Skúffuskáld á tímamótum

Eru það óhjákvæmileg örlög þeirra sem komnir eru um og yfir miðjan aldur að láta sig dreyma um breytingar en þora ekki að taka stökkið? Jóna Valborg Árnadóttir veltir þessari og fleiri áleitnum spurningum fyrir sér í nýjustu bók sinni Skúffuskáldið. Þar segir af Gunnari, miðaldra manni sem er farið að leiðast eigin tilvera en býr sér til áhugaverðan heim í tölvunni. Sjálf er Jóna Valborg ein þeirra sem engin hætta er á að festist í einhverju hjólfari og svo merkilega vill til að margt af hennar vinnu og reynslu til þessa hefur ratað inn í söguna af skúffuskáldinu.

Jóna Valborg á fjölbreyttan náms- og starfsferil að baki. Hún er íslenskufræðingur, kennari, með meistaragráðu í mannauðsstjórnun og ritlist og hefur unnið við markaðssetningu, viðburða- og sýningastjórnun, mannauðsmál, ritstjórn og fleira. Meistaraprófsritgerð hennar byggði á rannsókn sem hún gerði á stöðu fólks á aldrinu 50-63 ára í starfi og þar bar margt á góma meðal annars hvort sköpunarkrafturinn og hugmyndauðgin minnkaði með árunum.

„Ég var að kanna m.a. álag í starfi, þörf fyrir sveigjanleika, fjölbreytni, sjálfsmyndina, starfsöryggi og fleira,“ segir hún. „En það er alltaf þörf fyrir ný verkefni, enginn vill staðna það er leiðinlegt. Ég spurði einmitt um þessa mýtu varðandi hugmyndaauðgina og einn þeirra Geir svaraði:

Auglýsing

„Og það er svo oft sagt að ungt fólk sé svo hugmyndaríkt og fái svo margar góðar hugmyndir. Ég bara einhvern veginn er þannig … ég umgengst þannig menn að þeir eru alveg stjarnfræðilega súrrealískir. Þetta eru gæjar sem eru alltaf að fá nýjar hugmyndir og sumar svo klikkaðar að það er enginn tvítugur menntaskólanemi með svona hugmyndir. Það þarf líka reynslu í það að fá góðar hugmyndir.“

Maður finnur einmitt með aldrinum hversu miklu fljótari maður er að taka ákvarðanir og þá hefur maður reynsluna að byggja á.“

Margir góðir vinir glöddust með Jónu Valborgu í útgáfuhófinu.

Glatað fé eða fundið

Undanfarið hefur gengið yfir hrina hópuppsagna og mjög er farið að þrengjast um á vinnumarkaði. Iðulega er eldra fólkið látið fara fyrst.

„Ritgerðin heitir Glatað fé eða fundið,“ segir Jóna Valborg. „Það eru verðmæti í þekkingunni og reynslunni. Nú og svo auðvitað tengslanetið sem hver og einn hefur. Þeir eldri eru snöggir að finna einhvern til að svara spurningum, græja eitthvað og gera það sem gera þarf. Þegar ég rifja upp vinnuna við ritgerðina finnst mér svolítið eins og þau átta sem ég hitti hafi verið kraftmikið duglegt fólk í góðum störfum. Samt fundu þau fyrir viðhorfum í sinn garð, fordómum og það hafði áhrif á sjálfsmynd þeirra.“

Það er einmitt það sem mannauðsstjórnun gengur út á að nýta kraftinn sem býr í starfsmönnum og efla sjálfstraust og hugrekki. En finnst þér þú verða vör við að þessi viðhorf séu eitthvað að breytast og sú þekking og reynsla sem kemur með aldrinum sé meira metin nú?

