Að búa til flík úr bandi – peysan er að fá á sig mynd

Peysan er nú að fá á sig mynd en það hefur ekki verið alveg þrautalaust! Ég hef nú farið í gegnum ferilinn að reyna að búa til flík úr bandi og tek ofan fyrir öllum flinku prjónurunum sem við vitum öll um. Þeir verðskulda meiri viðurkenningu því þeir eru meiri listamenn en fólk veit almennt um. Ég held ótrauð áfram en svindla pínulítið því ég er með einn af þessu listaprjónurum, Gyðu Einarsdóttur, á hliðarlínunni. Gyða er svo hvetjandi en stundum þykir mér hún heldur smámunasöm þegar ég hef aðeins ruglast í munstrinu. En líklegast hefur hún rétt fyrir sér.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.