Hlaðvarp er eyrnakonfekt

Hlaðvarp eða podcast er nýr miðill. Náskyldur útvarpi en heldur minni hátíðleiki yfir því sem fer fram og ansi margir þáttastjórnendur á persónulegri nótum en við eigum að venjast á flestum útvarpsstöðum. En íslensk hlaðvörp eru fjölbreytt, fróðleg, skemmtileg og opin allan sólarhringinn. Lítum á nokkur:

Komið gott er í umsjón Ólafar Skaftadóttur og Kristínar Gunnarsdóttur. Þær stöllur fara um víðan völl, skoða pólitíkina og þjóðmálin, oft frá alveg nýjum sjónarhornum. Helsti kostur þeirra er að þær taka hvorki sjálfar sig né þjóðmálin of alvarlega.

https://open.spotify.com/show/0MOGvOhy1255O5DG4xU5uj

Eftirmál er í umsjá Þórhildar Þorkelsdóttur og Nadine Yaghi. Þær rifja upp margvísleg áhugaverð og oft alvarleg mál sem upp hafa komið í samfélaginu og velt fyrir sér eftirmálum þeirra. Hvar eru helstu aðilar þessara mála í dag og hefur einhver ný lausn fundist?

https://www.storytel.com/is/podcasts/eftirm%C3%A1l-162475

Flimtan og fáryrði heyrast iðulega í hlaðvarpi þeirra Gunnlaugs Bjarnasonar óperusöngvara og Ármanns Jakobssonar prófessors um óperur og söngleiki. Þeir félagar eru ansi naskir á kosti og galla þeirra stórvirkja tónlistarheimsins sem eru til umfjöllunar hverju sinni og það er á við góða óperu að hlusta á þá.

https://open.spotify.com/show/7pqeMIBWWGnz99zTuW06k9

Bókaklúbbur Ragnars Jónassonar rithöfundar er áhugaverður fyrir alla bókaunnendur. Ragnar tekur viðtöl við rithöfunda og talar um bækur.

https://www.storytel.com/is/podcasts/b%C3%B3kakl%C3%BAbbur-ragnars-j%C3%B3nassonar-53461

Förusögur Sigursteins Másonar eru stórskemmtilegar ferðasögur, enda Sigursteinn fundvís á spennandi sögur og áhugaverðar staðreyndir um þá staði sem hann heimsækir. Það mjög gaman að hlusta á svona hlaðvarp og njóta þess svo að fara á staðinn og sjá hann með alveg nýjum augum.

https://www.storytel.com/is/podcasts/f%C3%B6rus%C3%B6gur-50678

Mörg fleiri góð íslensk hlaðvörp mætti nefna og margir eru farnir að leita út fyrir landsteinana að góðum hlaðvörpum og þar er úrvalið enn meira en hér á landi. Morð og aðrir glæpir eru vinsæl viðfangsefni, sömuleiðis lífsstíll, tónlist, sjálfsrækt og allt milli himins og jarðar. Um að gera að skoða úrvalið á hlaðvarpsveitum og njóta.