Ævintýraeyja í Grófinni á Menningarnótt

Á Menningarnótt, 22. ágúst, verður að vanda líf og fjör á Borgarbókasafninu Grófinni. Glæsileg og fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna með stórskemmtilegu þema.

Auglýsing

Eyjaskeggjar á Grófareyju munu bjóða ævintýraþyrsta landkönnuði á öllum aldri velkomna í leiðangur á Borgarbókasafninu Grófinni á Menningarnótt, fimmtudaginn 22. ágúst milli kl.13:00 og 21:00.

Á Grófareyju verður sannarlega eitthvað fyrir öll, dýraratleikur, krakkakviss, eyjagroove með Djasskrökkum, blómakransagerð úr pípuhreinsurum, eyðieyjuhopp, töfrar skrautskriftar og samsöngur með Valla varúlfi.

Tilvalið er að koma sér vel fyrir inn á milli trjánna í Grófarskógi, þar sem meðal annars vex ævisagnaburkni, ráðgátugreni og fantasíurunnar og kubba sitt eigið furðudýr úr LEGOkubbum eða föndra grímur innblásnum af dýraríkinu, læra grunnatriðin í salsadansi með maestro Jóhannesi eða teygja úr sér í krakkalakkajóga, líkt og þú værir gíraffi.

Áður en flugeldar lýsa upp kvöldhimininn verður gott að hlæja saman eins og hýenur yfir bröndurum grín-anda eyjarinnar, Andra Ívars.

Sjálfu með Ara apa og Sæunni slöngu er svo skemmtilegt að eiga til minningar um leiðangurinn góða.

Aðgangur út í Grófareyju er ókeypis og eru öll hjartanlega velkomin.

Sjáumst á Menningarnótt!

Dagskrána í heild sinni má sjá á heimasíðu Borgarbókasafnsins:
www.borgarbokasafn.is