Yst á mjóum tanga sem teygir sig út í Gardavatnið frá suðurenda þess er bærinn Sirmione. Þetta er lítill bær afmarkaður af vatninu og hinum einstaklega fallega Scaliger- kastala og ströndinni við enda tangans.
Það fyrsta sem mætir ferðamanninum eftir brúnni yfir kastalasíkið sleppir eru ísbúðirnar. Þær eru í öðru hverju húsi og bjóða allar heimsins mesta úrval af bragðtegundum og stærstu kúlurnar. Litlu skiptir hvort þú er aðdáandi gelato eða ekki að minnsta kosti ein kúla er algjörlega nauðsynleg og bragðið er himneskt, ísinn rjómakenndu rog í yfir 30°C hressir ekkert betur.
Inni í bænum mætir gangandi vegfarendum mjó, steinlögð stræti sem þræða sig milli hárra steinbygginga og búðir með fallegu handverki, vönduðum fatnaði og minjagripum. Veitingahúsin standa öllum opin með þjónustulipurð ítalska starfsfólksins og gómsætum mat.
Útsýnið úr kastalanum
Kastalinn er auðvitað það sem vekur mesta athygli og sjálfsagt að stefna þangað ótrauður með ísinn og klára hann meðan beðið er í röðinni eftir að komast inn. Þetta einstaklega fallega miðaldavirki býður upp á frábært útsýni yfir vatnið, áhugaverða yfirsýn yfir byggingalist miðalda og þá tilfinningu að maður hafi stigið um stund aftur í tímann.
Örskammt frá kastalanum er Le Grotte di Catullus. Það eru einna best varðveittu rústir rómverskrar hallar á Norður Ítalíu. Bygging hallarinnar hófst í lok fyrstu aldar eftir Krist og henni lauk í byrjun annarrar aldar. Le Grotte þýðir hellirinn og nafnið er þannig tilkomið að þegar ferðamenn fóru að streyma til Sirmione sáu þeir aðeins steinveggi vaxna villtum gróðri og menn héldu að um væri að ræða helli og loftið hefði hrunið. Misskilningurinn leiðréttist fljótt og höllin var kennd við skáldið Catullus en hann bjó í Sirmione. Í ljóði 31 yrkir hann einmitt um bæinn kallaði hann „gimstein eyjanna, gimstein skagans“. Hann var hins vegar ekki eigandinn því hann dó áður en bygging hennar hófst. Frá rústunum gefur hins vegar að líta dásamlegt útsýni yfir vatnið og nánast umhverfi þess.
Rétt hjá rústunum er Jamaica Beach, forn heilsulind þar sem heitt vatn úr hverum í vatninu var notað til að lækna og líkna. Kristaltært vatnið og fallega slípaðir klettarnir taka svo á móti gestum og gefa færi á að baða sig og njóta hins milda loftslags liggjandi á handklæði eða bekk á sléttum klöppunum. Staður sem þess hlaut fyrr eða síðar að draga að sér athygli Hollywood og þess má geta að í einni senu í myndinni, Call Me By Your Name, sést sólarlagið frá Jamaica-ströndinni yst á skaganum og vatnið baðað í roðaglóðAnnar staður sem vert er að leita uppi er kirkja sankti Péturs eða San Pietro í Mavino er kyrrlát og notalega og þar eru dásamlega fagrar freskur á veggjunum.

Freska í kirkju sankti Péturs.
Brúðkaup og gæfir fuglar
Allt árið um kring er mikil ferðamannastraumur í Sirmione og bærinn er vinsæll áfangastaður fyrir brúðkaup. Vitað er að alla vega einn Íslendingur hefur gengið í hjónaband í bænum. Sú vitneskja er tilkomin vegna þess að þegar undirrituð heimsótti bæinn stóð yfir íslenskt brúðkaup og hún spurð hvort hún tilheyrði brúðkaupsgestum. En besti tíminn til að skipuleggja ferð til Sirmione er rétt utan vinsælasta ferðamannatímans eða í maí, byrjun júní, september eða október. Ef verið er á ferð um Ítalíu ættu menn að ætla sér minnsta kosti dag í þessum dásamlega bæ. Hægt er að aka út á tangann alveg að bænum leggja en yfirleitt er umferðin þétt og bílstæði fá. Mun fleiri leggja bílunum í Desenzano eða öðrum strandbæ og fara með báti yfir vatnið. Það er ekki nema 20 mínútna sigling og gefur færi á að njóta svalans frá vatninu og horfa á skarfana stinga sér eftir sílum eða dansa jafnvægisdans á baujum, siglutrjám og fánastöngum.
Bleshænurnar sjást sömuleiðis á sundi önnum kafnar við að afla fæðu og endur eru hér mannelskar og gæfar. Þær eiga jafnvel til að stökkva upp á steinkantinn við bryggjuna til að heilsa upp á túristi ef þær telja þar von á bragðgóðu brauði.
Á heitum degi er ánægjulegt að fara í bátsferð hringinn í kringum tangann. Vatnið kælir og túrinn er þess virði því útsýnið til strandarinnar er áhugavert og fallegt. Siglt er í gegnum kastalasíkið og það er frábær upplifun. Breska skáldið Tennyson kom hingað á ferðum sínum um Ítalíu og orti um fegurð skagans. Þess má einnig geta að hér átti Maria Callas hús og dvaldi oft meðan hún var gift Giovanni Battista Meneghini og þar er í dag safn um hana.

Bleshænurnar syntu um önnum kafnar við afla sér fæðu.
Kyrrðin á kvöldin og morgnana
Hér er iðandi mannlíf allan daginn en þeir sem dvalið hafa í bænum segja hann kyrrlátan og dásamlegan á kvöldin og snemma á morgnana. Þá getur ferðamaðurinn stigið aftur í tímann, reikað einn um steinlögð strætin og dregið að sér ilm af gróðri, ferskum raka og andblæ af vatninu. Sirmione er eiginlega fullkominn ítalskur bær. Hann býður upp á allt það besta sem ferðamaðurinn þráir, menningu, sögu, mannlíf, dýralíf náttúrufegurð, góðan mat, nægan drykk og dásamlegan ís. Hér er hægt að líta um öxl til fortíðar, láta sig dreyma um dásamlega framtíð og njóta stundarinnar.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







