Björn Berg Gunnarsson fræðslustjóri Íslandsbanka skrifar:
Hvers vegna telja svona margir að vegna Tryggingastofnunar sé nauðsynlegt að taka út alla séreign áður en sótt er um lífeyrisgreiðslur? Ástæða þessa mjög svo algenga misskilningsins er fyrst og fremst sú að fyrir nokkrum árum skerti úttekt séreignar greiðslur frá Tryggingarstofnun. En þetta á ekki lengur við. Raunar er tæpur áratugur frá því að tenging lífeyrisgreiðslna TR og séreignar var afnumin en svo virðist sem þau merk tíðindi hafi ekki skilað sér. Þetta hefur því miður þýtt að margir taka séreign sína út að ástæðulausu áður en þeir hætta að vinna og verða fyrir óþarfa kostnaði.
Tvöfalt áfall
Ávöxtun séreignarsparnaðar skerðir ekki greiðslur TR og er undanþegin fjármagnstekjuskatti, ólíkt almennum sparnaði utan kerfisins. Sömuleiðis hefur úttekt séreignar engin áhrif á lífeyrisgreiðslur TR. Það má þó benda á að þar sem úttekt séreignar er skattskyld, þ.e.a.s. greiddur er tekjuskattur við úttekt, og töluverður munur er á skattþrepum getur það þýtt að þeir sem hafa ranglega fengið þær upplýsingar að nauðsynlegt sé að drífa í úttekt fyrir 67 ára aldur geta orðið fyrir tvöföldu áfalli.
- Áfall 1: Ef séreignarsparnaður er tekinn út og lagður inn á bankareikning þarf að greiða fjármagnstekjuskatt af vöxtunum, sem annars þyrfti ekki að gera. Auk þess munu vextirnir skerða lífeyrisgreiðslur TR um 45% og heimilisuppbót um 11,9%. Inni í séreignarkerfinu myndi þetta ekki gerast.
- Áfall 2: Þar sem greiða þarf staðgreiðslu af úttekt séreignar er hætt við að skatturinn verði umtalsvert hærri sé drifið í úttekt fyrir 67 ára aldur en ef beðið er með hana og jafnvel tekið út á nokkrum árum. Ástæðan er sú að úttektin telst til tekna og leggst ofan á þær launatekjur sem við höfum. Sé allt tekið út í einu er ekki ólíklegt að hátekjuskattur sé greiddur, að óþörfu, sem er umtalsvert hærri en almenna skattþrepið, eða 9,3% í dag.
Það borgar sig að kynna sér málin
Einfaldur misskilningur getur orðið til þess að tekjuskattur, fjármagnstekjuskattur og skerðingar verði meiri en nauðsynlegt er og þar sem tekjur flestra lækka nokkuð við starfslok er mikilvægt að forðast kostnaðarsöm mistök. Það er ekkert að því að taka séreignarsparnað út snemma, en þá er mikilvægt að hafa vita hvaða áhrif slíkt mun hafa.