Leikhúskaffi um Mömmó

Nú styttist í að sýningin Mömmó eftir Paulu Vogel verði frumsýnd í Borgarleikhúsinu. Í næstu viku verður því boðið upp á leikhúskaffi í Borgarbókasafninu í Kringlunni.

Mömmó verður frumsýnd þann 13. mars og er nýjasta verk Paulu Vogel en hún er höfundur Ökutíma en það verk naut mikilla vinsælda í Borgarleikhúsinu árið 2024 og var tilnefnt til allra hugsanlegra leiklistarverðlauna Bandaríkjanna eftir að það var sett upp þar. Mömmó er að hluta til sjálfsævisögulegt en Vogel byggir það á sambandi sínu við móður sína og bróður. Agnar Jón Egilsson leikstýrir og með hlutverk fara Sigrún Edda Björnsdóttir, Birna Pétursdóttir og Hákon Jóhannesson.

Paula er fædd í Bandaríkjunum árið 1951 og er m.a. handhafi Pulitzer-verðlauna. En um hana sagði John Simon að hún safnaði verðlaunum eins og svartur sófi safnaði ló. Verk hennar hafa verið sýnd víða um heim og í fjölmörgum virtum leikhúsum og hvarvetna hlotið góða aðsókn. Leikhúskaffið fer fram á Borgarbókasafninu í Kringlunni, þriðjudaginn 24. febrúar kl. 17:30 og áhugasamir ættu að taka daginn frá og njóta þess að fræðast um þennan áhugaverða höfund og verkið hennar.