Brooke Shields er 61 árs og leikur um þessar mundir aðalhlutverk í nýrri sjónvarpsþáttaseríu, You’re Killing Me. Þáttunum er lýst þannig að hér sé nútímaútgáfa af, Murder She Wrote með Angelu Lansbury en Brooke leikur metsöluhöfundinn Allison Chandler. Rétt eins og Jessica Fletcher skrifar Allison glæpasögur. Þegar Andrea Walker kemur inn í líf Allisons fer sannkölluð morðalda að herja á litla bæinn þar sem hún býr.

Brooke Shields leiðir nú eigin sjónvarpsseríu, You’re Killing Me.
Þetta er ekki fyrsta sjónvarpshlutverk Brooke en hún hefur verið í sviðsljósinu frá fæðingu og tekist að endurnýja ferilinn þónokkuð oft. Árið 2022 kom út heimildakvikmynd í tveimur hlutum um ævi leikkonunnar, Pretty Baby. Þar kemur fram að móðir hennar, Teri, var þess fullviss frá því að hún fékk dóttur sína í fangið nýfædda að hún yrði stjarna. Brooke var ellefu mánaða þegar hún „lék“ í sinni fyrstu auglýsingu. Þar var verið að auglýsa sápu.

Brooke sá fyrir sér og móður sinni frá unga aldri.
Brooke var aðeins fimm mánaða þegar foreldrar hennar skildu og mjög fljótlega var hún orðin eina fyrirvinna heimilisins. Teri helgaði sig starfsframa dótturinnar og var mjög metnaðarfull fyrir hennar hönd. En Teri glímdi við áfengisfíkn alla ævi og Brooke var mjög fljótt farin að hugsa um móður sína þegar illa var komið fyrir henni vegna sjúkdómsins og varð fljótt mjög ábyrg og sjálfstæð. Litla stúlkan starfaði jöfnum höndum sem leikkona og fyrirsæta og hún var aðeins ellefu ára þegar hún lék í kvikmyndinni Pretty Baby. Þar lék hún barn í vændi og myndin vakti mikla hneykslun. Sömu sögu var að segja um næstu tvær, Endless Love og Blue Lagoon. Í þessum myndum voru kynlífs- og nektarsenur sem mörgum fannst svo ungt barn ekki eiga að taka þátt í. Margir voru mjög hneykslaðir á að móðir hennar og jafnframt umboðsmaður skyldi leyfa þetta.

Brooke var einstaklega fallegt barn.
Saklaust kyntákn
Og skyndilega var þessi unglingsstúlka orðin helsta kyntákn Bandaríkjanna. Fimmtán ára lék hún í auglýsingaherferð Calvin Klein. Sýndi þar níðþröngar gallabuxur tískuhússins og sagði að ekkert kæmi á milli sín og Calvin Klein gallabuxnanna sinna. En sjálf var hún óskaplega saklaus og hafði aldrei farið á stefnumót. En þetta þótti ekki gott uppeldi og Teri fékk að kenna á hneykslun landa sinna. Sjálf hefur Brooke ævinlega tekið svari móður sinnar og sagst ekki hafa skaðast af þessu. Þær mæðgur voru mjög nánar alla tíð þrátt fyrir að veikindi Teri yllu oft erfiðleikum. En það verður að segjast að barnið naut lítillar verndar. Aðdáendur hennar voru óvægnir og stundum miskunnarlausir í gagnrýni sinni og kröfum um athygli frá stjörnunni. Eitt sinn reyndi einn þeirra að klippa af henni hárið í því skyni að fá minjagrip með sér heim. Fjölmiðlar fjölluðu einnig um allt er hana varðaði og hlífðu hvorki henni né móður hennar. Það var erfitt fyrir unga stúlku að taka þetta allt inn og Brooke var sannarlega ekki ósnortin.

Brooke var orðin kyntákn aðeins 15 ára.
Árið 1981 kallaði tímaritið Time Brooke andlit áratugarins og varla var til það mannsbarn í Bandaríkjunum og Evrópu sem ekki vissi hver hún var. Segja má að hún hafi þarna verið á hátindi frægðar sinnar. Allt stóð henni opið. Þá ákvað hún að venda sínu kvæði í kross og hefja háskólanám. Hún gekk í Princeton-háskóla og útskrifaðist með láði árið 1987, lauk BA-gráðu í rómönskum tungumálum og frönskum bókmenntum.
Brooke taldi að auðvelt yrði að halda áfram þar sem frá var horfið eftir námið en komst að því að þriggja ára hlé í kvikmyndabransanum getur beinlínis jafngilt dauðadómi yfir starfsferlinum. En að gefast upp er ekki til í hennar orðabók svo hún leitaði fyrir sér á sviði og lék í nokkrum söngleikjum á Broadway meðal annars Grease og Kabarett. Um þetta leyti kynntist hún tennisleikaranum Andre Agassi og þau giftu sig árið 1997 en skildu tveimur árum síðar. Hann var mjög stjórnsamur og meðal þess sem hann gerði var að taka yfir stjórn á málefnum konu sinnar og í raun gera tengdamóður sína atvinnulausa. Brooke segir í heimildamyndinni, Pretty Baby, að þetta hafi verið óhjákvæmilegt því móðir hennar var um þetta leyti orðin mjög langt leidd í sínum sjúkdómi. En engu að síður segir hún að þetta hafi verið mjög erfitt skref að stíga.

