Edinborg gömul, virðuleg og hlýleg

Edinborg er heillandi borg og yfir henni bragur menningar, sögu og skemmtunar. Byggingar eru gamlar og virðulegar og allt yfirbragðið ber þess vitni að í borginni hefur öldum saman verið mikið mennta- og stjórnarsetur. En borgin er langt frá því að vera dauflegt safn, þvert á móti, þar iðar allt af lífi.

Auglýsing

Edinborg er byggð á berggrunni og allt í kring eru kulnuð eldfjöll, gamlir gígar og gjár. Eftir borginni miðri liggur stórt gil en gömul þjóðsaga segir að þar hafi eitt sinn verið vatn. Nor Loch hét það og sagt var að það hefði verið enn fegurra en Loch Lomond sem á að vera fallegasta vatn Skotlands. Einhvern tíma í fornöld þornaði vatnið upp en við það fengu sagnirnar um fegurð þess byr undir báða vængi. Nú á dögum er fátt sem minnir á vatnið annað en að viskílíkjör var nefndur eftir því og kallaður Lochan Ora eða gullna vatnið. Hann var fyrst framleiddur árið 1968 en Chivas Regal hætti framleiðslu hans árið 2010. Flöskur ganga síðan kaupum og sölum á netinu fyrir háar upphæðir.

Í miðbænum eru elstu hverfin sem heita gamli bær og nýji bær. Nýji bær er reyndar þriggja alda gamall en gamli bær enn eldri. Kastalinn sem gnæfir yfir bænum er byggður á átjándu öld og að mestu í miðaldastíl. Hann er eingöngu hernaðarmannvirki og þar hafa aldrei búið hertogar, kóngar eða aðrir prelátar. Hermenn voru þjálfaðir þar og setuliðið sem ver borgina hefur alltaf haft þar aðstöðu. Þegar hætta steðjaði að var þjóðhöfðinginn hins vegar fluttur frá Holyrood höll og upp í kastalann til að tryggja öryggi hans. Í kastalagarðinum er að finna elstu byggingu bæjarins sem er lítil kapella sem talið er að hafi verið byggð á tíundu öld.

Skemmtilegar krár og frábærar verslanir

Frá kastalanum og niður að Holyrood höll liggur konunglega mílan eða The Royal Mile. Gatan var nefnd þessu nafni því að hún var nákvæmlega ein ensk míla að lengd. Elstu hús bæjarins standa við þessa götu en þó er að finna innan um nokkur heldur yngri hús. Flest elstu húsin eru byggð í grískum stíl og eru frá miðöldum en húsin í nýja bæ eru í Georgísk og byggð á seinni hluta sextándu aldar og fram undir 1850.

Í borginni hefur alla tíð verið mikil miðstöð viðskipta og verslunar og þar geta þeir verslunarglöðu unað sér daga langa á Princes Street meðan hinir reika um National Gallery of Scotland og Scottish National Gallery of Modern Art þar sem er m.a. að finna verk eftir frönsku expressjónistana Cezanne, Degas og Renoir.

Við Candlemaker Row, St. Stephen Street og Grassmarket er að finna úrval antíkverslana sem einstaklega gaman er að heimsækja. Við Grassmarket eru einnig mörg góð veitinga- og kaffihús en þau er reyndar víðar að finna. Krárnar í borginni eru margar og skemmtilegar. Dean Brodie’s Tavern heitir eftir djáknanum skuggalega sem varð Robert Louis Stevenson fyrirmynd að Dr. Jekyll and Mr. Hyde og í skugglegu horni á kránni situr djákninn í eigin persónu en gefur sig lítið að gestum. Allir kráareigendur í borginni eru sérfræðingar í viskíi og sé maður svo heppinn að hitta á þá við afgreiðslu á barnum eru þeir óþreytandi að leyfa manni að smakka ýmsar tegundir af þeim eðaldrykk.

Frumkvöðlar og vískíbragð

Viskí er jafnsamofið sögu Skotlands og sjálfstæðisbarátta þeirra gegn Englendingum og hvert hérað hefur sín séreinkenni. Meðal framleiðenda á skosku viskíi var að finna skapandi frumkvöðla og einn þeirra var George Ballantine. Hann var bóndasonur með mikinn metnað. Hann setti á stofn matvöruverslun í Edinborg og seldi meðal annars úrval viskítegunda. Hann taldi sig finna að menn væri ekki alls kostar ánægðir með allt það sem hann bauð upp á og vildi gera betur. Hann stofnsetti því sína eigin viskígerð árið 1865 og fljótlega kom í ljós að hann hafði góða tilfinningu fyrir því hverju viskíunnendur sæktust eftir. Í dag er Ballantine’s er þekktasta skoska vörumerkið í Evrópu og hægt að koma við í brugghúsinu og fræðast um þennan skoska drykk.

Ballatine‘s er bragðmikið viskí og tegundirnar draga bragð sitt af fimmtíu maltegundum og fjórum korntegundum að auki. Maltið fær verksmiðjan frá Miltonduff and Glenburgie. Það þykir einkar jafngott eða „balanced“ og sérfræðingar telja að það sé vegna þess að engin ein korntegund er ráðandi í blöndunni. Þegar þær koma saman verður úr bragðsinfónía fremur en að eitt nái að yfirgnæfa annað. Ballantine‘s-verksmiðjurnar eru reknar af miklum metnaði og í dag framleiða þær ótal vörumerki og tegundir sem sumar hafa sópað að sér verðlaunum á vörusýningum og í keppnum víða um heim.

