Norskt ævintýri

Notodden virðist við fyrstu sýn eins og hver annar smábær í Noregi. Stór silfraður hljóðnemi á hringtorgi í miðbænum gefur hins vegar vísbendingu um að svo er ekki. Notodden er blúsbærinn. Þar hefur verið haldin blúshátíð fyrstu helgina í ágúst í aldarfjórðung. Þekktustu blústónlistarmenn heimsins hafa troðið þar upp gegnum tíðina og nú orðið er eftirsótt að koma þar fram. Hér er sem sagt Mekka blústónlistar í Noregi.

Notodden er bær á Þelamörk en sumir hafa lýst því héraði sem Noregi í hnotskurn. Þar er að finna helstu einkenni landsins alls samanþjöppuð á litlu svæði. Þröngir jökulgrafnir dalir með ógnardjúpum kyrrum vötnum í botninn. Til að Íslendingar átti sig á landslaginu má segja að héraðið skarti ótal útgáfum af Skorradal. Skógurinn hylur allar neðstu hlíðar fjallanna sem teygja sig hátt til himins og þar er finna ótal spennandi gönguleiðir og fjallstoppa sem vert að sigra. Einn þeirra er  Gaustatoppen, 1833 m hátt fjall en ekið er upp í 1260 m hæð og gengið þaðan.

Radarstöðin sem Þjóðverjar reistu á toppi fjallsins.

Af Gaustatoppen má sjá yfir 1/6 hluta Noregs á góðum degi svo ef menn hyggjast sigra fjallið er eins gott að fylgjast með veðurspá og vera viss um að ekki verði skýjað. Það þarf einnig að gæta þess að ekki er endilega sama veður niðri í dalnum og er á toppi fjallsins. Í heimstyrjöldinni síðari notfærðu Þjóðverjar sér hæð fjallsins til að setja upp radarstöð og byggðu lyftu inni í því til að auðvelda sér uppgönguna. Lyftan hefur nú verið opnuð almenningi og þeir sem ekki skilja þá undarlegu þörf að klöngrast upp grýttan ógreiðfæran stíg til þess eins að njóta útsýnis geta sótt það fyrirhafnarlaust með aðstoð tækninnar.

Fjöllin í Noregi eru fellingafjöll, þ.e. þau myndast þegar jarðskorpuflekar þrýstast saman og landið lyftist upp í stað þess að síga eins hér gerist. Við þessar aðstæður verða fjöllin há og Alparnir og Himalayafjöll eru önnur dæmi um afleiðingar áreksturs flekanna. Bergið í norska fjallinu er samanpressaður sandsteinn eða quartzite, ein harðasta bergtegund í heimi. Göngufólk kemst líka fljótt að raun um að stórgrýtið er ekki þægilegt undir fæti. Á toppnum er lítill skáli þar sem göngumóðum er boðið að kaupa heitt kakó og vöfflur

Verksmiðja NorskHydro í Rjukan þar sem Þjóðverjar framleiddu þungt vatn í seinni heimstyrjöldinni.

Í fótspor Þelamerkurhetjanna

Þegar komið er niður af Gaustatoppen er örstutt að aka til Rjukan, þorpsins þar sem NorskHydro framleiddi þungt vatn í verksmiðju sem Þjóðverjar lögðu mikið upp úr að ná á sitt vald. Fræg er sagan af norsku andspyrnumönnunum sem sprengdu upp framleiðslusalinn til að koma í veg fyrir að nasistum tækist að búa til atómsprengju fyrstir allra. Ekki tókst betur til en svo að Þjóðverjar fluttu nýjar vélar til Rjukan og framleiðsla var komin aftur á fullan skrið örfáum dögum seinna. Þá brugðu Norðmennirnir á það ráð að sprengja upp ferjuna sem flytja átti þunga vatnið fyrsta áfangann á leiðinni til Þýskalands. Um þessa atburði var gerð Hollywood-kvikmyndin Hetjurnar frá Þelamörk með Kirk Douglas og Richard Harris í aðalhlutverkum.

Nú á dögum er fyrst og fremst kyrrð og fegurð yfir Rjukan. NorskHydro hefur snúið sér að annars konar verkefnum og atvinnuleysi mikið í þeim bæjum sem byggðust upp í kringum rekstur orkuveranna. Ferðaþjónusta er  þó vaxandi atvinnuvegur hér og margt sem dalirnir og fjöllin hafa upp á að bjóða.

Það er undurfallegt við Gavlesjöen.

Undurfagurt stöðuvatn og Heiðmörk Notodden-búa

Í nágrenninu er að finna dásamlegt kyrrt stöðuvatn Gavlesjöen og rétt við vatnið er notalegur veitingastaður þar sem njóta má alls þess góða sem héraðið hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Tynnemyra heitir Heiðmörk Notodden-búa, dásamlegt útivistarsvæði með tjörnum skreyttum vatnaliljum, fallegum gróðri og notalegum áningarstöðum. Frá Notodden er stutt að aka inn í Kivledalinn. Þjóðsaga segir af þremur ungum meyjum er leituðust við að tæla fólkið í dalnum frá kristni til heiðni. Þær léku undurfagra söngva á lúðra sína meðan fólkið var í messu og það vildi út. Presturinn sá að við þetta varð ekki unað svo hann kvað meyjarnar inn í bergið í fjallinu fyrir ofan kirkjuna og næmt fólk telur sig sjá andlit þeirra í klettunum. Þar vex líka hinn glæsilegi steinbrjótur inn, klettafrú, og minnir á meyjarnar þrjár sem urðu Grieg seinna innblástur að flottu tónverki. Á Þelamörk er að finna ótal fleiri fallega og heillandi staði og þar geta áhugasamir náttúruunnendur notið sín löngum stundum.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.