„Ég hef notið svo mikillar gæsku frá öðrum“

Anna Svanhildur Björnsdóttir skáldkona og fyrrverandi  grunnskólakennari er ekki hætt að skrifa. Hún á sér fjölmarga fylgjendur og í hvert sinn sem hún bætir bók í safnið heldur hún mikla veislu og þeir mæta og kaupir fleiri en eina og fleiri en tvær bækur. Hún hefur einstaklega jákvætt viðhorf til lífsins og hlakkar til hvers dags.

Auglýsing

„Mér finnst svo gaman að lifa og áhugavert. Ég hef auðvitað fengið mótlæti, svolítið meira en ég átti von á en hugsanlega fylgja úrlausninni góðir hlutir svo ég er ekkert að syrgja það. Kannski er ég ekkert lamb að leika sér við lengur,“ segir hún og hlær við. „Ég er með stál í hnénu og jafnvel orðin stálhörð annars staðar líka. Ég var það ekki þegar ég var ung. Ég var svo draumlynd, of góð og hrekklaus, eins kjáni. Ég hef látið liggja að þessu í bókunum en ég hef stundum sagt að líf mitt sé eins og frönsk bíómynd, með svona undirtóni. Ég hef bara gert það sem ég hef getað og ég vanda mig við það sem ég geri.

Ég trúi ekki að það þurfi að fyrirgefa allt sem gert er á hlut manns. Fyrirgefning gerist annað hvort að sjálfu sér eða þegar rétt er fram sáttahönd. Það á ekki að kenna fólki að fyrirgefa til að losna frá einhverju vegna þess að ef brotið er alvarlega gegn fólki er ekki hægt að fyrirgefa það. Ef fólk biður um fyrirgefningu slæ ég ekki á slíka hönd. Mamma átti aldrei í útistöðum við fólk en hún var svona meira auga fyrir auga og tönn fyrir tönn manneskja. Ég hef ekki þörf fyrir að hefna mín en mér finnst að fólk megi sækjast eftir réttlæti.“

Epli í París

Epli í París sem vöktu athygli Önnu.

Nýtur leiðsagnar og er lánsöm

Hún tekur sér málhvíld og brosir og bætir við að þetta sé aðeins lítill hluti af hennar lífi.

„Það er eitthvert lán yfir mér, það er eins og ég njóti leiðsagnar. Ég hef verið svo heppin með fólkið í kringum mig. Ég er líka búin að skemmta mér óskaplega mikið á ferðalögum. Þegar ég var kennari var hægt að fá ferðastyrk. Það var svo góður sjóður hjá Kennarasambandinu að við gátum farið og heimsótt skóla og fengið styrk til þess. Ég notaði það og gat farið annað hvort ár. Mest fór ég til Skandinavíu og gat notað tækifærið til að hitta ljóðskáld sem ég hafði kynnst áður. Rithöfundasambandið og Miðstöð íslenskra bókmennta hafa líka veitt mér ferðastyrki. Ég hef verið mjög virk í Danmörku og ljóðin mín verið þýdd á dönsku.“

Anna átti vini í Danmörku sem áttu sumarhús á Skagen og þar dvaldi hún um tíma.

„Ég hef notið svo mikillar gæsku frá öðrum og mér hefur verið treyst,“ segir hún. „Ég ferðast mikið ein og mér hefur verið bjargað og stundum bjarga ég fólki. Ég geri góð verk en ég er ekki meðvirk. Í sumar var ég stödd í London og fór út einni stoppustöð of snemma. Ég er slæm í hnénu og vék mér að konu sem stóð fyrir utan glæsilegt hús og talaði í síma og spurði hvort hún gæti vísað mér á hótelið. Hún sagði það í næstu götu en bauðst svo til að fylgja mér og úr varð að við fórum inn á óskaplega flott kaffihús við hliðina á hótelinu mínu, fengum okkur bláberjadrykk og spjölluðum. Ég sendi henni bækur eftir mig þegar heim kom og nú á ég heimboð í London ef ég fer þangað aftur.

Svo er ég berdreymin líka. Ég hef verið það alla ævi. Stundum finnst mér það svolítið erfitt því mig dreymdi oft fyrir daglátum. Kannski er maður svona skrýtinn út af þessu. Mamma var það líka. Hana dreymdi áður en hún giftist pabba að þetta yrði frekar erfitt en hún vildi samt eiga hann. Pabbi var í London á stríðsárunum og þjónaði fyrir Noreg en hann er hálfnorskur. Ég tel það hafa verið erfiða reynslu fyrir hann.“

Á kaffihúsi í London.

Kynferðisleg áreitni algeng í kennslu

Anna var aðeins tuttugu og eins árs þegar hún byrjaði að kenna og margt kom henni á óvart þegar hún byrjaði. Hún segist stundum hafa verið of samvinnuþýð til að byrja með við fólk sem vildi ráðskast með unga kennara og þá hjálpaði að eiga sér athvarf í orðum þegar heim kom.

„Ljóðin björguðu mér og hjálpuðu mér að halda út starfið mitt. Kennslan er erfið en það eru ekki börnin. Stundum var maður óheppinn. Ég skipti um skóla þegar mér fannst ekki ganga vel. Það var líka dálítið mikið um kynferðislegt áreiti í gamla daga og það er ekkert leyndarmál. Aldrei hefur verið tekið á skólastjórum en þeir voru margir slæmir.

Ég vildi vera eigin útgefandi. Ég vildi eiga bækurnar mínar sjálf og ekki þurfa að kaupa þær af öðrum. Ég hef alltaf prentað í bestu prentsmiðjum og kápurnar tengjast myndlist og myndverkum. Myndlistin hefur alltaf fylgt mér. Tónlistin ekki síður. Ég á eina dóttur og hún á tvö börn sem bæði eru í tónlist og hún ferðast mikið með þeim tengt tónlistinni. Við ferðumst stundum saman og hún er mín besta vinkona.

