Sigurður Pálsson hefur sent frá sér ljóðabókina Ljóð muna rödd. Í henni yrkir Sigurður um grundvallaratriði lífsins: jörð, eld, loft og vatn,en líka raddir, skugga, ljós og myrkur og hvítar nætur og heilaga gleði. Þetta er ein persónulegasta og áhrifamesta ljóðabók sem Sigurður hefur sent frá sér. Við birtum hér eitt ljóð bókarinnar.
Hvít nótt
Ekki var hún svefnlaus
þessi nótt
Samt var hún hvít
alveg snjakahvít
Að morgni er blað
á borðinu
með bókstöfum
Sá sem sat við borðið
er horfinn