Skáldsagan Dyngja (e. Boudoir) eftir Sigrúnu Pálsdóttur er meðal verka sem hafa hlotið tilnefningu til Dublin-bókmenntaverðlaunanna 2027. Nítíu bókasöfn víðs vegar um heim standa að tilnefningunum, þar á meðal Borgarbókasafn Reykjavíkur.
Skáldsaga Sigrúnar Pálsdóttur, Dyngja er tilnefnd til Dublin-bókmenntaverðlaunanna 2027. Dyngja kom út á íslensku árið 2021 og hlaut afar góðar viðtökur. Hún var meðal annars tilnefnd til Fjöruverðlaunanna sama ár og kom út í enskri þýðingu Lyttons Smith vorið 2026.
Dyngja segir frá ungum flugmanni sem gerist flugfreyja árið 1971. Að baki ákvörðuninni býr undraverð saga sem á upptök sín við rætur Ódáðahrauns um miðja 20. öld. Þaðan liggur leiðin smám saman lengra inn í land, út í geim og að lokum alla leið til tunglsins.
Sigrún hefur áður hlotið ýmsar viðurkenningar og tilnefningar fyrir verk sín, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Bláa pardusinn: Hljóðbók árið 2026.
Bókasöfn um allan heim standa að tilnefningunum
Að þessu sinn eru 71 skáldverk frá 41 landi tilnefnd til Dublin-bókmenntaverðlaunanna. Nítíu bókasöfn víðs vegar um heiminn stóðu að tilnefningunum, þar á meðal Borgarbókasafn Reykjavíkur. Meðal tilnefndra verka eru 22 frumraunir rithöfunda og 30 skáldverk sem þýdd hafa verið úr 21 tungumáli, meðal annars pólsku, búlgörsku, malasísku og íslensku.
Langlisti tilnefndra bóka verður birtur 16. febrúar 2027, stuttlistinn verður í kjölfarið kynntur 7. apríl og vinningshafinn svo tilkynntur 20. maí 2027. Það verður í þrítugsta og annað skiptið sem verðlaunin verða veitt. Verðlaunin verða afhent á Alþjóðlegu bókmenntahátíðinni í Dublin á Írlandi.
Dublin-bókmenntaverðlaunin hlýtur höfundur fyrir verk sem skrifað hefur verið á ensku eða þýtt yfir á ensku og nema verðlaunin 100.000 evrum eða tæplega 15 milljónum króna.






