Á fljúgandi ferð um Mexíkó, Spán og Frakkland

Það færist í vöxt að þekktir leikarar og leikkonur geri sína eigin ferðaþætti. Skemmst er að minnast þátta Joönnu Lumley en þeir hafa verið sýndir á RÚV og Stanley Tucci hefur gert nokkrar seríur um Ítalíu. David Suchet fetaði í fótspor Agöthu Christie í fyrra og Jason Momoa og Eugene Levy hafa verið á faraldsfæti. Eva Longoria stökk á vagninn árið 2023 þegar hún heimsótti Mexíkó. Þaðan kemur hluti forfeðra hennar en árið 2023 fór hún til Spánar en í ættum hennar er líka spænskt blóð og í ár fylgir hún því eftir með því að skoða sig um í Frakklandi.

Eva vakti fyrst athygli Íslendinga þegar hún lék Gabrielu Solis í Desperate Housewives. Hún hefur það orð á sér að hún sé vinnusöm og áreiðanleg. Hvort þeir eðliseiginleikar hafi átt sinn þátt í að hún hlaut Screen Actors Guild Award fyrir leik sinn í Only Murders in the Building seríu 4 skal ósagt látið. Hún er einnig bráðsnjöll kaupsýslukona og rekur eigið kvikmyndaframleiðslufyrirtæki og á einnig snyrtivörufyrirtæki sem framleiðir húðvörur og ilmvötn. Það er einmitt kvikmyndafyrirtæki hennar sem framleiðir þættina en Eva sýnir á sér alveg nýja hlið í þeim.

Hún er augljóslega mikil málamanneskja því hún talar reiprennandi bæði spænsku og frönsku. Að auki hefur hún mikinn áhuga á mat og talar af þekkingu og innsýn við kokka og leikmenn um matinn sem þeir framreiða. Þetta er raunar eitt af því sem er skemmtilegt við ferðaþætti af þessu tagi, hver og einn kemur með sitt að borðinu, segir frá því sem heillar hann mest og vekur áhuga hans. Joanna Lumley fræðir okkur um söguna, David Suchet leitaðist við að setja sig í spor ungrar Agöthu Christie og veita áhorfendum innsýn í hvernig hún upplifði staðina sem ferðast var til og Stanley Tucci er upptekinn af matnum en einnig daglegu lífi fólksins á Ítalíu og hvernig umhverfið mótar matarhefðirnar. Eva er á mjög svipuðum stað og hann en menning, matur og umhverfi er nátengt einkum í gegnum þau hráefni sem notuð eru í matargerð og hvernig aðferðir mótast í gegnum tíðina.

Dans, leikur og hjónabandsvandræði

Eva Longoria fæddist 15. mars 1975 í Corpus Christi í Texas. Hún var yngst fjögurra systra og óx upp á nautgripabúgarði í nágrenni borgarinnar. Hún er af mexíkóskum uppruna en er engu að síður sú eina af systrunum sem erft hefur dökka hárið og hörundslitinn. Systur hennar eru allar ljóshærðar og bláeygðar. Eva hefur sagt í viðtali að þegar hún var barn hafi hún oft velt því fyrir sér hvort hún væri ættleidd en svo er ekki. Frá unga aldri lærði hún dans og í langan tíma dansaði hún með frægum dansflokki sem kallar sig Pussycat Dolls.

Hún lauk BS-prófi í kinesiology sem þýða mætti sem hreyfifræði eða stúdía í því hvernig fólk hreyfir sig frá Texas A&M í Kingsville. Skömmu eftir útskrift tók hún þátt í hæfileikakeppni og var í kjölfarið boðið til Los Angeles. Þar kom umboðsmaður auga á hana og var fljótur að koma henni á framfæri. Eva lék gestahlutverk í The Bold and the Beautiful og fljótlega fékk hún einnig hlutverk í Beverly Hills, 90210. Fyrsta aðalhlutverkið var í The Young and the Restless en þegar hún tók að sér að leika Gabrielle Solis í Desperate Housewives varð hún heimsfræg nánast á einni nóttu. Eva var yngst leikkvennanna í þáttunum en hún starfaði þá einnig sem fyrirsæta. Hún var andlit L’Oreal og kosin ein af fallegustu konum heims oftar en einu sinni m.a. af tímaritinu Maxim.

Eva er gift mexíkóska kaupsýslumanninum, José Antonio Bastón Patiño og þau eiga einn son saman. Áður var hún gift leikarnum, Tyler Christopher en þau skildu árið 2004. Þá tók hún saman við Tony Parker þekktan körfuboltamann í liðinu San Antonio Spurs. Hjónaband þeirra endaði með látum þegar hún uppgötvaði að hann átti í ástarsambandi við eiginkonu liðsfélaga síns. Þau skildu árið 2014 og tveimur árum síðar kynntist Eva José Antonio. Sameiginlegur vinur þeirra, Ricardo, vildi koma þeim á stefnumót en minnstu munaði að José Antonio hætti við á síðustu stundu vegna anna en svo ákvað hann að láta slag standa og þau hafa verið nánast óaðskiljanleg síðan.

Ferðaþættir Joönnu Lumley hafa verið sýndir á RÚV, Stanley Tucci er á Disney+ stöðinni og David Suchet á  Amazon Prime og Apple TV. Eva er sýnd á HBO og sumir hér á landi hafa aðgang að þeirri stöð gegnum Sýn. Vonandi fá Íslendingar að njóta fleiri ferðaþátta af þessu tagi því þeir gefa fólki kleift að njóta ævintýra sitjandi í sófanum heima.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.