Búningar í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum eru ótrúlega mikilvægur liður í að endurskapa andrúmsloft og tíðaranda. Þeir geta einnig vakið með áhorfendum fortíðarþrá og löngun til að ferðast aftur á bak í tíma. Áströlsku þættirnir Miss Fisher’s Murder Mystries eru í þeim flokki. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur hafa getað notið þeirra á dönsku stöðinni DR1 en einnig eru þeir á Amazon og Apple TV.
Búningahönnuðurinn að baki kjólunum, blússunum, buxunum, kápunum, töskunum, höttunum og skartgripunum sem Essie Davis ber í hlutverki Miss Fisher er Marion Boyce. Miss Fisher er búsett í Melbourne í Ástralíu á þriðja áratug síðustu aldar. Hún starfar sem einkaspæjari og er sjálfstæð, ákveðin og skörp. Þetta var blómaskeið djassins og Charlestone-dansins. Þarna komu einnig fram hinar uppreisnargjörnu Flapper-stúlkur sem vildu jafnrétti kynjanna og klipptu sig stutt. Æskan varð uppreisnargjarnari og konur að krefjast aukins sjálfsákvörðunarréttar.
Phryne Fisher klæðist dásamlegum kimónóum, víðum buxum, notar sjöl með kögri og hatta sem sannarlega mættu sjást á höfðum kvenna í Reykjavík. Hún er ótrúlega smart og ber klæðnaðinn með reisn. Við skulum einnig muna að þetta er fyrir tíma gerviefna og ekta silki, ull, taft og loðskinn í öllum fatnaði. Ekki eru skartgripirnir og fylgihlutirnir síðri, perluskreyttar töskur, síðar festar og eyrnalokkar í stíl. Meira að segja skammbyssan hennar Phryne er með skafti úr perlumóðurskel. Hún er uppreisnarseggur og það þarf að endurspeglast í fötum hennar og um leið verða þau að vera þannig að hún eigi auðvelt með að hreyfa sig því iðulega tekur hún upp á að hlaupa, klifra, stökkva og stinga sér á eftir glæpamönnum á flótta. En sjón er sögu ríkari og þeir sem hafa ekki kynnst þessum dásamlegu þáttum enn ættu að kíkja eftir þeim á þeim streymisveitum sem þeir hafa aðgang að.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