Aðdáendur galdrastráksins Harry Potter verða ekki sviknir af því að heimsækja Edinborg því   mörg atriði í kvikmyndunum um hann voru tekin upp þar. Höfundurinn J.K. Rowling býr þar stóran hluta af árinu og hún á einnig sveitasetur í nágrenni borgarinnar uppi í skosku hálöndunum. Í nágrenni við bústað hennar, þar sem Rob Roy stiklaði áður á steinum yfir ár og læki, var þriðja Harry Potter-kvikmyndin, Fanginn frá Azkaban tekin upp.

En fyrst minnst er á Rob Roy McGregor þá lifði sú hetja og dó í skosku hálöndunum. Sumir vilja meina að hann, Robert de Bruce og William Wallace séu meðal fyrirmynda að persónum í sjónvarpsþáttunum Outlander. Rob Roy er fyrir Skotum líkt og Grettir Ásmundarson Íslendingum og af honum eru sagðar margar sögur. Í Peterculter við Aberdeen er stytta af kappanum þar sem hann stendur með sverð sitt í hönd en hann var sagður óvenjulega handleggjalangur og listamaðurinn hefur gert því skil.

Richard Rankin leikur Rebus í nýjum sjónvarpþáttum um kappann. Hann er ekki skyldur höfundi bókanna þótt þeir beri sama ættarnafn.

Glæpir og refsing í Edinborg

Robert Louis Stevenson og Sir Walter Scott eru án efa þekktustu skáldsagnahöfundar Skota ef undan er skilinn Ian Rankin en bækur hans um Rebus lögregluforingja njóta mikilla vinsælda. Rebus leysir flókin morðmál í Edinborg milli þess sem hann reika milli kránna. Sir Walter Scott er aftur klassískari og margar af bókum hans gerast í hálöndunum og fjalla iðulega um frelsisbaráttu Skota og tilraunir þeirra til að halda Stewart-ættinni á konungsstóli í Bretlandi. Það var rómantískur og átakamikill tími í skoskri sögu og fjölmargar hetjudáðir drýgðar. Robert Louis var hins vegar ævintýrahöfundur og fáir sem ekki þekkja Fjársjóðseyjuna, fyrstu sjóræningabókina sem sló í gegn og Long John Silver er ógleymanleg skáldsagnapersóna. Stevenson lifði mjög ævintýraríku lífi sjálfur og dó á eyju í Suðurhöfum. Það má einnig nefna að Alexander McCall Smith býr í Edinborg og þótt vinsælustu bækur hans um Kvenspæjarastofu nr. 1 gerist í Botswana eru einnig bækur eftir hann sem gerast í Skotlandi.

Eitt af því sem einkennir Skota eru þjóðlögin þeirra sem eru ýmist drykkjuvísur, angurværir ástarsöngvar eða stríðssögur. Lengi voru Skotar notaðir sem fallbyssufóður af Englendingum því þeir voru fátækir og höfðu um lítið annað að velja en hermennsku ef þeir áttu að lifa af. Textar laganna lýsa því þegar hermenn koma heim eftir að stríð eða söknuði þeirra sem heima bíða. Frelsisþráin skín einnig úr textunum og lögin voru enskum yfirvöldum þyrnir í augum því þau ýttu undir og héldu baráttuandanum logandi.

Tvískipt hátíð

Á undanförnum árum hefur stöðugt færst í vöxt að ferðalög fólks taki mið af áhugamálum þess. Golfáhugafólk ferðast gjarnan til Skotlands til að sjá kúluna detta ofan í hverja holuna á fætur annarri enda er íþróttin upprunnin þar í landi. Fyrir ofan Edinborg bíða svo skosku hálöndin og frá borginni streymir gjarnan hópur ferðalanga tilbúinn að leggja land undir fót annað hvort gangandi á hæstu tinda eða hjólandi upp og niður hæðir og hóla.

Skoska þingið er staðsett í Edinborg en það var endurreist árið 1999 við mikinn fögnuð flestra Skota en margir þeirra eru fylgjandi sjálfstæði landsins. Endurreisn þingsins hefur hleypt enn meira lífi í iðnað, verslun og menningu í borginni. Edinborgarhátíðin sem haldin er í ágúst á hverju ári er ein elsta og virtasta menningarhátíð í heimi og sú síðasta þótti með eindæmum glæsileg. Hátíðin hefur lengi skipst í tvennt þ.e. opinbera hátíðin og sú óopinbera. Á opinberu hátíðina er boðið virtum listamönnum alls staðar að úr heiminum en á hina óopinberu flykkjast tilraunalistamenn, nýlistafólk og götulistamenn og sýna á götum úti eða í kjöllurum og skúmaskotum hvar sem nokkurt ónotað pláss er að finna.

Borgin er afburðafalleg og landfræðileg staðsetning hennar slík að varla er á byggðu bóli að finna fegurra bæjarstæði, enda sagði Robert Louis Stevenson um borgina sína: „Enginn staður gæti verið tignarlegra aðsetur fyrir stjórnanda konungdæmis og enginn betur fallinn til að hvetja til göfugra markmiða.“

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.