„Þegar ég geri rannsóknina var ég bara rétt fertug og ég fann að mörgum fannst undarlegt að ég væri að kanna viðhorf til miðaldra og eldra fólks í starfi. Sumir andvörpuðu og spurðu: „Ætlarðu að gera það?“ og einn sagði: „Það er nú ekki nógu sexý.“ Ég svaraði: „Við gerum það þá sexý.“ En ástæðan fyrir að ég gerði rannsóknina var að það var bara gat þarna. Það var algjört áhugaleysi. Þegar ritgerðin kom út fór ég víða og kynnti hana, sendi póst á fyrirtæki og það vakti mikla athygli. Ég fór og flutti fyrirlestra, heimsótti fyrirtæki og ég sá að það kom mörgum á óvart að ég væri ekki eldri en ég var. Ég setti líka fram verkfæri fyrir stjórnendur og starfsánægjuvog. En vegna þess að spurningin var hvort ég fyndi fyrir því að viðhorfin hafi breyst þá get ég sagt að ég er núna komin í þennan hóp og finn ekki hjá sjálfri mér og ekki því starfi sem ég er í að þekkingin og reynslan séu vanmetin. Það má nefna að þegar ég var að hefja minn starfsferil var ég líka viðskiptastjóri á auglýsingastofu, eins og núna, og ég veit að ég er miklu betri starfsmaður nú en þá. Ég er fljótari að taka ákvarðanir og mun betri í að lesa í allt. Ég er alls ekki að gera lítið úr þeirri manneskju sem ég var en ég finn að verðmætin eru í reynslunni og þekkingunni.“

Lesið upp úr bókinni.

Starfsfólk með í breytingaferlinu

Eitt af því sem Jóna Valborg setti fram í ritgerðinni var starfsánægjuvog. Þar setti hún upp  atriði er lögð höfðu verið til grundvallar starfsánægju í erlendri rannsókn en bætti við þeim er vógu mest að mati viðmælenda hennar. Þar kom margt áhugavert fram.

„Svo gerist það þegar við eldumst,“ segir hún, „að á vinnustað þar sem við erum ekki metin er ekki leitað til okkar. Það hefur áhrif á sjálfstraustið. Eins hvort við metum okkur fær og fáum að læra og þróast í starfi. Vinnuveitendum finnst við stundum með þetta og ekki þurfa að læra meira. Mig langar, til dæmis, að læra meira um gervigreind. Það væri gott ef vinnuveitandinn spyrði af og til langar þig ekki að fara á námskeið, ekki gleyma okkur af því að við erum eldri. Er ég mikilvæg eða mikilvægur, geri ég gagn, er ég í félagslegum tengslum við aðra var líka hluti af voginni.

Einn viðmælenda minna skar sig úr. Það var búið að setja hann svolítið út í horn. Þetta var 63 ára maður með mikla reynslu og sterkt tengslanet en það höfðu orðið breytingar í fyrirtækinu og hann fann ekki lengur að hann væri metinn. Enginn leitaði til hans lengur. Við þurfum líka að rækta félagsleg tengsl, mæta á árshátíð fyrirtækisins og taka þátt í félagslífi innan þess. Fjölbreytt og krefjandi verkefni skipta einnig máli sem og að finnast starfið hafa tilgang, að við séum að gera eitthvert gagn, láta gott af okkur leiða. Við nennum ekki að vera föst í rútínu alla daga og mæta aldrei neinum áskorunum.

Þess þarf einnig að gæta að álag sé hæfilegt. Auðvitað á þetta við um okkur öll og ekki bara þau sem eru orðin fimmtíu og eitthvað. Það þarf að bjóða upp á sveigjanleika. Margir á þessum aldri eiga aldraða foreldra sem þeir þurfa að sinna og svo er bara ýmislegt sem okkur langar að gera í okkar einkalífi. Nú og svo að fá þá sem eldri eru til að leiðbeina hinum yngri, nýrri starfsmönnum en ekki gera það nema viðkomandi hafi tíma til. Að lokum er svo gott að nefna öryggi á vinnustað. Ef breytingar eru fyrirhugaðar ekki skella þeim yfir okkur einn daginn, leyfið okkur að vera með og vita hvað er í farvatninu.“

Úr útgáfuboðinu.

Einangrun og óöryggi á vinnustað

Það er raunar mjög góður punktur. Víða er farið með allar breytingar á stöðu fyrirtækis eins og hernaðarleyndarmál en starfsfólk skynjar ýmislegt og gerir sér iðulega í hugarlund að eitthvað meira og verra sé yfirvofandi en raunin er.

„Líkt og í tilfelli Ingólfs, viðmælandans sem ég nefndi hér að ofan, þá sagði hann m.a.: „Ég vil ekki rugga bátnum.“ Nýir stjórnendur voru teknir við og hann hafði lengi upplifað sig óöruggan. Staða hans hafði verið lögð niður.

