Björgvin Guðmundsson skrifar
Þegar verkalýðshreyfingin fór fram á að laun fyrir skatt hækkuðu í 300 þús. kr á mánuði (2018) fór Landssamband eldri borgara fram á það sama fyrir aldraða. Við afgreiðslu á nýju lögum um almannatryggingar 2016/2017 lýsti ríkisstjórn Sigurðar Inga og Bjarna Benediktssonar því yfir,að lífeyrir aldraðra og öryrkja mundi hækka í 300 þúsund 1.jan 2018. En hverjar eru efndirnar: Aðeins 29% öryrkja fær 300 þús. kr á mánuði fyrir skatt ,þ.e. þeir sem búa einir. Hinir fá aðeins 239 þúsund. Enn færri meðal aldraðra fá 300 þúsund fyrir skatt eða 15-20%. Hinir fá aðeins 239 þús. Auk þess er á að líta,að skatturinn á eftir að hirða af því,sem fæst fyrir skatt tæp 20%.Það er því lítið eftir fyrir húsnæðiskostnaði og öllum útgjöldum.
Hækkun lífeyris í 300 þúsund á mánuði hefur reynst blekking. Stjórnarherrarnir eru búnir að flagga þessari „hækkun“ mikið. En í raun er það svo að aðeins hluti lífeyrisþega hefur fengið 300 þúsund og það fremur lítill hluti. Er ekki tímabært að hætta blekkingarleik og veita öldruðum og öryrkjum raunhæfar kjarabætur?