Nú búa tvö barnabarnanna minna, en ég á ellefu, í Ósló og er annað þeirra dóttursonur minn, í framhaldsnámi á fiðlu. Ég er norsk að einum fjórða og ég er búin að láta þýða fyrir mig nokkur ljóð á norsku. Ég skrifa villulausa dönsku, þetta eru lík tungumál en það ólík að ég tala ekki norsku, það verður bara danska með svolítið syngjandi hreim. Þegar kemur að börnunum mínum fjórum og barnabörnum er ég svolítið montin því þar er hver silkihúfan upp af annarri. Börnin mín passa svo vel börnin sín að ég hef engar skyldur. Ég lifi svo miklu munaðarlífi.“

Útgáfuboð og tónleikar heima hjá Önnu.

Á sér sína fylgjendur

En það þýðir ekki að hún sé afskiptalaus því hún nýtur þess að gefa barnabörnunum bæði tíma og gjafir og á öllum sínum ferðalögum gefur hún sér tíma til að velja handa þeim eitthvað fallegt. Kristján Davíðsson listmálari var eiginmaður föðursystur og nöfnu Önnu, Svanhildar Björnsdóttur. Anna átti nokkur verk eftir hann en er búin að gefa börnunum sínum allar myndirnar nema eina. Anna hefur einnig safnað verkum yngri myndlistarmanna og sum hafa ratað á kápur bóka hennar. Ertu enn að selja bækurnar þínar?

„Ég hef minnkað að selja ókunnugum og sendi ekki út um allt land eins og áður, segir hún. „Ég hélt að þetta væri allt að verða búið og vandaði mig mjög mikið við Kyrralíf en síðan kom aukakraftur.“

Þar vísar Anna til nýjustu bókar sinnar, Síðasti dans. „Upphaflega átti þetta að vísa til míns síðasta dans en inn í miðri bók breyttist það í síðasta dans mömmu. Hún var mjög ánægð þegar ég fór að skrifa og sagði við mig nokkrum árum áður en hún dó: „Þú mátt nota mig alveg eins og þú vilt.“ Skömmu eftir að hún dó varð til bókin, Í englakaffi hjá mömmu. Eftir það fóru ljóðin að verða meira ævisöguleg. Fyrst skrifaði ég meira um ástina og dauðann en þegar þær fóru að snúa meira að mér varð eins og bækurnar yrðu vinsælli. Sjálf hef ég mest gaman af að lesa ævisögur. Fólk finnur einhvern samhljóm. Við stóðum oft í Kolaportinu í gamla daga, mamma með handavinnu og ég með bækurnar. Þá komu konur stundum til mín og sögðu: „Þetta er eins og ég hefði skrifað þetta.“ Þá varð ég svo ánægð.“

Anna með dóttur sinni og barnabarni og heimagerðum jólakrönsum.

Býr ein en finnur ekki fyrir einsemd

Konunum fannst ljóðin eins og töluð út úr þeirra hjarta, enda sorgin, söknuðurinn, ástin og baráttan við hversdaginn eitthvað sem allir þekkja. En það er fleira sem ljóðin hafa fært Önnu en ferðalög. Hún hefur kynnst ljóðskáldum hvaðan æva að úr heiminum og tekið á móti þeim mörgum hér heima.

„Ég átti góða vinkonu í Danmörku sem er látin núna,“ segir Anna og brosir. „Hún tók upp á því einu sinni að senda mér hóp af ljóðskáldum og spurði ekkert hvort ég væri tilbúin. Ég náttúrulega tók bara á móti þessu fólki og setti saman dagskrá. Úr varð stærsta hátíðin mín, Dansk høst í Norræna húsinu. Þorvaldur Örn Árnason hefur gert lög við ljóðin mín og dóttir hans er sellóleikari og þau komu og sungu ljóð úr bók minni Skilurðu steinhjartað.“

Þetta varð ekki eina ljóðahátíðin sem Anna hefur gengist fyrir. Þau eru orðin mörg ljóðakvöldin og veislurnar þar sem hún hefur leitt saman fólk sem nýtur ljóða, tónlistar og annarrar menningar.

„Þegar ég held veislur sér tengdasonur minn um veitingarnar og þau ganga frá fyrir mig. Krakkarnir koma líka oft fram og skemmta þessum hópi sem er í kringum mig. Margir kennarar eru þar á meðal og kennarar elska að fylgjast með ungviðinu.“

Anna er tvígift, fyrri maður hennar var Örn Ásbjarnarson en þau eignuðust tvo drengi, seinni maðurinn var Einar Aðalsteinsson en hann fórst af slysförum árið 1998. Drukknaði í vatni á Ítalíu. Hann var aðeins fimmtíu og sjö ára. Þau áttu tvö börn. Slík sorg tekur á en Anna segist vera þrautseig og lífsglöð en raunsæ.

„Ég er svolítið mikið ein með sjálfri mér. Ég þarf ekki stöðugan félagsskap eða vera í félagsmálum. Ég fer á menningarsamkomur sem ég vel mér. Þegar kemur að því að maður þurfi að yfirgefa þetta líf, sem ég hlakka ekki til, verða bara sungin dægurlög í jarðarförinni. Ég elska ekki síst íslensk dægurlög. Börnin mín eru hugrökk og þora að tala um þetta. Sumir láta eins og þeir munu aldrei deyja og eru alltaf að hugsa um eitthvað annað. Ég vil vera undirbúin af því ég trúi ekki á framhaldslíf lengur,“ segir hún að lokum.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.