Flestir telja að ef þeir gæti hófsemi í áfengisdrykkju geti þeir verið nokkuð vissir um að lifrin sé hrein og starfi eðlilega. Því miður er það ekki svo þegar fólk eldist fer mataræði að hafa mun meiri áhrif á öll líffæri og þyngd, streitustig í daglega lífinu og hreyfing getur haft umtalsvert að segja um hversu heilbrigð lifrin er.
Hægt er að byggja upp fitu í lifrinni sé fólk í ofþyngd, með háan blóðsykur, hækkaðan blóðþrýsting, hátt kólestról í blóði eða ójafnvægi í blóðfitu. Allir þessir kvillar ýta undir og auka líkur á fólk fái sjúkdóm sem kallast á ensku, metabolic dysfunction-associated steatotic liver disease, or MASLD. Sjúkdómurinn var áður oft nefndur non-alcoholic fatty liver disease (NAFLD), eða óáfengistengd skorpulifur eða fitulifur ótengd drykkju. MASLD felur í sér fitusöfnun í lifur sem tengist efnaskiptaþáttum, svo sem insúlínviðnámi, sykursýki af tegund 2, háum blóðþrýstingi eða ofþyngd og talið er að einn af hverjum fjórum eldri borgurum hafi sjúkdóminn á einhverju stigi.
Til að tryggja heilbrigði lifrarinnar er mikilvægt að forðast unnar kjötvörur og annan gjörunninn mat. Gróft korn og trefjar virðast vinna gegn sjúkdómnum svo því meira sem fólk getur valið að slíkum matvælum í daglegum kosti sínum því betra. Læknar mæla einnig með að allir borði fisk að minnsta kosti þrisvar í viku og feitur fiskur og önnur matvæli er innihald Omega 3 olíur í ríkum mæli eru einnig góð vörn fyrir lifrina.
Kaffi ekki alslæmt
Hins vegar kann að koma á óvart er að nokkrar rannsóknir benda til að kaffi hafi góð áhrif á lifrina og sé vörn gegn skorpulifur. Rannsókn er fylgdi hópi eldri borgara yfir þrettán ára tímabil leiddi í ljós að þeir sem drukku kaffi reglulega höfðu heilbrigðari lifur en hinir sem sjaldan eða aldrei drukku kaffi. Þeir sem drukku allt að fimm bolla af kaffi á dag reyndust hafa fituminnstu og heilbrigðustu lifrina. Talið er að andoxunarefni og bólgueyðandi áhrif ákveðinna sýrutegunda í kaffi veiti vörn gegn lifrarsjúkdómum. Koffein virðist einnig hindra að ör myndist á lifrinni og þetta virka efni í kaffi eykur blóðflæði um lifrina. Meira að segja koffeinlaust kaffi hefur góð áhrif þótt þau séu minni en kaffi með koffeini.
Bumbuna burtu
Þótt ofþyngd hafi vissulega slæm áhrif á líkamann er það kviðfitan sem er verst. Sé fólk nokkuð útlimagrannt en með ístru er það líklegra til að þróa með sér skorpulifur, hjartasjúkdóma og sykursýki. Með því að leita leiða til að minnka bumbuna eða ístruna getur fólk bætt heilsuna til muna og minnkað líkur á að lifrin taki að skemmast. Gönguferðir í 30-45 mínútur á dag geta skilað miklu og magaæfingar á gólfinu heima einu sinni til tvisvar yfir daginn er frábær leið til að gera einmitt það. Eins ættu allir að reyna að standa upp sem oftast og jafnvel vinna standandi sama hvaða verkefni er verið að leysa. Rannsókn frá 2018 sýndi að samband var milli þess hve lengi fólk sat yfir daginn og kviðfitunnar sem safnaðist á það. Með aldrinum minnkar vöðvamassi líkamans og besta leiðin til að halda honum við er að gera styrktaræfingar og lyfta lóðum minnst tvisvar í viku. En styrktaræfingar eru meðal þess sem notað er að til veita meðferð við MASLDR.
Aukin drykkja eldra fólks
Rannsóknir víða um heim, ekki bara á Íslandi, sýna aukna drykkju meðal eldra fólks. Nefna má að í Bretlandi drekka 84% 55-64 ára gamals fólk fjórum sinnum í viku eða oftar og 81% í aldurshópnum 65-74-year-olds segja hið sama. Hlutfallið dettur niður í 21% þegar kemur að aldurshópnum 55-64-year-olds. Aðeins eru örfáir áratugir síðan þetta hlutfall var öfugt þ.e. drykkja minnkaði því eldra sem fólk var. Hér á landi hefur borið á að mun fleiri eldri borgarar leiti sér meðferðar við áfengisvanda en áður var. Margir kjósa einnig að drekka ekki á virkum dögum en bíða helgarinnar og hella þá vel í sig, svokölluð lotudrykkja. Rannsóknir hafa sýnt að hún er heilsufarslega jafnslæm og að drekka 2-3 glös af víni daglega og í sumum tilfellum mun hættulegri.
