Orðaval skiptir máli

„Aðgát skal höfð í nærveru sálar“ er brot úr Einræðum Starkaðar eftir Einar Benediktsson og ekki er undarlegt að þjóðin hafi gripið þessa setningu á lofti og notað hana til að benda á og minna á þessi augljósu sannindi. Heilahjálp Samtök um heilabilun sendu frá sér í dag tilkynningu til að minna á einmitt þetta. Þess má einnig geta að umræða um nauðsyn þess að sýna virðingu og aðgát gagnvart fólki með heilabilun fór af stað af miklum krafti í Bandaríkjunum á dögunum eftir að dóttir Bruce Willis, Tallulah tjáði sig um það í fjölmiðlum hversu illa það kæmi við hana þegar fólk talaði af hugsunarleysi og hirðuleysi um fólk í sömu stöðu og faðir hennar er í. Hér að neðan má sjá þau viðmið sem Heilahjálp ráðleggur fólki að hafa til hliðsjónar í umfjöllun og umræðu um fólk með heilabilun.

Auglýsing

Virðingarfull umfjöllun um fólk með heilabilun

„Einstaklingur með heilabilun / fólk með heilabilun“

Forðist að nota: Sá heilabilaði

Af hverju: Heilabilun skilgreinir ekki manneskjuna. Mikilvægt er að tala fyrst og fremst um einstaklinga og fólk.

„Hann er með heilabilun“

Forðist að nota: Hann er heilabilaður

Af hverju: Einstaklingur er meira en greiningin sín. Forðumst stimplandi orðalag.

„Hann flutti á hjúkrunarheimili“

Forðist að nota: Hann var vistaður á hjúkrunarheimili

Af hverju: Hjúkrunarheimili eru heimili þar sem fólk býr og lifir.

„Heilabilun á efri árum“

Forðist að nota: Elliglöp

Af hverju: Heilabilun tengist ekki eingöngu háum aldri.

„Heilabilun“

Forðist að nota: Vitglöp

Af hverju: Vitglöp er eldra hugtak sem endurspeglar ekki lengur þann skilning og þekkingu sem við höfum í dag á heilabilun.