Græðir 60 þúsund á mánuði ef hann skilur

Wilhelm Wessman

„Þurfum við að skilja eftir 50 ár hjónaband til þess að komast fjárhagslega af? Þegar við Ólöf giftum okkur og eignuðumst þrjú börn voru engar barnabætur. Á þeim tíma þótti það nánast brottrekstrarsök að ég tók mér frí daginn sem hún kom heim af fæðingadeildinni af því að það var laugardagur, annasamasti dagur vikunnar í hótel og veitingageiranum,“ segir Wilhelm Wessman í færslu á Fésbókarsíðu sinni. Wilhelm heldur áfram og segir:

„Ég byrjaði að greiða í lífeyrissjóð 1968 til að geta tryggt okkur fjárhagslegt öryggi á efri árum og borgaði skatt af þeim hluta sem ég greiddi í 20 ár, eða þar til staðgreiðslan kom 1988.Ég greiði skatt í dag af þessum sömu peningum. Heitir þetta ekki tvísköttun?

Þar sem við Ólöf tókum þá ákvörðun að hún mundi vera heimavinnandi til að gæta barnanna á hún enginn lífeyrissjóðsréttindi og hefur því 204,000 eftir skatt frá TR.  TR skerðir mínar lífeyrisgreiðslu eftir skatt um 45% þannig að ævisparnaðurinn er farinn.

Til þess að geta hreykt sjálfum sér á tyllidögum og í ræðupúlti Alþingis fundu ráðherrar og alþingismenn á ofureftirlaunum upp það snjalla bragð að greiða einhleypum eldri borgurum sem eru um 25% af okkur,  60 þúsund krónur á mánuði í heimilisuppbót. Þannig geta þeir hreykt sér að því að eldriborgarar séu með 300,000 fyrir skatt á mánuði og að TR greiði hæstu eftirlaun allra landa.

En staðreyndin er að Ísland skorar nánast lægst allra OECD landana þegar kemur að hlutfalli greiðslu eftirlauna af VLF aðeins 2,6%. Á hinum Norðurlöndunum eru lífeyrisgreiðslur hins opinbera 5,4-11% af VLF og nánast óþekkt að lífeyrisjóðsgreiðslur séu skertar.

Skilnaður er því eina leiðin til að hækka launin um 60 þúsund á mánuði.“

Ritstjórn nóvember 19, 2018 12:11