Sumir telja að ef þeir neyti áfengis með mat verndi það heilsuna en svo er ekki. Það hægir á upptöku áfengisins en það er magn etanóls í blóðinu sem skaðar og það verður það sama eftir að drukkin hafa verið þrjú glös hvort sem þau eru drukkin hægt eða hratt, með mat eða án. Annað sem eldra fólk ætti að hafa í huga er að neysla áfengis eykur slysahættu.
Þögull óvinur
Lifrasjúkdómar eru skæðir óvinir því þeir liggja í láginni árum saman og fólk finnur engin einkenni fyrir en það er langt leitt og ástandið orðið mjög alvarlegt. Ef fólk hefur grun um að það stefni heilbrigði lifrarinnar í hættu með lífsstíl sínum ætti það að láta lækni athuga ástandið reglulega.
Fimm mýtur um lifrarheilsu skoðaðar
- Þarf lifrin reglulegt detox?
Nei, lifrin hreinsar sig sjálf og hún er fullfær um að losa sig við eiturefni. Það er algjör óþarfi að hella í sig te, svelta sig, taka djúskúra eða einhver fæðubótarefni til að styðja við hana. Það breytir engu og getur í sumum tilfellum skaðað lifrina, einkum sum jurtate.
- Þarf að drekka minnsta kosti átta glös af vatni á dag svo lifrin geti unnið rétt?
Það er mikilvægt fyrir alhliða heilsu að drekka vel yfir daginn en það þarf ekki að drekka ómælt af vatni til að hreinsa lifrina. Allir ættu að drekka þegar þeir eru þyrstir og kjósa góða íslenska kranavatnið umfram aðra drykki. Átta er engin töfratala þegar kemur að vatnsglösum yfir daginn en breytilegt er hve mikinn vökva fólk þarf eftir, þyngd, hreyfingu, hitastigi í umhverfinu og mataræði. Margs konar matvörur innihalda mikinn vökva og líkaminn er fullfær um að nýta sér hann.
- Er einhver ein tegund áfengis hollari en önnur?
Nei, engin tegund alkóhóls er holl. Það skiptir mestu hve mikið þú drekkur ekki hvað þú drekkur. Rauðvín, hvítvín, bjór, sterk vín, allt er þetta jafnóhollt. “
- Skiptir máli hver kyns maður er þegar kemur að áfengisdrykkju?
Já, karlar vinna öðruvísi úr etanóli en konur. Etanólið sest að í fituvefjum líkamans og konur eiga erfiðara með að losa sig við það. Hins vegar ættu bæði konur og karlar að vera meðvituð um hve mikið magn áfengis þau innbyrða og nýlega minnkuðu vísindamenn verulega það magn sem þeir telja að hægt sé að drekka af víni sér að skaðlausu.
- Ef blóðprufur koma vel út er það ekki til marks um heilbrigða lifur?
Nei það er ekki svo. Eina leiðin til að vera viss um að lifrin sé í fínu lagi er að fara í ómsjá og láta skanna hana.
Lifrin breytist með aldrinum
Lifrin er stærsta líffæri kviðarholsins. Hún situr undir rifjahylkinu og gegnir margháttuðu hlutverki. Hún vinnur næringarefni úr matnum, geymir orku, hjálpar til við að halda blóðsykri í jafnvægi, hreinsar blóðið af eiturefnum og dregur kólesterólmagni í blóði. Með árunum minnkar lifrin um 20-40%. Blóðflæði um hana minnkar og fólk 65 og eldra hefur um það 35% minna blóðflæði um lifrina en þeir sem eru yngri en 40 ára. Magn virkra lifrarfrumna minnkar einnig jafnvel þótt lifrin sjálf haldi sömu stærð. Fita og kólesteról geta þá farið að safnast fyrir í lifrinni og valda skaða.
Einkenni lifraskemmda:
Þreyta
Minni matarlyst
Óútskýrt þyngdartap
Kláði í húð og ógleði
Óþægindi undir hægra rifjahylki
Hvítan í augunum fær á sig gulan blæ
Bólgur í fótum og sársauki í neðra kviðarholi
Húðin merst auðveldlega
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