„Þú hittir ekkert rosalega vel á mig því fyrir ári síðan fór ég úr því starfi sem ég hafði verið í í eiginlega fimmtán ár. Þá var gerð dálítið mikil uppstokkun á skipulaginu hér innanhúss. Ég er sem sagt í öðru starfi núna. Ég hef alveg óttast um starfið mitt þetta var dálítið óljóst þegar verið var að gera breytingarnar og maður lifði í pínulítið skrýtnum heimi. Svo spurðist það út að það yrðu breytingar og staða mín yrði lögð niður. Þá liðu nokkrir mánuðir sem maður var ekki alveg viss hvað myndi verða, hvaða hlutverk maður fengi í kerfinu. Það var stresstímabil. Ég beið í óvissu og vildi ekki styggja þá á meðan. Svo var þetta fín lausn fyrir mig að fá að koma hingað.“

Ingólfur var ekki að láta skoðanir sínar í ljós og ég upplifi hann mjög einangraðan og ég hefði viljað sjá hans stjórnendur fara til hans, leita til hans og fá hans sýn og lausnir til að draga hann aftur inn í hringiðuna. Hans verðmæti voru ekki nýtt og næsti kafli heitir einmitt Verðmæti á lausu. Hann var frábrugðinn hinum.“

Gestir fóru strax að lesa.

Tók stökkið í nám í ritlist

Frelsi og sveigjanleiki höfðu einnig vægi í starfsánægjuvoginni sem Jóna Valborg setti upp en þá og fleiri dró hún út úr svörum viðmælenda sinni sem þætti í að skapa gott andrúmsloft á vinnustaðnum. Um þig má einmitt segja að þú hafir sannarlega ekki staðnað og brunnur góðra hugmynda ekki þornað upp. Þú ákveður til að mynda að hætta að vinna og fara í meistaranám í ritlist. var það erfið ákvörðun?

„Ég hafði skrifað tíu myndlýstar barnabækur sem komu út á árunum 2013-2022. Fyrstu níu vann ég með Elsu Níelsen sem er grafískur hönnuður og listakona. Þá tíundu vann ég með Berglindi Sigursveinsdóttur. Þetta eru tvær seríur og ein stök bók. Ég skrifa þessar bækur þegar ég er sjálf með mín börn ung. Ég stoppa ekkert lengi yfirleitt á sama stað og var að skipta um vinnu og fara í nám svo oft var mjög mikið að gera hjá mér. Ég held ég hafi alltaf ætlað að skrifa skáldsögu fyrir fullorðna. Nú eru börnin mín orðin fullorðin og ég tengi það ekki endilega saman en samt ég tók þá ákvörðun 2022 að sækja um í meistaranámi í ritlist og komst inn. Sagði upp starfinu mínu og hugsaði með mér; jæja. Það geta kannski ekki allir gert þetta en ég á eiginmann sem var til í þetta með mér.

Ég hafði auðvitað barnabækurnar og gat stundum farið og lesið upp og svo ritstýrði ég ársskýrslum og tók einhver verkefni með. Í byrjun ætlaði ég bara að taka eitt ár en þetta var svo gaman að ég ákvað að klára námið. Þegar ég var að skrifa lokaverkefnið mitt og klára námið fékk ég starfið á auglýsingastofunni þar sem ég er núna.“

Gamli, góði Gunnar situr eftir

Lokaverkefnið var Skúffuskáldið, sagan hans Gunnars sem skrifar til að gera tilveruna bærilegri.

„Hugmyndin að Skúffuskáldinu kemur svolitlu áður en ég fer að vinna í bókinni. Þá sá ég fyrir mér mann sem situr við tölvu og er mjög upptekinn. Konan hans er í baksýn og hristir höfuðið. Hún veit ekkert hvað hann er að gera og heldur jafnvel að hann sé að halda framhjá sér. En hann er í sínum heimi og snýr baki í alla. Í ritlistarnáminu vann ég þessa hugmynd áfram en ég ákvað að fara í námið til að fá tíma til að skrifa og hugsa og þá verður Gunnar til. Hann er skúffuskáldið. Hann vinnur sem bókari á auglýsingastofu, hefur unnið þar í 26 ár og honum er farið að leiðast. Segja má að hann sé í kulnunarástandi. Hann mætir í vinnuna og bíður eftir að komast heim. Á einum stað segir hann að allir séu farnir eitthvert annað, allir hans kunningjar eru farnir en gamli, góði Gunnar situr eftir. Hann þolir ekki þegar þetta er sagt við hann.

