Að baki hverri klárri konu stendur góður maður

Hér áður fyrr var oft á það bent að fáir karlmenn gætu náð langt í þessum heimi nema með góðum stuðningi maka. Þetta sama á við um konur og þótt þær hefji sig til vegs og virðingar í krafti eigin verðleika jafnast ekkert á við að vita að við hlið þér stendur besti vinur þinn og stærsti stuðningsaðili.

Leikkonan og leikstjórinn

Helen Mirren og Taylor Hackford hafa verið par í tuttugu ár. Þau kynntust þegar Helen var þrjátíu og átta ára gömul en hún segist aldrei hafa ætlað sér að giftast en Taylor hafi orðið til þess að hún skipti um skoðun. Þau voru búin að vera saman í tíu ár þegar þau giftu sig en þá segist leikkonan hafa vita að hún ætlað sér að vera með honum til æviloka. Hann hefur hins vegar sagt að ekkert jafnist á við að finna sálufélaga sinn og hefur látið hennar starfsferil ganga fyrir sínum.

Leikkonan og bóndinn

Julie Walters og Grant Roffey eiga tuttugu og tveggja ára brúðkaupsafmæli í ár. Hann rekur búgarð þeirra en þar er stunduð sjálfbær og lífræn ræktun. Um hjónaband þeirra segir hún: „Hann hefur alltaf leyft mér að vera leikari en ég hef alltaf leyft honum að hverfa að bústörfunum.“

Leikkonan og leikarinn

Olivia Colman og Ed Sinclair hittust við nám í Cambridge-háskóla. Hann er lærður leikari líka en hefur einnig skrifað bækur. Undanfarin ár hefur frægð hennar aukist með hverju nýju hlutverki og hann kosið að halda sig til hlés og styðja hana. „Í hvert sinn sem ég fæ útborgað legg ég helming launa minna inn á hans reikning og hann gerir það sama fyrir mig,“ segir hún. Það er því auðheyrt að ekki er rifist um peninga á því heimili.

Fyrirsætan og leikstjórinn

Fyrirsætan Twiggy hefur verið í hjónabandi með leikaranum og leikstjóranum Leigh Lawson í þrjátíu og sjö ár. Þau kynntust við tökur á myndinni Madame Sousatzka árið 1988 og haldið saman síðan. Þótt störf beggja hafi oft kallað á ferðalög hafa þau reynt eftir fremst að megni að fylgjast að og eru sjaldan aðskilin. Aðspurð um hver sé galdurinn við svo gott samband segir Twiggy: „Hann kemur mér til að hlæja og ég honum.“

Leikkonan og leikarinn 

Emma Tompson og Greg Wise hafa verið gift í sextán ár. Hún kynntist honum eftir að hjónaband hennar og Kenneth Brannagh fór út um þúfur en hann hélt framhjá henni með Helenu Bonham Carter. Þau hafa hins vegar náð að skapa djúpt og einlægt vináttusamband en þeir sem fylgjast með The Crown hafa örugglega séð Greg í hlutverki Mountbatten lávarðar. Hann segir um konu sína: „Það komast fáir með tærnar þar sem hún hefur hælana.“