Margir kjósa fremur að drekka kolsýrt vatn en kranavatn og bæta iðulega út í alls konar bragðefnum. En hvað gerist í líkamanum ef fólk drekkur kolsýrt vatn á hverjum degi? Er það slæmt fyrir nýrun? Gefur það sama vökva og kranavatnið eða þarf að drekka meira af því? Og er allt í lagi að drekka sítrónuvatn, með appelsínubragði eða eitthvað annað?
Sódavatn eða kolsýrt vatn er einhvern veginn svo létt og freistandi, ævintýralegra en flatt kranavatnið og það þarf ekki að bíða eftir því að það kólni. Maður grípur bara flöskuna beint úr ísskápnum, nú eða skellir ísköldu vatni í sódastream-tækið. En getum við treyst því að við uppfyllum daglega vökvaþörf okkar með þessum frískandi drykkjum?
Rannsóknir sýna að kranavatn og kolsýrt vatn vökva líkamann jafn vel. Hins vegar höfum við tilhneigingu til að drekka minna af kolsýrðu vatni. Loftbólurnar virka fyllandi og fólk finnur síður þörf til að drekka meira. Rannsókn þar sem þátttakendur fengu ýmist kranavatn eða kolsýrt vatn sýndi að þegar þeim var boðin ábót vildi hópurinn sem drakk kolsýrt vatn marktækt síður þiggja hana.
Getur hjálpað þér að draga úr sykurneyslu
Kolsýrt vatn er hins vegar mun betri kostur en sykurríkir drykkir á borð við safa og gosdrykki. Kolsýrt vatn inniheldur yfirleitt engar hitaeiningar, ekkert natríum, engin kolvetni og enga fitu. Það gerir það að frábærum valkosti fyrir þá sem vilja halda neyslu á hitaeiningum, salti, fitu og kolvetnum í lágmarki en um leið viðhalda góðu vökvajafnvægi. Fjölbreytt úrval af náttúrulega bragðbættu kolsýrðu vatni er í boði í verslunum í dag og hefur góð áhrif á þá sem eru að reyna að venja sig af orkumeiri drykkjum.
Fólk getur einnig prófað að blanda 100 prósent ávaxtasafa saman við kolsýrt vatn heima hjá sér eða nota sódastream-tæki og bragðefni. Þannig fæst bragðgóður og hitaeiningalítill drykkur. Hann má gera einn hollari og betri með því að bæta nokkrum bitum af ávöxtum eða grænmeti, til dæmis gúrku, límónu, appelsínu, jarðarberjum eða bitum af ananas eða epli út í. Nefna má frábæra óáfenga sangríu-blöndu úr granateplasafa eða köldu hibiskustei, kolsýrðu vatni, skvettu af appelsínusafa og sneiddum eplum, appelsínum og límónum. Gómsæt og frískandi og ekkert síðri en áfenga útgáfan.
Gefur seddutilfinningu – að minnsta kosti tímabundið
Það eru ekki bara loftbólurnar sem stíga fólki til höfuðs þegar kolsýrt vatn er drukkið. Kolsýrt vatn aukið seddutilfinningu tímabundið, sérstaklega ef það er drukkið á milli mála eða skömmu fyrir máltíð og það getur hjálpað sumum að borða minna í næstu máltíð. Hins vegar geta þessar sömu loftbólur einnig valdið uppþembu eða aukinni loftmyndun því maginn þenst út. Hjá fólki sem er viðkvæmt fyrir bakflæði geta þær jafnframt aukið einkenni magasýrubakflæðis (GERD). Ef ekkert slíkt hrjáir þig alveg óhætt að njóta kolsýrðs vatns og fylgjast með því hvernig líkaminn bregst við.
Beinin (og tennurnar) verða ekki fyrir skaða
Það er mýta að kolsýrt vatn sé skaðlegt fyrir beinin. National Osteoporosis Foundation í Bandaríkjunum hafur sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er skýrt fram að engin tengsl séu á milli kolsýringar í drykkjum og beinþynningar. Reyndar geta sum steinefnavötn, sem innihalda náttúrulega kalk og magnesíum, jafnvel stutt við beinheilsu með því að auka daglega inntöku þessara mikilvægu steinefna. Kolsýring lækkar á hinn bóginn sýrustig (pH) venjulegs kranavatns og geri það örlítið súrara. PH-gildi kranavatns er um 7 en kolsýring lækkar pH-gildið niður í um 5. Ef drykkurinn inniheldur viðbætt efni eins og sítrónusýru, sem er algeng í bragðbættu kolsýrðu vatni, getur pH-gildið orðið enn lægra. Bæði venjulegt og bragðbætt kolsýrt vatn er almennt betri kostur fyrir tannheilsu en ávaxtasafar og gosdrykkir, sem geta haft pH-gildi upp á 4 eða lægra.
Nýrun eru einnig örugg
Kolsýrt vatn – sérstaklega óbragðbætt – er einnig öruggt fyrir nýrun en svokallað club soda getur innihaldið meira natríum en aðrar tegundir kolsýrðs vatns. Venjulegt, ósykrað kolsýrt vatn er hins vegar góður kostur fyrir flesta heilbrigða einstaklinga. Ef þú ert viðkvæm(ur) fyrir ákveðnum innihaldsefnum er jafnframt skynsamlegt að skoða innihaldslýsinguna og athuga hvort drykkurinn innihaldi sykur, natríum, koffín eða sýrur. Ef þú vilt fá sem mest næringargildi úr drykknum getur verið góð hugmynd að velja kolsýrt steinefnavatn. Slíkt drykkjarvatn getur innihaldið lítið magn steinefna á borð við kalk, kalíum og magnesíum.
Steinefnavötn geta einnig innihaldið bíkarbónat, sem hjálpar til við að viðhalda eðlilegu sýrustigi. Fyrstu rannsóknir á neyslu þess benda jafnframt til þess að steinefnavatn sem er ríkt af bíkarbónati geti haft hófleg jákvæð áhrif á efnaskipti. Þannig að ef sódavatn eða kolsýrt vatn er þinn uppáhaldsdrykkur er óhætt að halda áfram að njóta hans.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







