera alltaf með marga bolta á lofti í einu tryggjum við það eitt að ekkert er gert eins og best verður á kosið. Við sjálf erum svo líka yfirkomin af streitu vegna þess að ekkert gengur eins og við helst vildum.

  1. Koma skipulagi á hugsanir sínar

Þegar mikið er um að vera eða heilaþoka er farin að herja á getur verið erfitt að koma skipulagi á hugsanir sínar. Ein leið til þess að setja allt niður á blað, skrifa hjá sér þau verkefni sem þarf að gera, hvað þarf að muna, hvert að fara og svo framvegis. Það hjálpar og léttir á heilanum að vita að allt er tryggt á einum stað og hægt að haka við hvert verk um leið og það er búið. Sumir setja allt í símann og láta hann minna sig á.

  1. Borða hollt og ekki sleppa máltíð

Allir vita hvert gildi þess að borða hollt er og svokallað Miðjarðarhafsmataræði er sagt sérlega hollt fyrir heilann. Í því felst að borða mikið grænmeti, fisk og ólífuolíu. Það er margt verra. Finndu leiðir til að auka neyslu þessara matartegunda og gættu þess að borða nóg. Að sleppa máltíðum og ætla að fasta er ekki góð leið til að losna við heilaþoku.

  1. Leita læknis

Ef heilaþokan lagast ekki og  þér finnst ekkert gagnast í baráttu við hana leitaðu læknis. Það er hugsanlegt að skortur á B12-vítamíni, vanvirkni í skjaldkirtli eða skortur á ýmsum steinefnum m.a. járni sé undirliggjandi orsök.