Með dóttur sinni, Rowan.
Sinn eigin herra

Með eiginmanninum, Chris Henchy.
Eftir skilnaðinn frá Andre varð hún sinn eigin herra eða sín eigin kona og tók yfir stjórnina á eigin lífi. Ferillinn náði ekki sama flugi og áður en hún fékk aukahlutverk í kvikmyndum og gestahlutverk í vinsælum sjónvarpsþáttum eins Friends. Enn og aftur sýndi hún hvað í henni býr og einfaldlega tók þeim verkefnum sem buðust og vann þau vel. Hún var opin í viðtölum um reynslu sína af því að vera þekkt fyrir æskufegurð sína og finna vinsældirnar dvína eftir því sem andlitið eltist. Þegar Brooke kynntist Chris Henchy árið 2001 vissi hún að nú væri komin tími til að stofna fjölskyldu. Hún hafði alltaf þráð að eignast börn og þess vegna kom henni í opna skjöldu að eftir fæðingu eldri dótturinnar, fann hún ekki fyrir gleði og hamingju heldur sökk ofan í mikið þunglyndi.

Með föður sínum Frank Shields. Hjá honum fann hún reglufestu og jafnvægi meðan á heimili hennar og móður hennar var allt óstöðugt.
Með aðstoð lyfja og meðferðaraðila tókst henni að komast yfir það og í kjölfarið skrifaði hún bók um reynslu sína. Down Came the Rain sem þykir bæði raunsönn og áhrifamikil lýsing á þessu ástandi. Margar konur finna fyrir miklum dapurleika fyrstu dagana eftir fæðingu. Þetta er eðlilegur fylgifiskur þeirra miklu hormónasveiflu sem verður í líkamanum í fæðingunni. Til að stilla af verkina sendir hann út vellíðunarboðefni en einnig fara í gang taugaboð sem auka vöðvasamdrátt í leginu og fleira. Það er vel þekkt að miklu flæði boðefna um líkamann fylgja „timburmenn“ ef svo má segja. Eftir nokkra daga líður þetta hjá en í ákveðnum tilfellum þróast þessi líðan yfir í lamandi þunglyndi.
Hreinskilni Brooke um líðan sína og lyfjanotkun vakti hneykslun hjá Tom Cruise og í kjölfarið steig hann fram og áfelldist leikkonuna fyrir að hafa tekið inn þunglyndislyf. Hann lýsti því einnig yfir að kærasta hans, Katie Holmes, myndi engin deyfilyf nota þegar að fæðingu kæmi hjá henni. Hvort svo fór er ómögulegt að vita en nokkru síðar þurfti Tom að éta orð ofan í sig og hann baðst afsökunar og sagði ummæli sín vanhugsuð.

Brooke var alla tíð mjög náin móður sinni þótt Teri hafi verið alkóhólisti og glíman við sjúkdóminn oft verið erfið.
Auk bókarinnar um fæðingaþunglyndi hefur Brooke skrifað barnabækur og bók um samband sitt við móður sína og um það að eldast. Brooke Shields Is Not Allowed to Get Old: Thoughts on Ageing as a Woman, heitir sú og fjallar um þær óraunhæfu fegurðarkröfur sem gerðar eru til kvenna í sviðsljósinu. Í viðtölum um það hefur hún sagt að hún hafi alltaf vitað að fegurðin myndi fölna og hún yrði að skynja og finna að hún væri mikils virði án hennar. Hún er mjög sátt í eigin skinni nú og segist engar áhyggjur hafa af því hvað öðrum finnst um útlit hennar. Auk alls þessa hefur hún sent frá sér eigin húðvörulínu og hárvörur. Og auðvitað er hún ekki hætt að leika og nú leiðir hún eigin sjónvarpsseríu en You’re Killing Me er spáð miklum vinsældum og hver veit nema Brooke leiki Allison Chandler jafnlengi og Angela Lansbury lék Jessicu Fletcher.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