Í lok dags vill hann bara drífa sig heim en þar tekur ekki endilega betra við. Hann er ekki í góðu sambandi við konuna sína. Þau tala ekki saman heldur senda skipanir hvort á annað, það þarf að fara út með ruslið og setja í uppþvottavélina. Hann vill bara sitja í tölvuna og þar snýr hann baki í alla og hún reynir að hafa samskipti við hann en hann er upptekinn. Einhvers staðar á þessum 26 árum hefur hann misst sjálfstraustið og er orðinn vaninn. Ég held að ég sé líka að skrifa um einmanaleikann og þess vegna hugsa ég stundum um Ingólf úr rannsókninni. En ég er líka að skrifa um okkur, þetta nútímafólk, allt áreitið, allir þessir miðlar, tölvupóstarnir, kannski verðum við meira einmana fyrir vikið.“

Skáldskapurinn og lífið fara að kallast á

Í raun er mikill samhljómur milli þess sem vantar í líf Gunnars og þess sem rannsókn þín leiddi í ljós hvað varðar starfsánægju og sjálfsmat fólks á þessum aldri.

„Já, ég hafði í raun ekki hugsað út í það fyrr en ég hafði lokið við bókina,“ segir hún og brosir. „Ég hef líka stundum spurt mig; af hverju er ég að skrifa um einhvern mann? Við ræddum það stundum í náminu hvort við þyrftum endilega að búa til persónur sem væru sem líkastar okkur sjálfum eða hvort við mættum skálda upp persónur sem væru alls ekki eins og við. Auðvitað er eitthvað af mér þarna. En það er vissulega samhljómur þarna því ég skynjaði þennan einmanaleika hjá þessum viðmælanda mínum og Gunnar er á þessum stað. Honum er farið að leiðast. Kominn er nýr framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu, nýútskrifuð kona, og kannski er ekki borinn virðing fyrir Gunnari og því sem hann getur gert. En það er gaman að sjá hann lifna við.

Hann var góður í að skrifa texta þegar hann var ungur og þegar hann sér námskeið auglýst, Ritsmiðja fyrir skúffuskáld, skráir hann sig. Eiginlega er magnað að hann skuli gera það en hann segir engum frá því. Hvorki konan hans né börnin vita hvað hann er að gera. Hann skrifar sig út úr ýmsu, æskunni meðal annars og draumar hans og þrár fara að koma upp. Hann skrifar ástarsögu sem er svolítið gaman. Á sama tíma og hann á konu sem er óánægð og nær ekki sambandi við hann. Við getum tekið alls konar ákvarðanir og við eigum alltaf val.

Um miðbik sögunnar fara svo skáldskapurinn og raunveruleikinn að rekast á. Ástarsagan verður einhvers konar líflína fyrir Gunnar. Ef skoðað er hvað er gerast í lífi Gunnars og svo hvað er að gerast í ástarsögunni fer ýmislegt að kallast á. Það bara gerðist og var það  ofboðslega gaman. Þá hló ég. Ég held mikið með Gunnari og ein vinkona mín sagði: „Ég er svolítill Gunnar.“ Og aðrir eru Védís konan hans. Ég held að það sé eitthvað af okkur öllum í þessari sögu.

Ég er svolítil leikhús kona og leikhúsið kemur alltaf til mín, hvort sem ég er í vinnu eða öðru. Það eru leikrit eða senur í bókinni. Ég velti fyrir mér á tímabili hvort ég ætti að sleppa þeim og skrifa samfelldan texta en ákvað að halda þeim því þær eru samtal og það er eitthvað sem okkur vantar að tala saman,“ segir Jóna Valborg að lokum en nefna má að Lifðu núna tók viðtal við hana þegar rannsókn hennar kom út árið 2015 og hér að neðan er linkur á það. Ennfremur getur fólk kynnt sér rannsóknina í Skemmunni og Skúffuskáldið er fáanlegt í næstu bókabúð.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.