Það verða þrír spennandi Tilbúningar á Borgarbókasafninu á næstunni þar sem búin verða til ferðaborðspil og gjafaöskjur og krukkur skreyttar úr endurnýttum efnivið.
Unnið verður með málningarpenna, sjálfharðnandi leir og kannski smá nál og tvinna við gerð borðspila í ferðastærð; lúdó, slönguspil og jafnvel taflborð sem hægt er að stinga í vasann, í Tilbúningi á Borgarbókasafninu Spönginni miðvikudaginn 4. nóvember.
Nú þegar myrkrið færist yfir og tími kertaljósa er runninn upp er gaman að búa til fallega kertastjaka úr sultukrukkum. Skreyttar krukkur er einnig tilvalið að nota t.d. undir skartgripi eða smákökur.
Notaleg föndurstund verður á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fimmtudaginn 5. nóvember. Krukkurnar verða skreyttar með afskrifuðum bókum, borðum og öðrum efnivið sem bókasafnið á. Það verða krukkur í ýmsum stærðum á staðnum en gestum er einnig velkomið að koma með krukkur að heiman.
Þriðjudaginn 10. nóvember verða síðan föndraðar gjafaöskjur með origami aðferðinni á Borgarbókasafninu Árbæ. Öskjurnar eru frábær leið til að gera gjafir persónulegri og umhverfisvænni. Allur efniviður á staðnum en einnig velkomið að koma með efni og áhöld að heima til að setja persónulegan svip á sköpunina.
Tilbúningur er viðburðaröð fyrir fólk á öllum aldri en fullorðið fólk er sérstaklega hvatt til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín. Notalegar stundir þar sem búið er til eitthvað úr einhverju og allskonar hlutir endurnýttir. Leiðbeinendur koma með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoða við tilbúninginn.
Aðgangur er ókeypis og engin skráning.
Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á þremur stöðum, ávallt kl.15:30 – 17:30:
Borgarbókasafninu Spönginni fyrsta miðvikudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar.







