Leiksýningin Djöflar verður til umfjöllunar á næsta Leikhúskaffi sem fram fer á Borgarbókasafninu Kringlunni, þriðjudaginn 22. september frá kl. 17:30 – 18:30.
Leikstjórinn Stefán Jónsson segir frá sýningunni, nálgun sinni á verkið og aðferðafræði. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Nýja svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin, sem hönnuð er af Berki Jónssyni, verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.
Leiksýningin Djöflar eftir Lars Norén verður frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins í byrjun október. Sýningin er spennuþrungin kvöldstund með svörtum húmor og kostulegum uppákomum. Stefán Jónsson leikstýrir þessum áhrifamikla hjónaleik eftir eitt fremsta leikskáld Norðurlanda.
Gestum á Leikhúskaffi býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna.
Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!







